Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 27
FRÆÐSLUMAL
árin 1997-2002. Heildarfjárhæð til
styrktar framkvæmdum við grunn-
skólabyggingar úr ríkissjóði nemur
því samtals 2.135 milljónum króna
og skal varið til að greiða allt að
20% af normkostnaði við grunn-
skólabyggingar. Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga skal setja nánari reglur
um norm og úthlutun fjárins að
höfðu samráði við Samband ís-
lenskra sveitarfélaga.
Þótt fyrir liggi að mikið rými
vanti í skóla landsins og að u. þ.b.
70 skólar séu tvísettir vantar upplýs-
ingar um það hvemig sveitarfélögin
hugsa sér að standa að framkvæmd-
um við skólana. Sumarið 1996 stóð
sambandið fyrir könnun á fram-
kvæmdaáformum sveitarfélaga til
ársins 2002 í grunnskólabygging-
um. Samkvæmt innsendum svörum
er nú unnið að stefnumótun varð-
andi grunnskólann í nokkuð mörg-
um sveitarfélögum og geta þau því
ekki svarað fyrirspurnum um það
með hvaða hætti þau muni haga
framkvæmdum næstu sex árin.
Önnur sveitarfélög hafa gert tillögur
að framkvæmdum við grunnskólana
og metið kostnað við þær fram-
kvæmdir. Eftirfarandi er samantekt
á þeim svörum sem borist hafa
reiknað til verðlags í janúar 1997.
„Lausar kennslu-
stofur'* hafa víöa
komið að góðum
notum sem
bráöabirgöalausn
á húsnæðisvanda
skólanna. Myndin
er frá Selfossi.
Ljósm. U. Stef.
2. mynd. Framkvæmdakostnaður viö skólabyggingar til ársins 2002.
Fyrirhugaður heildarfram-
kvæmdakostnaður sveitarfélaga á
ári í grunnskólum:
Ar Milljónir króna
1997 2158,9
1998 2134,8
1999 1923,7
2000 1844,3
2001 1916,7
2002 1996,1
Samtals 11974,5
Ef allar þessar framkvæmdir
sveitarfélaganna í grunnskólunum
væm metnar að fullu styrkhæfar hjá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga þá næmi
kostnaðarþátttaka ríkissjóðs
11974,5 x 20% = 2395,9 milljónum
króna. Rétt er að árétta að inn í
þessar tölur vantar upplýsingar um
framkvæmdaáform frá nokkrum
stórum sveitarfélögum sem hafa tví-
setta skóla og því eiga þessar tölur
eftir að hækka. Þannig er ljóst að
rniðað við þær upplýsingar sem
borist hafa er full þörf á öllu því
fjármagni sem ríkissjóður mun
leggja til gmnnskólaframkvæmda á
næstu ámm.
Fjárfesting í grunnskóla-
byggingum 1985-2002
A 2. mynd er settur saman bók-
færður kostnaður við grunnskóla-
framkvæmdir árin 1985— 1995 og
þær áætlanir til ársins 2002 sem
upplýsingar hafa borist um. I súlu-
ritinu er áætlaður kostnaður sveitar-
félaga í grunnskólabyggingum 1800
milljónir króna árið 1996.
Miðað við þessar upplýsingar
mun fjárfesting sveitarfélaganna í
skólabyggingum á næstu árum
hækka úr um l ,9 milljarði króna á
ári í um 2,1 milljarð króna á ári.
Lokaorö
Að lokum vil ég þakka fyrir svör
við fyrirspurn minni um fram-
kvæmdaáform sveitarfélaga í grunn-
skólum sem ég sendi út sumarið
1996. Hjá Jöfnunarsjóði sveitarfé-
laga er mikill áhugi á að fyrir liggi
sem fyrst upplýsingar um heildar-
framkvæmdaáform sveitarfélaganna
í grunnskólunum til ársins 2002. Eg
vil því biðja þau sveitarfélög sem
hafa ekki getað svarað fyrirspurn
sambandsins um framtíðaráform
sveitarfélagsins að koma þeim upp-
lýsingum til greinarhöfundar þegar
þær liggja fyrir.
1 53