Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Síða 16
SAMEINING SVEITARFÉLAGA
Jón Karlsson, Breiöabólstað, og
Jóhann Pálsson, Hlíð.
Þeim, sem hafa undir höndum
Sveitarstjórnarmannatal 1990-
1994, er bentá, að unnt er að færa
nöfn hreppsnefndarmanna Suður-
dalahrepps inn í bókina á bls. 67.
Hrepparnir, sem nú sameinast,
hafa ásamt Haukadalshreppi haft
með sér náið samstarf. Eiga þeir
m.a. í smíðum sameiginlegt fé-
lagsheimili I Kvennabrekku, sem
að nokkru leyti hefur verið tekið í
notkun. Þeir eru saman f sauðfjár-
veikivarnahólfi og eiga sameigin-
leg fjallskil. Eru þeir í daglegu tali
nefndir Suðurdalir.
í Haukadalshreppi voru 48 íbúar
hinn 1. desember 1990, en 54
íbúar á árunum 1988 og 1989.
Fellur hreppurinn því ekki undir
þau ákvæði sveitarstjórnarlaga, að
skylt sé að sameina hann öðrum
hreppi eða hreppum. Engu að
síður fór hreppsnefnd Haukadals-
hrepps fram á það við félagsmála-
ráðuneytið meö bréfi í nóvember,
að hreppurinn yröi með í samein-
ingunni núna, en ekki var orðið við
þeirri ósk. Það hefði að dómi ráöu-
neytisins tafiö sameiningu hinna
tveggja hreppanna fram yfir ára-
mót.
„Ég tel samt, að rétt hefði verið
að gera þetta í leiðinni", sagði Árni
Sigurðsson í Köldukinn, oddviti
Haukadalshrepps, í samtali við
Sveitarstjórnarmál, „Ég held, að
sameining hefði verið samþykkt í
atkvæðagreiðslu meöal hrepps-
búa“, bætti hann við.
Enginn hreppur
landsins án kirkju
Með sameiningu Hörðudals-
hrepps og Miðdalahrepps verða
þau þáttaskil, að ekkert sveitarfé-
lag landsins verður lengur án kir-
kju. Aðspurður kvað Þorsteinn
Jónsson, oddviti Hörðudals-
hrepps, það rétt, sem stendur í
bókinni Landið þitt ísland, að
Hörðudalshreppur sé nú eina
sveitin á landinu, þar sem ekki er
kirkja. „Til þessa hefur engin kirkja
verið í Hörðudalshreppi, en tvær í
Miðdalahreppi, í Snóksdal og
Kvennabrekku, og höfum við í
Hörðudalshreppi átt kirkjusókn (
Snóksdal. Éftir sameininguna
verður því ekki aðeins ein, heldur
tvær kirkjur í hreppnum", sagði
Þorsteinn.
Sveitarfélögin
orðin 199
í ársbyrjun 1991 voru sveitarfé-
lög landsins 202, eftir að þrír
hreppar í Eyjafirði höfðu sameinazt
i Eyjafjarðarsveit. Þeim fækkaði um
eitt hinn 17. febrúar, er Öxarfjarð-
arhreppur og Presthólahreppur
runnu saman í Öxarfjaröarhrepp,
og eru sveitarfélögin því 201 í lok
ársins.
Frá og með 1. janúar 1992 verða
sveitarfélög á íslandi 199, þar af
168 hreppar og 31 bær, eftir að
sameining hefur átt sér stað í þeim
tveimur tilvikum, sem hér hefur
verið skýrt frá, ( Dalasýslu og í
Strandasýslu.
Engir
tveir
eru
eins!
í okkar augurn
er tnunurinn augljós.
Vibgerum okkurglögga grein fyrirþví ab
einstaklingar eru eins ólíkir og þeir eru
margir. Og því er þörfin fyrír
fjármálaþjónustu mjög
mismunandi.
Þetta er stabreynd sem starfsfólk íslandsbanka
hefur ab leibaríjósi í sínu starfí.
Islandsbanki mœtirþví kröfum markabaríns ,
meb nýjungum og persónulegrí þjónustu sem
einkennist af þekkingu, vandvirkni
og lipurb.
Þess vegna njóta einstaklingar góbs af
þjónustu íslandsbanka.
ISLANDSBANKI
- í takt við trýja tíma.
262