Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 50
IÞROTTIR OG UTIVIST
Finnur Magnús Gunnlaugsson, skólastjóri Lundarskóla, tekur viö púlsmæli aö gjöf fyrir
hönd skólans. Brynjar Halldórsson fylgist meö úr ræðustóli. Ljósm. Pröstur Aðalbjarn-
arson.
kaffi fyrir hátíðargesti á eftir.
„Aðalbjöm" hefur nú þegar sann-
að gildi sitt og er mikil lyftistöng
fyrir íþróttalífið í skólanum og hafa
krakkamir okkar sýnt mikinn áhuga
og staðið sig vel á hverju skólamót-
inu á fætur öðru í vetur og til gam-
ans má geta þess að þrír piltar úr
Lundi voru nú nýverið valdir í úr-
tökulið fyrir unglingalandsliðið í
körfubolta.
íþróttasalurinn á Kópa-
skeri
Opnunarhátíð íþróttasalarins á
Kópaskeri, sem er í öðrum enda
Pakkhússins á staðnum, var svo
haldin 22. mars sl. og kærkomið að
fá þá aðstöðu í notkun því að við
gátum ekki leyft okkur að aka böm-
unum úr Kópaskersskóla í „Aðal-
bjöm“ nema tvisvar í mánuði hverj-
um hópi í íþróttir í vetur vegna gíf-
urlegs aksturskostnaðar því samfara.
Hver ferð fyrir börn frá Kópaskeri
er 60 km fram og til baka og 90 km
fyrir bömin af Sléttunni.
Pakkhúsið, sem er 34 ára gamalt,
er nú fullbúið til íþróttakennslu, en
hingað til hafa nemendur á Kópa-
skeri fengið afnot af mötuneytissal
sláturhússins fyrir sína íþróttaiðkun.
Hér er því um byltingu að ræða.
Pakkhússalurinn er liðlega 280 m:,
of lágt er þó til lofts til að hann geti
talist „löglegur" sem keppnisvöllur í
blaki, en hann nægir okkur fyllilega
til þeirra nota, sem hann er ætlaður,
og við erum hæstánægð með hann.
Búningsaðstaðan er góð og áhorf-
endasvæði á svölunum þar fyrir
ofan.
Dagskráin á opnunarhátíðinni,
sem unnin var og kynnt af greinar-
höfundi, var sem hér segir:
Kirkjukór Snartarstaðakirkju söng
þrjú lög undir stjórn James Storm
organista.
Ingunn St. Svavarsdóttir sveitar-
stjóri flutti ávarp.
Séra Eðvarð Ingólfsson blessaði
húsið.
Tónöx, nemendur tónlistarskóla
Öxarfjarðarhéraðs, fluttu tónlist
undir stjóm Einars A. Melax skóla-
stjóra.
Þorbjörg Bragadóttir, kennari í
Lundi, stjórnaði blokkflautuleik
yngri nemenda.
Nemendur úr Lundarskóla og
grunnskólanum á Kópaskeri kynntu
íþróttir með því að sýna stökk, bad-
minton og íslenska glímu og fleira
undir stjórn skólastjóranna Finns
Magnúsar Gunnlaugssonar og Höllu
Óladóttur ásamt leikfimikennar-
anum, Kristínu Guðbjömsdóttur.
Rúnar Þórarinsson oddviti tók við
húsinu úr höndum Trémálsmanna
og kynnti fyrirkomulag á notkun
þess.
Leikskólabörn úr Krílakoti og
Lundarkoti sungu nokkur lög undir
stjóm Elísabetar Hauge kennara.
Sex unglingsstúlkur frumfluttu
gjörninginn „Vorkomuna“, skap-
andi dansverk, undir stjóm Asu Jó-
hannesdóttur, sem sarndi verkið;
tónlistina samdi Einar A. Melax.
Sýningin fékk góðar viðtökur.
Loks var boðin hressing og sáu
nemendur úr grunnskólanum á
Kópaskeri um það undir stjóm Teits
Atlasonar leiðbeinanda.
Jón Karl Snorrason og Sæmundur
Jóhannesson voru jafnframt með
ljósmyndir úr héraðinu til sölu og
sýnis á veggjum salarins.
Um 260 manns á hátíóinni
Um 260 manns sóttu opnunarhá-
tíðina, sem heppnaðist vel og var
okkur öllum til ánægju og gleði.
Um kvöldið var svo haldin Góu-
gleði og fyrsta Pakkhúsballið og fór
það vel fram.
Það hefur verið ánægjulegt að
komast að raun um hve mikill og al-
mennur áhugi hefur verið fyrir
byggingu íþróttasalanna. Það sést
best á allri þeirri sjálfboðavinnu
sem unnin var á báðum stöðunum
og gjafafé hinna ýmsu félagasam-
taka, sem er umtalsvert í ekki stærra
héraði.
Rekstur iþróttasalanna tekur auð-
vitað sinn toll, en með tilkomu hita-
veitu verður hann minni. Við teljum
að við höfum ótvírætt verið að
styrkja byggð við Öxarfjörð með
sölum þessum.
1 76