Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 10
FULLTRÚARÁÐSFUNDIR
breytingar sem ríkisvaldið hefur stað-
ið fyrir að undanfömu haft í för með
sér verulegt tekjutap og útgjaldaauka
fyrir þau.
Nauðsynlegt er að þessi tillaga rík-
isstjórnarinnar verði skoðuð í sam-
hengi við fjármálaleg samskipti rfkis
og sveitarfélaga á undanfömum miss-
emm.
Minnt er á að samkomulag um yfir-
töku grunnskólans frá 1. ágúst í fyrra
var gert í trausti þess að tekjustofnar
sveitarfélaganna yrðu ekki skertir.
Fulltrúaráðið bendir á nauðsyn þess
að á rnilli ríkis og sveitarfélaga sé
gott samstarf byggt á gagnkvæmu
trausti. Því má ekki spilla með ofríki
ríkisvaldsins í garð sveitarfélaganna.
Guöjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, og bæjarfulltrúarnir Ingvar Ingv-
arsson og Guöbjartur Hannesson á Akranesi.
Rekstrarfyrirkomulag sérskóla og sér-
deilda
Þá var að tillögu nefndarinnar gerð svofelld ályktun
um rekstrarfyrirkomulag sérskóla og sérdeilda sem áður
voru á hendi ríkisins:
53. fundur fulltrúaráðs Sambands íslenskra sveitarfé-
laga samþykkir að fela stjórn sambandsins að leita
samninga við þau sveitarfélög þar sem sérskólar fatlaðra
nemenda eru um framtíðarrekstur þeirra.
Samningamir verði byggðir á hugmyndum vinnuhóps
sambandsins urn sérskóla og sérdeildir (áður ríkisins),
sem lagðar hafa verið fram á fundinum.
Fundurinn leggur á það þunga áherslu að málefnum
fatlaðra grunnskólanemenda verði þannig fyrir komið að
unnt verði að auka og bæta þjónustu við þá jafnt innan
sem utan sérskóla og sérdeilda.
Ámi Þór Sigurðsson borgarfulltrúi kvaddi sér hljóðs
um þetta efni og vakti athygli á málefnum fatlaðra leik-
skólabarna og kvað ríkið hafa kippt að sér hendinni í
stuðningi við þau. Lagði hann ríka áherslu á að stjóm
sambandsins léti til sín taka það mál.
Samskipti ríkis og sveitarfélaga
Loks var að tillögu allsherjamefndar fundarins sam-
þykkt svofelld ályktun um samskipti ríkis og sveitarfé-
laga:
Fulltrúaráð Sambands íslenskra sveitarfélaga mót-
mælir vinnubrögðum ríkisstjómarinnar þegar yfirlýsing
var gefin urn lækkun útsvars án samráðs við sveitarfé-
lögin. Sveitarfélögin njóta ekki tekna af veltuaukningu,
sem búast má við í þjóðfélaginu vegna vaxandi kaup-
máttar, með sama hætti og ríkið, og svigrúm þeirra til
útsvarslækkunar er lítið sem ekkeil. Auk þess hafa skatt-
Félagslega íbúóakerfió
Olafur Hilmar Sverrisson, bæjar-
stjóri í Stykkishólmi, kynnti tillögur
húsnæðismálanefndar að ályktunum fundarins og voru
þær báðar samþykktar. Sú fyrri fjallaði um félagslega
íbúðakerfíð og var samþykkt svofelld:
Fulltrúaráðið minnir á að með lögum um félagslega
íbúðakerfíð hafa miklar skyldur verið lagðar á sveitarfé-
lögin í landinu. Á allra síðustu árurn hafa fjárhagslegar
skuldbindingar þeirra farið ört vaxandi vegna kaupskyld-
unnar og mikilla innlausna félagslegra íbúða sem ekki
hefur reynst unnt að endurselja. Vandi einstakra sveitar-
félaga vegna skuldbindinga og ábyrgða af félagslega
íbúðakerfinu er þó mjög misjafn og í mörgum þeirra hef-
ur rekstur þess gengið vel þótt ýmsar ábendingar hafi
komið fram um úrbætur á kerfinu. Eigi að síður standa
mörg sveitarfélög framrni fyrir rnjög alvarlegum fjár-
hagsvanda og uppsöfnun skulda vegna kaupskyldunnar,
sem í sumum tilvikum er gjörsamlega óviðráðanlegur.
Fulltrúaráðið leggur til að félagslega íbúðakerfíð verði
tekið til gagngerrar endurskoðunar af nefnd þeirri sem
félagsmálaráðherra hefur falið endurskoðun laga um fé-
lagslegar íbúðir og að vinnu nefndarinnar verði hraðað.
Fulltrúaráðið telur að með skýrslu vinnuhóps sambands-
ins frá í febrúar 1997 sé lagður góður grunnur að upp-
stokkun kerfisins. í meginatriðum er fulltrúaráðið sam-
rnála tillögum vinnuhópsins og beinir eftirfarandi til
nefndarinnar:
• Lagt er til að sveitarfélög geti valið um að vera áfram
í núverandi kerfí með ákveðnum breytingum eða inn-
leiði nýtt kerfi, þar sem veitt verði félagsleg íbúðalán
til einstaklinga.
• Lagt er til að vextir af félagslegum íbúðalánum og
lánunt vegna félagslegra íbúða verði breytilegir, háðir
tekjum kaupenda.
• Lagt er til að tryggingarsjóður vegna byggingargalla
1 36