Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 14

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 14
SAMEINING SVEITARFÉLAGA Fellshreppur og Óspakseyrarhreppur verða Broddaneshreppur á ný Hinn 1. janúar 1992 sameinast Fellshreppur og Óspakseyrar- hreppur í Strandasýslu, og nefnist hinn sameinaöi hreppur Brodda- neshreppur, en hrepparnir voru einn hreppur, Broddaneshreppur, til ársins 1886, er hreppnum var skiptí núverandi hreppa. Árið 1703 hét hreppurinn Bitruhreppur, en mun hafa fengið nýtt nafn á síðari hluta 18. aldar. Hinn 1. desember 1990 voru í Fellshreppi 66 íbúar, en í Óspaks- eyrarhreppi 46. Hafði íbúatalan þá í fimm ár í röð verið undir 50, þeirri lágmarkslbúatölu, sem sveitar- stjórnarlögin frá 1986 kveða á um, aö vera skuli í hreppi. Aðdragandi sameiningarinnar er stuttur, og ríkti mikil eindrægni um hana í báðum hreppunum. Samhliða hreppsnefndarkosn- ingunum árið 1990 var kannaður hugur íbúanna til mismunandi kosta varðandi sameiningu, og varð niðurstaðan sú, að meirihluti íbúa I báðum hreppunum lýsti sig hlynntan sameiningu þessara tveggja hreppa. Hinn 26. október sl. fór síðan fram almenn atkvæðagreiðsla um sameiningu hreppanna í þeim báðum. í Fellshreppi voru 47 á kjörskrá. Af þeim greiddi atkvæði 31, eða 66%. Þar af voru 24 samþykkir sameiningu, en 2 andvígir. Fimm skiluðu auðum seðli. Samþykkir sameiningu voru því 77,4% þeirra, sem atkvæðisréttar neyttu. Af 33 á kjörskrá í Óspakseyrar- hreppi greiddu atkvæði 29, eða rúmlega 80%. Samþykkir voru 24, eða 82,8%, andvígir 4, og einn at- kvæðaseðill var auður. Sameiningin var því samþykkt í báðum hreppunum með 48 atkv. gegn 6, en 6 seðlar voru auðir. „Hrepparnir tveir hafa lengi átt samstarf, m.a. um grunnskóla á Broddanesi, og við erum að Ijúka því verki, sem fólkið í hreppun- um ákvað, að gert yrði", sagði Einar Magnússon í Hvítuhlíð, oddviti Óspakseyrarhr., í samtali við Sveit- arstjórnarmál. „Við lítum björtum augum til samstarfsins innan hins nýja hrepps", bætti hann við. Þrír menn voru í hreppsnefndum hvors eldri hreppanna, en verða fimm í nýju hreppsnefndinni, sem tekur til starfa hinn 1. janúar 1992. Til hennar hafa verið kjörnir: Jón Gústi Jónsson, Steinadal, Einar Magnússon, Hvítuhlíð, Einar Eysteinsson, Broddanesi, Rögn- valdur Gíslason, Gröf, og Gunnar Sverrisson, Þórustöðum. Sveitarstjórnir Önnumst vöruinnkaup og útboðsþjónustu fyrir sveitarfélög, skóla og heilbrigðisstofnanir. Höfum fyrirliggjandi á lager ýmsar rekstrarvörur á mjög hagkvæmu verði, meðal annars: skrifblokkir - ljósritunarpappír - skjalaskápa - wc pappír - handþurrkur - sorppoka - þveglagrindur og sköft - tölvur og tölvubúnað. Móttaka pantana og nánari upplýsingar í síma 91-26844. ■)■ INNKAUPASTOFNUN O RIKISINS . BORGARTUNI 7,105 REYKJAVIK. SÍMI 91-26844. TELEFAX: 91-626739. 260

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.