Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 28
FRÆÐSLUMAL
Engjaskóli — grunnskóli framtíðarinnar!
Sigrún Magnúsdóttir, formaður frœðsluráðs Reykjavíkur
Engjaskóli verður tekinn í notkun hinn 1.
september 1997. Bygging Engjaskóla markar
tímamót í byggingu skólamannvirkja í
Reykjavík fyrir margra hluta sakir.
1. Unnin var nákvæm forsögn að byggingu
og sveigjanlegu skólastarfi í unt það bil 370
bama einsetnum, heildstæðum skóla. Meðal-
bekkjarstærð í skólanum verður því um 17-18
nemendur.
2. Efnt var til tveggja þrepa opinnar hug-
myndasamkeppni, þar sem fyrst og fremst var
leitað eftir tillögum um skóla nýrrar aldar, byggingu
sem væri verðugur rammi fyrir 6-7 stunda vinnudag
nemenda. Eftir þremur verðlaunatillögum verða byggðir
Engja-, Víkur- og Borgaskóli.
3. Keppendum var gert að hanna byggingu, sem væri
um 4.500 m2 og hámark kostnaðar var sett 500 millj. kr.
4. Gert er ráð fyrir að þóknun til arkitekta lækki ef
byggingin fer fram úr áætlun.
5. 54 tillögur bárust í fyrra þrep samkeppninnar, sem
er metþátttaka í samkeppni hér á landi.
6. Skólinn er byggður allur í einum áfanga
og verður því tekinn í notkun fullbúinn 1.
september nk.
Skóli - umferóaröryggi
Eitt af fyrstu verkum nýskipaðs skólamála-
ráðs Reykjavíkur sumarið 1994 var að taka
til umföllunar skólamál í Borgarholtshverf-
um. Borgarholtshverfin liggja norðan við
Grafarvogshverfm.
Engjahverfi er eitt fimm íbúðahverfa í Borgarholti.
Hin eru Rima-, Víkur-, Borga- og Staðahverfi. Einnig er
miðhverfið Spöngin í Borgarholti svo og fjölbrautaskóli
fyrir Grafarvog, Borgarholt og Mosfellsbæ. I Spönginni
er m.a. gert ráð fyrir verslunum, bókasafni, kirkju,
heilsugæslustöð, kvikmyndahúsi og sundlaug.
Deiliskipulag hverfanna í Borgarholti byggir á heildar-
skipulagi sem unnið var af Teiknistofunni Túngötu 3 á
árunum 1988 til 1991. Eitt af markmiðum skipulagsins
1 54