Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Page 59
STJORNSYS L A
Skipurit Mosfellsbæjar
Bæjarstjóri
Forstöðumaður
félagsmálasviðs
Forstöðumaður
fjármála-og
stj óm s^slusvið:
Forstöðumaður
fræðslu- og
menningarsviðs
Forstöðumaður
tækni - og
umhverfissviðs
Bæjarstjóm
Bæjarráð
Atvinnu-
þróunarsjóður
Sarnstarfsráð
og nefndir
Alm amavaman.
Kjós&rsveeðis
BláQallanefnd
Fjblskylduáðgjöf
Mosf ogRvk
H eilbngðtsnefnd
Kjósarsvttðis
Skóta- ogbyggaef.
Borgarholtcckóla
Starfskjora- og
starfsm atsnefnd
Þj ónustuhópur
aldraðra
Stjómir og
fulltniaráð
Almenrings-
vagiar bs.
Brunabótafélag
lslands
Samtök sveitarfél. á
hofuðborgarcv.
Sambtíil flveitarfél
Launancfnd
Sorpa bc.
Skipurit Mosfellsbæjar.
unum á meðal bæjarbúa. Fjalla
um kvartanir sem berast vegna
þjónustunnar.
• Að gera tillögur að fjárhagsáætl-
un til bæjarstjórnar um þá liði
hennar sem falla undir verksvið
nefndarinnar í samstarfi við við-
komandi forstöðumenn. Nefndin
hefur eftirlit með að fjárhagsáætl-
unin sé haldin.
• Að vera bæjarstjóm að öðm leyti
til ráðuneytis í viðkomandi mála-
flokki.
Hlutverk forstöðumanna sviða er
að samræma, hafa yfirumsjón með
og bera ábyrgð á allri starfsemi inn-
an viðkomandi sviðs. Forstöðumenn
bera ábyrgð gagnvart bæjarstjóra á
öllum stjórnaraðgerðum og taka
ákvarðanir í samræmi við það. For-
stöðumenn undirbúa fundi nefnda
sem tilheyra þeirra sviði í samstarfi
við formenn og framkvæma ákvarð-
anir nefnda eftir að bæjarstjóm hef-
ur samþykkt þær. Þeir em ráðgjafar
nefndarmanna og bera ábyrgð á að
þeir fái þær upplýsingar og gögn
sem þeir þurfa til að geta rækt hlut-
verk sitt. Mynd á bls. 186 sýnir
nokkur dæmi um hlutverk nefnda
annars vegar og embættismanna
hins vegar varðandi einstök verk-
efni.
Næstu skref
Næstu skref varðandi stjómkerfis-
breytinguna eru að endurskoða
innra skipulag einstakra sviða með
tilliti til þeirra verkefna sem þar
hafa verið skilgreind. Verður í því
sambandi horft til þeirrar þjónustu
sem veita á og hvernig hún getur
orðið sem aðgengilegust fyrir íbúa
bæjarins. Er þá gengið út frá því að
þjónustan verði samræmd, þannig
að bæjarbúinn (viðskiptavinurinn)
þurfi ekki að fara á marga staði til
að fá upplýsingar og úrlausn sinna
mála. Með þetta að markmiði verða
vinnuferlar og verkaskipting starfs-
manna endurskoðuð og starfslýsing-
um breytt til samræmis við það.
Einnig verður unnið að starfs-
mannastefnu fyrir bæjarfélagið þar
sem kveðið verður á um réttindi og
skyldur starfsmanna, ásamt því
hvemig staðið verður að þjálfun og
stuðningi við þá. Hér er að mínu
mati um mjög mikilvægan þátt að
ræða þar sem erfitt er að veita góða
þjónustu án góðs starfsfólks.
Mikilvægt er að bæjarstjórn í
samráði við nefndir og embættis-
menn hefji vinnu við að skilgreina
betur einstaka þjónustuþætti með
tilliti til þjónustustigs og þeirra fjár-
muna sem veita á til viðkomandi
málaflokka. Með því eru sett fram
þau markmið sem stefnt skal að og
þannig er tryggt að allir stefni í
sömu áttina. Mikilvægt er að þessi
markmið séu mælanleg, þannig að
hægt verði að fylgjast með því
hvemig gengur að ná þeim.
1 85