Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 37

Sveitarstjórnarmál - 01.10.1991, Blaðsíða 37
ÍSLANDSSAGA innfrá (það var Svarfaðardalur). Item: Glúmur varð héraðssekur úr Eyjafirði og skyldi ekki nær búa en í Hörgárdal, það var á Möðruvöllum I Hörgárdal. Item: Þeir gjörðu hann sekan svo vítt sem vötn flóðu til Skagafjarðar, það var héraðssekt. Hér af má ráða, að hérað hafa þeir kallað þó minna sé en öll sýsla, heldur svo sem hvern víðemisfjörð, þar vötn flóa að af heiðum og hálsum. En þar sem heyrist til lagamála, að þær greinist, önnur í landsb(rigðabálk), önnur í kaupab(álk), komi vatnsföll í sveitir er hvomg nærri. Ekki er skylt að ganga á merki, þar sem fjöll eru, þau sem vatnsföll deilast (af) milli héraða. Item um kröfu fjár. Item um votta innan héraðs, þá skal skapa þeim leiðarlengd. Hér talar um þau vötn, sem deilast eða skiptast sundur á hálsum og heiðum og renna tvo vegu út til héraðanna. Þetta má ráða af gömlu, svo sem þegar segir: Þrjár hrossreiðir eru þær skóggang varðar. Ein ef maður ríður svo, að þrír bæir em á aðra hönd og hann ríður um þá, önnur ef maður ríður um fjöll þau, er vatnsföll deilast af milli héraða, þriðja ef maður ríður á milli landsfjórð- unga. Item ef hross kemur að manni í óbyggðum og varðar manni ekki eftirrásin, ef hann heftir á næsta bæ, þó það renni fjórðunga á milli eða um heiðar þær, er vatnsföll deilir af á tvo vegu milli staða. Hér er að merkja svo sem að heiðar eigi að skilja hémðin sem víst vitum á landi voru em margar heiðar í einni sýslu og skilst mér, að ekki muni eins byggðar mörgum verið? í Noregi (sem þessi lög sett vom), svo sem hér með oss á þessu öræfalandi. Hér meina ég hérað verði að heita eftir fyrstu glósu, sem ég framsetti, af her eða hersis- dæmi, þó heiðar séu þar inni eða stórhálsar með vatns- falladeilingu á tvo vegu til sveitanna og koma þar að smærri? meiningu og orðtökum þingmanna, sem er fyrst Skarösá i Sæmundarhlið í Skagafiröi, sem Björn á Skarösá er kenndur viö. Býiiö er nú i eyöi. Ljósm. Jón Karl Snorrason. um lagastefnur. Vom hálfsmánaðar stefnur utan hrepps en innan héraös, þá mánaðar stefnur utan héraðs en innan fjórðungs. Hér skiptir ekki smærra um en frá hrepp til héraðs, frá héraði til fjórðungs. Til styrktar því sem talað var, lénsmenn í héraði og prófastar í héraði. HvaðJylki var kallað að fomu Það hefur nafn af fólki. Það kalla Norðmenn fylki, sem í eru 12 skippund með vopnum og mönnum og á einu skipi væri 40 menn eða 70? og þar á milli, ekki var fylki kallað nema 40 í væm. Fólkungar vom þeir kallaðir, er fylkjum réðu eða fylkingum stýrðu, hvað sama er fýlki eða lendsmanns- dæmi eða hersis, og 12 löghreppar í fylki, og gjörðu svo hvort? eitt skip ferðugt í leiðangri og hvor einn lög- hreppur. Um fjórðunga er ekki að tala. Þórður gellir skipti sundur fjórðungum á íslandi. Nokkur orð um höfundinn og ritgerðina Björn Jónsson (1574-1655) ólst upp hjá Sigurði sýslumanni Jónssyni á Reynistað og fékk þar menntun nokkra, en ekki gekk hann í skóla. Björn bjó um hálfrar aldar skeið á Skarðsá og er jafnan kenndur við þann bæ. Hann var lögréttumaður um skeið. Björn er einn afkastamesti og virtasti fræðimaðurinn frá fyrri hluta 17. aldar og þá ekki sízt, ef tekið er tillit til þess, aö hann stundaöi einnig búskap um hálfrar aldar skeið. Merkustu rit hans eru Skarðsárannáll, Tyrkjaránssaga, Grænlandsannáll og Skarösárbók Landnámu. Auk þess hafa margar smáritgeröir Björns varðveitzt og ýmsar afskriftir af öðru tagi. Rímur orti Björn, en ekki hafa þær verið gefnar út. Um byggðanöfn, hvaðan þau hafa sinn uppruna og þeirra ráðning er ein af smáritgerðum Björns. Ritgerö þessi mun fyrsta tilraunin til að skýra uppruna héraðs- stjórnarumdæma á íslandi og nöfn þeirra. Björn styðst auösjáanlega mikið við lögbækur, bæði Grágás og Jónsbók, og vitnar raunar stundum til þessara heim- ilda á spássíum. Hann hefur einnig stuözt við Víga- Glúmssögu og Svarfdælu og Odd munk og vitnar til þessara heimilda. Björn staðhæfir, að 12 löghreppar hafi verið I lendsmannsumdæmi að fornu, en þaö telur hann hafa jafngilt héraöi. Hann rekur upphaf þessa skipulags til skipreiðunnar norrænu. Björn er stundum óþarflega stuttorður, til dæmis er hann getur um, aö eitthvað sé héraðsrækt í fardögum, en nefnir ekki, að ákvæðið varðar kú. Ritgeröin er varðveitt í handritadeild Landsbóka- safns og ber safnnúmerið IB 122 8 .vo Handritið er samkvæmt skrám Landsbókasafns taliö skráð um 1660 og er því ekki frumrit. Það er máð á stöku stað og þaö svo, að ekki er Ijóst, hvað þar stendur. Slíkir staðir eru hér auðkenndir meö spurningarmerki. Rit- gerðin er aö mestu færð til nútíðarmáls. Orðum er stundum skotiö inn af undirrituðum til skýringar, en þau eru innan sviga. Ég vil þakka starfsmönnum handritadeildar, Eiríki Þormóðssyni og Ögmundi Helgasyni, fyrir mikilsverða aðstoð við aö rýna I máða staöi og leysa úr böndum. Lýður Björnsson 283

x

Sveitarstjórnarmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.