Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 8
FULLTRUARAÐSFUNDIR
Austfiröingar á fundinum. Á myndinni eru, taliö frá vinstri, Broddi B. Bjarnason, bæjar-
fulltrúi í Egilsstaðabæ og formaöur Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi,
Magnhildur B. Björnsdóttir á Ytri-Víöivöllum II, hreppsnefndarfulltrúi i Fljótsdals-
hreppi, Magnús Porsteinsson, oddviti Borgarfjaröarhrepps, og Þráinn Jónsson, odd-
viti Fellahrepps.
var samþykkt og er svofelld:
Fulltrúaráðið vísar til skýrslu starfshóps stjómar sam-
bandsins um lífeyrissjóðsmál dags. 20. mars 1997 og
leggur til að Samband íslenskra sveitarfélaga feli lífeyr-
issjóðsnefndinni að vinna áfrarn að málinu og veiti
henni jafnframt heimild til að ráða sérfræðing sér til að-
stoðar. Hlutverk hans verði annars vegar að leiða saman
þau sveitarfélög sem áhuga hafa á stofnun lífeyrissjóðs
sveitarfélaga og hins vegar að aðstoða þau sveitarfélög
sem ákveða að fara aðrar leiðir í lífeyrismálum, s.s. að
semja við SAL-sjóði í viðkomandi landshlutum.
Hluti nefndarinnar myndi framkvæmdanefnd sem
vinni að málinu í samvinnu við fulltrúa heildarsamtaka
stéttarfélaga opinberra starfsmanna.
Stefnt skal að því að endanlegar niðurstöður liggi fyrir
eigi síðar en við lok septembermánaðar 1997.
Tölvuþjónusta sveitarfélaga
Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar, hafði orð fyrir fjárhagsnefnd fundarins.
Nefndin lagði frain tillögu um svofellda ályktun unt
málefni Tölvuþjónustu sveitarfélaga sem var samþykkt:
53. fulltrúaráðsfundur Sambands íslenskra sveitarfé-
laga felur stjóm sambandsins að kanna möguleika á því
að færa þjónustu einstakra tölvukerfa frá santbandinu og
í því sambandi athugað með svokallaða rammasamn-
inga við einstaka þjónustuaðila.
í tengslum við slíka samninga verði tryggð hagkvæm
og örugg þjónusta við sveitarfélögin.
Fulltrúaráðið telur jafnframt mikilvægt að sambandið
sinni áfram verkefnum á sviði stefnu-
mótunar og samræmingar í tölvumál-
urn sveitarfélaganna.
í tengslunt við afgreiðslu ársreikn-
ings og tillögu að fjárhagsáætlun fyrir
árið 1997 kvað Drífa það álit fjár-
hagsnefndarinnar að hún teldi eðlilegt
að kostnaður vegna landsþings Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga verði
greiddur af sambandinu en sveitarfé-
lögin beri sjálf ferða- og dvalarkostn-
að vegna fulltrúa sinna.
Innheimtustofnun sveitar-
félaga
Þá samþykkti fundurinn að tillögu
fjárhagsnefndarinnar svofellda álykt-
un um greiðslur Jöfnunarsjóðs sveit-
arfélaga vegna vanskila á meðlögum
og ntálefni Innheimtustofnunar sveit-
arfélaga:
Fulltrúaráðið telur að staða Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga sé með öllu
óviðunandi í framhaldi af ákvörðun
ríkisstjórnarinnar um hækkun með-
laga hinn 1. janúar 1993. Frá þeirn tíma hafa greiðslur
sjóðsins vegna vanskila meðlaga verið langt umfram það
sem nokkurn tíma var reiknað með, sem leitt hefur til
þess að hann hefur illa getað sinnt sínu lögbundna hlut-
verki við sveitarfélögin.
Að mati löggiltra endurskoðenda olli ákvörðunin um
hækkun meðlaga varanlegum viðbótarútgjöldum, sem á
árunum 1993, 1994, 1995 og 1996 námu 712 milljónum
króna. Frá þeirri fjárhæð dragast 250 millj. króna sem
ríkið greiddi jöfnunarsjóðnum á árinu 1993. Mismunur-
inn nemur 462 millj. kr. sem fulltrúaráðið gerir kröfu til
að ríkissjóður endurgreiði jöfnunarsjóðnum ásamt
greiðslum sjóðsins á vangreiddum meðlögum umfram
300 rnillj. kr. á árinu 1997.
Fulltrúaráðið leggur til að jöfnunarsjóðurinn verði
leystur undan ábyrgð á greiðslu vangreiddra meðlaga,
þar sem ljóst er að ríkisvaldið getur með ákvörðunum
sínurn lagt á hann fjárhagsbyrðar sem skerða mjög
ntöguleika hans til að sinna sínu lögbundna hlutverki.
Innheimtustofnun sveitarfélaga verði lögð niður og
innheimta meðlaga verði færð til innheimtumanna nkis-
sjóðs sem beri þá fulla ábyrgð á meðlagskröfunni.
í umræðunni urn málefni Innheimtustofnunar sveitar-
félaga bar á góma það sem þá dagana var að gerast í
málefnum Brunabótafélags Islands (BI) að Landsbanki
íslands hafði keypt hlut félagsins í Vátryggingafélagi ís-
lands (VÍS). Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri Seltjamar-
neskaupstaðar, og Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri Bol-
ungarvíkurkaupstaðar, gerðu grein fyrir stöðu sveitarfé-
1 34