Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Blaðsíða 46
BYGGÐAMAL
ICE-REGIONS verkefniö getur veriö einstakt tækifæri til þess aö
opna dyr aö samstarfi og styrkjum úr sjóöi Evrópusambandsins
til nýsköpunar, rannsókna og þróunar.
skóla íslands og Kynningarmiðstöð
Evrópurannsókna hinir formlegu
umsækjendur. Ohætt er að segja að
umsækjendur hafi fengið að kynnast
hinu þunga skrifstofuveldi ESB því
biðin eftir svari var löng. Oformlegt
en jákvætt svar barst í lok febrúar
1996 en formlegt skriflegt svar kom
ekki fyrr en í júlí sl. Samningar voru
undirritaðir í desember sl. og er
ICE-REGION verkefnið nýlega
hafið. Umsóknar- og samningaferlið
tók því rúmt ár.
Forverkefni
Starfshópar á Suðurlandi og
Norðurlandi vestra unnu að undir-
búningi verkefnisins frá því á sl.vori
og hafði því verið lögð talsverð
vinna og fjármagn í verkið þrátt fyr-
ir að það væri enn ekki formlega
hafið. Þannig var gerð eins konar
forathugun á svæðunum sl. sumar,
en henni stjórnaði Örn D. Jónsson
félags- og landfræðingur. Gerð var
samantekt á
helstu bak-
grunnsupplýsing-
um um svæðin
og dregnar frant í
skýrslu stað-
reyndir um fólks-
fjöldaþróun, bú-
ferlaflutninga,
aldursskiptingu
og atvinnuþróun.
Þá var spurn-
ingakönnun Iögð
fyrir forsvars-
menn um 200
fyrirtækja á
Norðurlandi
vestra og á Suð-
urlandi. Undir-
búningsvinna af
þessu tagi var
forsenda fyrir því að verkefnið
fengist samþykkt og auk þess telja
stjórnarmenn verkefnisins og ESB
nauðsynlegt að samsvarandi úttekt
verði gerð á stoð-
kerfi atvinnulífs-
ins í Reykjavík og
á fyrirtækjum í út-
völdum iðngrein-
um á höfuðborg-
arsvæðinu. Þeirri
vinnu er nú að
ljúka. í fyrirtækja-
könnuninni var
m.a. spurt um
fjölda og bak-
grunn starfs-
manna, veltu og
afkomu fyrirtækj-
anna síðustu þrjú
árin, helstu mark-
aði, markaðssetn-
ingu og helstu
samkeppnisaðila,
og að auki voru
stjórnendur fyrir-
tækjanna spurðir
urn framtíðarsýn
og nýsköpunar-
áfonn. Fyrstu nið-
urstöður eru nú að
líta dagsins ljós
og verða þær
kynntar síðar, en
fyrst og fremst verða þær notaðar
sem grunnur að þeirri vinnu sem
framundan er í hinu evrópska ICE-
REGIONS verkefni.
Evrópskt sjónarhorn
Greinargóð forskrift er gefin af
ESB hvað varðar verkþætti, verk-
efnistíma og þá aðila sem að verk-
efninu mega koma. Því er skipt í
þrjú verkstig sem hvert um sig tekur
þrjá til tólf mánuði í framkvæmd. A
fyrsta stigi fer fram skilgreining á
verkinu þar sem áherslusvið eru
greind, stjórn er skipuð, auk þess
sem vinnulag og nákvæm fram-
kvæmdaáætlun er mörkuð. Á öðru
stigi er unnið að stefnumótun á sviði
nýsköpunar og tækniyfirfærslu á
þeim sviðum sem ákveðið hefur
verið að leggja áherslu á. Samstarfs-
möguleikar eru athugaðir, jafnt inn-
anlands sem og í Evrópu. Þriðja
stigið er síðan framkvæmdastig þar
sem áætlunum, sem undirbúnar
voru á öðru stigi, er hrint í fram-
kvæmd og mótaðar verða tillögur
um það hvemig standa megi betur
að uppbyggingu atvinnulífs á sviði
nýsköpunar og tækni. Hin evrópska
vídd verkefnisins felst m.a. í því að
ESB setur skilyrði fyrir því að leitað
sé til viðurkenndra ráðgjafarfyrir-
tækja í Evrópu, sem eiga að vera
Á undanförnum tveimur árum hafa íslensk fyrirtæki og stofn-
anir fengiö um 800 milljónir króna til samstarfsverkefna úr
sjóöum ESB, þannig aö til mikils er að vinna aö kynna sér þá
möguleika sem felast í samstarfinu. Sóknarfærin eru mörg.
I 72