Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Qupperneq 29
FRÆÐSLUMÁL
var að takmarka umferð gegnum hverfin, þannig að
gönguleiðir skólabama yrðu öruggari.
Opin samkeppni
Skólamálaráð samþykkti tillögu formanns 3. október
1994 um að leggja til við borgarráð að efna til opinnar
samkeppni um hönnun einsetins, heildstæðs gmnnskóla
í Engjahverfi. Samkeppnin yrði tveggja þrepa og niður-
staða hennar nýtt til að hanna jafnframt skóla í Víkur-
og Borgahverfi. Borgarráð samþykkti þessa tillögu 18.
október 1994 og skipaði jafnframt dómnefnd. Borgarráð
tilnefndi eftirtalda í dómnefndina: Sigrúnu Magnúsdótt-
ur borgarfulltrúa, sem formann dómnefndar, Steinunni
Ámiannsdóttur skólastjóra og Viktor A. Guðlaugsson,
forstöðumann skólaskrifstofu.
Arkitektamir Guðmundur Kr. Guðmundsson og Jak-
ob Líndal voru tilnefndir af stjórn Arkitektafélags Is-
lands. Tæknilegur ráðgjafi var Guðmundur Pálmi Krist-
insson, forstöðumaður byggingadeildar borgarverkfræð-
ings, og ritari Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri borgar-
verkfræðings. Trúnaðarmaður dómnefndar var Sigurður
Harðarson, arkitekt FAI.
Ný sjónarmiö í skólamálum
Hverfin þrjú, Engja-, Víkur- og Borgahverfi, sem
samkeppnin náði til, em af heppilegri stærð með tilliti til
skólastærðar. Fjöldi nemenda í skólunum verður frá
350-400, þannig að hver árgangur verður um 35-40
nemendur. Tveir bekkir verða þá í árgangi og um 17-20
nemendur í bekk, sem er kjörstærð bekkjar.
Borgaryfirvöldum fannst áhugavert að efna til hug-
myndasamkeppni um þessa skóla, þar sem langt er síðan
slík samkeppni um skólabyggingar hefur verið haldin,
og þó alveg sérstaklega vegna nýrra sjónarmiða í skóla-
málum, sem byggja á einsetningu og lengri viðveru
bama í skólum. Jafnframt var lögð áhersla á að gætt yrði
fyllstu hagkvæmni með tilliti til kostnaðar.
Fyrra þrep samkeppninnar var sem sagt opin hug-
myndasamkeppni þar sem fyrst og fremst var leitað eftir
hugkvæmni og nýsköpun keppenda að skóla framtíðar-
innar, þ.e.a.s. einsetnum, heildstæðum (þ.e. skóla með
öllum bekkjardeildum grunnskólans), tveggja hlið-
stæðna grunnskóla (en með því er átt við að tveir bekkir
séu í hverjum árgangi) með lengda viðveru skólabama
(heilsdagsskóla) og með aukna áherslu á verk-, list- og
tæknigreinar.
Keppnisgögn fyrir fyrra þrepið vom afhent 2. desem-
ber 1994 og var skilafrestur tillagna 25. janúar 1995.
Alls bámst 54 tillögur og uppfylltu þær allar skilyrði
keppninnar.
Mat dómnefndar
í mati sínu á einstökum tillögum í báðum þrepum
samkeppninnar lagði dómnefnd einkum til grundvallar
eftirtalin sjónarmið:
a. Heildarlausn frá sjónarhóli kennslufræði og bygg-
ingarlistar.
b. Hagkvæmni í uppbyggingu, rýmisnýtingu og efn-
isvali.
c. Hugkvæmni og nýsköpun í hönnun einsetins skóla.
d. Skipulag skólalóðar, m.a. með tilliti til öryggis
skólabarna og skjólmyndunar, og tengingu hennar og
skólabyggingarinnar.
e. Gæði húsnæðis með tilliti til langrar viðveru nem-
enda og starfsfólks.
f. Byggingar-, viðhalds- og rekstrarkostnað.
Þá voru keppendur hvattir til að leita nýrra leiða í til-
lögum sínum, sem miða að því að skólinn geti í senn
verið góður vinnustaður nemenda og starfsfólks skólans,
með áherslu á verk- og listgreinar, og jafnframt vistlegur
dvalar- og tómstundastaður utan hefðbundins skólatíma,
t.d. með nýtingu félagsaðstöðu, sérgreinastofa, skólalóð-
arinnar o.s.frv. Dómnefndin taldi æskilegt að skólahús-
næðið væri einnig hannað með það í huga að íbúar
hverfisins ættu sem greiðastan aðgang að því utan hefð-
bundins skólatíma.
Forsögn dómnefndar um einsetinn, heild-
stæöan skóla
Eftirfarandi setti dómnefnd m.a. fram í keppnislýsingu
á haustdögum 1994 um einsetinn, heildstæðan skóla:
„Heildstæður grunnskóli merkir að þar fari fram
kennsla í öllum árgöngum skyldunámsins, sem spannar
aldurinn 6-15 ára í 10 bekkjardeildum. Einsetinn grunn-
skóli er skóli, þar sem allir nemendur hefja nám árdegis
og skóladagur nemenda er samfelldur.
í ritinu „Til nýrrar aldar“, sem gefið var út árið 1991,
er einsetinn, samfelldur skóli skilgreindur þannig að
skóladagur allra nemenda grunnskóla verði 6-7 klst. Hér
yrði um skylduviðveru að ræða og starfsdagurinn á að
skiptast í skipulegt nám, frjálst starf, matarhlé og önnur
hlé milli kennslustunda.
I skýrslu nefndar um mótun menntastefnu frá júní
1994 er einnig talað um að grunnskólanemendur eigi
kost á lengdri viðveru í skólanum við þroskandi við-
fangsefni utan lögbundinnar kennslu.
Kennslustofur
Æskilegt er að hver árgangur upp í 8. bekk hafi sam-
liggjandi heimastofur. í tengslum við kennslustofur þarf
að vera rými sem nýta má t.d. í hópvinnu, ítamám, við
sérstök verkefni nemenda, sem leiksvæði yngri barna
o.fl. Fagstofur eru heppileg lausn fyrir nemendur 8.-10
bekkjar.
Sérgreinastofur, s.s. tölvuver, stofur fyrir hand- og
myndmennt, tónmenntastofa, heimilisfræðistofa og
bókasafn, þurfa að vera aðgengilegar öllum nemendum
skólans. í einsetnum skóla hljótum við að gera ráð fyrir
aukinni kennslu í hand-/verkmennt og vel mætti hugsa
1 55