Sveitarstjórnarmál

Volume

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 21

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 21
UMHVERFISMÁL lögum félaganna eru haldnir aðal- fundir árlega þar sem kosin er stjórn. Félögum ber að halda bók- hald og gera grein fyrir uppgjöri reikninga á aðalfundum. Stjómin fer með ákvörðunarvald milli aðal- funda. Allir löglegir félagsmenn hafa atkvæðisrétt á félagsfundum. sambandi skógræktarfélaga í land- inu og fékk það hlutverk að vera málsvari og hagsmunasamtök þeirra. Aðildarfélögum fjölgaði ört á fimmta áratugnum og voru þau stofnuð víðs vegar um land. Skóg- ræktaráhugi dvínaði í kjölfar áfalls í skógrækt árið 1963 og vonbrigði settu mark sitt á allan þann áratug. Almenn umhverfisumræða fór vaxandi á áttunda áratugnum og nýtt líf færðist í mörg skógræktarfé- lög, ekki síst eftir því sem samvinna við sveitarfélög óx. Eitt umfangs- mesta verkefni á síðustu árum var stórátak árið 1980 í tilefni af 50 ára afmæli Skógræktarfélags Islands og nefndist það Ar trésins. Atakið vakti rnikla eftirtekt, fékk jákvæða um- fjöllun og hafði víðtæk áhrif víða um þjóðfélagið. Myndarlegt fram- hald en með öðrum áherslum hófst árið 1990 þegar hrundið var af stað Landgræðsluskógum. Nú eru starf- andi 53 skógræktarfélög víðs vegar um land með 7100 félagsmenn. Fyrirkomulag félaganna Skógræktarfélögin eru byggð upp sem frjáls félagasamtök með sjálf- stæð lög er lúta almennum reglum eins og önnur félög. Samkvæmt Almenningsgaröar í þéttbýli, eins og Lystigaröurinn á Akureyri, Hellisgeröi í Hafnarfiröi og Skallgrímsgarður í Borgarnesi uröu tlestir til fyrir forustu félaga eöa framsýnna ein- staklinga og eru hvarvetna bæjarprýöi. Myndin er úr Skallagrímsgaröi. Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti íslands, gróöursetur birkitré í minningarlund- inn aö Áshildarmýri í Skeiöahreppi í júni 1996, er 500 ár voru frá því er sunnlenskir bændur gerðu Áshildarmýrarsamþykkt. Til vinstri á myndinni er Bjarni Bjarnason, fv. hæstaréttardómari, heiöursfélagi Árnesingafélagsins í Reykjavík. Skráðar eru fundargerðir en auk þess eru oft haldnir stjórnar- og fræðslufundir eða önnur ákveðin málefni rædd þegar þurfa þykir. Skógræktarfélögin eru aðildarfélög að Skógræktarfélagi Islands og senda fulltrúa sína á aðalfund Skóg- ræktarfélags íslands, sem haldinn er árlega, og hafa þar atkvæðisrétt. Allt funda- og stjómunarstarf á veg- um skógræktarfélaganna er unnið í sjálfboðavinnu. Einstaka félög hafa fastráðna starfsmenn eða ráða í störf tímabundið. Verkefni félaganna Verkefni félaganna eru af ýmsum toga og umfang þeirra er allmis- munandi eftir því hve félögin eru öflug og fjölmenn. Meginverkefni félaganna eru gróðursetningarstörf, umhirða með skóglendum eða svæðum, félagsstarf, fræðsla, kynn- ing á starfsemi og leiðbeiningar. Fá- ein félög stunda uppeldi og fram- leiðslu plantna. Gróðursetning og umhirða Gróðursetning hefur verið helsta verkefni skógræktarfélaganna allt frá fyrstu tíð og svo er enn þann dag 1 47

x

Sveitarstjórnarmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.