Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 6

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 6
SAMEINING SVEITARFÉLAGA STARF NEFNDAR UM SKIPTINGU LANDSINS í SVEITARFÉLÖG SIGFÚS JÓNSSON LAND- FRÆÐINGUR ^„TIL þess að geta uppfyllt^ ÞÆR KRÖFUR, SEM NÚTÍMASAMFÉLAG GERIR, ÞURFA SVEITARFÉLÖG AÐ VERA AF VISSRI v LÁGMARKSSTÆRГ > INNGANGUR Verulegur árangur hefur náðst í stækkun og eflingu sveitarstjórnarstigsins með sameiningu sveitarfélaga í nágrannalöndunum undanfarna áratugi. Sambærileg- ur árangur hefur ekki náðst hér á landi, m.a. vegna skorts á markvissri löggjöf. Ný sveitarstjórnarlög voru samþykkt árið 1986. í lögunum eru ákvæði um, að lágmarksíbúatala í sveit- arfélagi sé 50. Síðan lögin voru sett hafa sveitarfélög verið sameinuð í 14 tilfellum og sveitarfélögum verið fækkað um 22. Þau eru nú alls 201. í lögunum frá 1986 segir, að ráðuneytið geti, að fenginni umsögn Sam- bands íslenzkra sveitarfélaga, sett almennar reglur þess efnis, að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veiti fjár- hagslega aðstoð til þess að greiða fyrir sameiningu sveitarfélaga. Reglur um slíkt voru settar af félags- málaráðherra 30. júní 1987. Einnig er í reglugerð um jöfnunarsjóð nr. 542/1989 að finna ákvæði, er hvetja til stækkunar sveitarfélaga. Hinn 8. janúar 1991 skipaði félagsmálaráðherra nefnd til þess að gera samræmdar tillögur um æski: legar breytingar á skiptingu landsins í sveitarfélög. í skipunarbréfi nefndarinnar er tekið fram, að ekki skuli einungis miðað við einhverja lágmarksíbúatölu í sveit- arfélagi, heldur einnig, að hvert sveitarfélag verði eitt þjónustusvæði, sem geti myndað sæmilega sterka fé- lagslega heild. Einnig var nefndinni ætlað að kanna, hvort samstaða gæti náðst um slíkar hugmyndir og að gera tillögur um æskilega skiptingu landsins í sveitar- félög. í skipunarbréfinu er óskað eftir því, að nefndin Ijúki störfum fyrir 1. október 1991. í nefndina voru skipuð: Sigfús Jónsson, landfræðingur, formaður, Ásgerður Pálsdóttir, bóndi í Engihlíðarhreppi, Birgir Þórðarson, oddviti Eyjafjarðarsveitar, Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í Keflavik, Guðmundur Ágústsson, alþingismaður, Reykjavík, Jens P. Jóhannsson, rafvirkjam., Biskupstungum, Jón Kristjánsson, alþingismaður, Egilsstöðum, Kristinn Pétursson, alþingismaöur, Bakkafirði, Margrét Frímannsdóttir, alþingismaður, Stokkseyri, Sigurður Guðmundsson, forstöðumaður, Reykjavík Sveinn G. Hálfdánarson, innheimtustj., Borgarnesi. Þá hefur Húnbogi Þorsteinsson, skrifstofustjóri í fé- lagsmálaráðuneytinu, starfað með nefndinni. ÁFANGASKÝRSLA Nefndin lagði fram áfangaskýrslu hinn 1. október sl., sem kynnt hefur verið meðal sveitarstjórna og samtaka þeirra. Að lokinni umfjöllun fulltrúaráðs Sambands ís- lenzkra sveitarfélaga um skýrsluna á fundi 23. nóv- ember vinnur nefndin nú úr athugasemdum og ábendingum fulltrúaráðsins og skilar síðan endanlegri skýrslu. Viðræður nefndarinnar við sveitarstjórnir og athugun á gögnum frá nágrannalöndunum hafa leitt til þeirrar 252

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.