Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 51
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
Sundlaug á Egilsstöðum
Guðmundur Pálsson bœjartœknifrœðingur
Glæsileg og notaleg sundlaug var
tekin í notkun á Egilsstöðum þann
17. júní 1995, en hún leysir af hólmi
eldri sundlaug, 6 x 12 metra, sem
notuð hafði verið um 20 ára skeið.
Nýja sundlaugin er byggð sunnan
við íþróttahúsið og rekin í samvinnu
við það. Undirbúningur hófst þegar
íþróttahúsið var teiknað 1979 og var
þá gert ráð fyrir innilaug. Ekkert
gerðist þó fyrr en 1987 en þá hafði
verið ákveðið að útilaug skyldi það
vera enda hvar ef ekki hér þar sem
sumrin eru oftast sólrík og hlý.
Fyrsti hluti byggingarsögunnar er
því frá 1987 en þá voru byggðir
búningsklefar sem eru í tengslum
við starfsemi íþróttahússins. Síðan
koll af kolli, steypt sundlaugarker,
aðstöðuhús, en lokaátakið hófst
sumarið 1993 með verklokum í júní
1995. Alls er því byggingarsagan
átta ár.
Sundlaugin er svokölluð yfirfalls-
laug, 12,5 x 25 metrar að stærð,
með fimm keppnisbrautum. Sérstök
skábraut er niður í hana fyrir hjóla-
stóla og tvennar tröppur, með hand-
riði og því auðveld þeim sem erfitt
eiga um gang að komast niður í og
upp úr. Bamalaug, 50 sm djúp, er í
tengslum við laugina og gengt á
rnilli. Til hliðar er sérlaug og vatns-
rennibraut. Tveir heitir pottar eru
við laugarbakkann og er annar með
vatns- og loftnuddi.
Heildarkostnaður við þessa fram-
kvæmd var 1. janúar 1996 um 113
milljónir króna. Veturinn 1996 var
keypt yfirbreiðsla á aðallaug og
reyndist spamaður vatns við notkun
hennar vera allt að 20%. Meðal-
notkun á heitu vatni er nálægt 150
Sundlaugin, í baksviöi myndarinnar hús Menntaskólans á Egilsstööum og Fellin í
fjarska. Myndina tók Jónas Þór Jóhannsson.
Greinarhöfundur
á skrifstofu sinni
hjá Egilsstaðabæ.
m3 á dag. Sundlaugin hefur verið
mikið notuð frá upphafi og árið
1996 komu um það bil 60 þúsund
gestir.
Arkitektastofan Ormar Þór og
Örnólfur Hall hannaði laugina,
Verkfræðistofa Austurlands reikn-
aði út burðarþol og Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen lagnir, en
tæknideild Egilsstaðabæjar hafði
umsjón með verkinu í heild.
1 7 7