Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Síða 61
KYNNING SVEITARSTJORNARMANNA
reynslusveitarfélög 1995-1996. Hún
var formaður starfshópa sem skip-
aðir voru til að semja reglur um út-
hlutun styrkja út Atvinnuleysis-
tryggingasjóði til átaksverkefna á
vegum sveitarfélaga á árunum 1995
og 1996.
Hún var ritari sifjalaganefndar frá
1988-1992 og vann í því sambandi
að gerð frumvarpa til bamalaga nr.
20/1992 og hjúskaparlaga nr.
31/1993.
Árin 1989-1992 hafði Anna um-
sjón með kirkjumálum í ráðuneyt-
inu og árið 1993 vann hún að mál-
efnum embætta sýslumanna og hér-
aðsdómstóla. Auk þess undirbjó hún
á þessum árum fullgildingu alþjóða-
samninga sem snerta ráðuneytið,
t.d. samnings Sameinuðu þjóðanna
um réttindi bamsins.
Hún hefur setið í og veitt for-
mennsku fjölmörgum nefndum sem
skipaðar hafa verið til að fjalla um
málefni kirkjunnar, s.s um starfskjör
presta, kosningar innan kirkjunnar,
eignir kirkjunnar og til að gera til-
lögur að fmmvörpum og reglugerð-
um um málefni kirkjunnar. Hún átti
á árinu 1993 sæti í nefnd sem end-
urskoðaði lög um málflytjendur.
Anna var starfsmaður nefndar
sem skipuð var 1995 til að endur-
skoða lög um atvinnuleysistrygg-
ingar og var í maí 1996 skipuð for-
maður nefndar sem á að endurskoða
lög um vemd bama og ungmenna.
Anna hefur sótt fjölmarga fundi
erlendis, m.a. um sifjarétt, stjómar-
farsrétt, lagasamvinnu, atvinnuleys-
istryggingar og vinnumiðlun. Hún
átti sæti í sérfræðinganefnd Evrópu-
ráðsins um sifjarétt frá 1987-1993
og var kjörin í vinnuhóp nefndar-
innar árið 1992. Hún sat á árinu
1995-1996 í vinnuhópi á vegum
Norrænu ráðherranefndarinnar sem
skipaður var til að gera tillögur um
endurskoðun á norrænni samvinnu á
sviði heilbrigðis- og félagsmála.
Anna er gift Halldóri Gíslasyni
arkitekt og eiga þau tvö böm, fædd
1983 og 1985?
Tryggvi Jónsson
íorstöðumaður tækni-
og umhverfissviðs
Mosfellsbæjar
Tryggvi Jóns-
son er forstöðu-
maður tækni- og
umhverfissviðs
Mosfellsbæjar.
Hann er fædd-
ur í Reykjavík
11. nóv. 1954 og em foreldrar hans
Guðmunda Sigurðardóttir hjúkmn-
arfræðingur og Jón Viðar Tryggva-
son múrari.
Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Tjömina árið
1975, B.S.-prófi frá verkfræðideild
Háskóla íslands árið 1980, M.S.-
prófi í byggingaverkfræði árið 1983
frá University of Colorado og prófí
úr rekstrar- og viðskiptanámi frá
endurmenntunardeild Háskóla Is-
lands 1996.
Tryggvi hefur unnið við verk-
fræðistörf hjá Almennu verkfræði-
stofunni hf. 1980-1982, hjá Fjöl-
hönnun hf. 1984-1985, hjá Línu-
hönnun hf. 1993-1996 og loks við
verkfræði- og stjórnunarstörf hjá
verktakafyrirtækinu Krafttak sf.
m.a. við jarðgangaframkvæmdir
fyrir Blönduvirkjun og í Ólafsfjarð-
armúla og við flugbrautargerð á Eg-
ilsstöðum, auk tilboðsgerðar. Hann
hefur skrifað greinar í ýmis fagtíma-
rit.
Hann var ráðinn bæjarverkfræð-
ingur í Mosfellsbæ 1. september
1996 og forstöðuinaður tækni- og
umhverfissviðs er nýtt stjórnkerfi
var tekið upp í lok síðasta árs.
Maki hans er Ingveldur Braga-
dóttir íþróttakennari og eiga þau
þrjár dætur.
BDMRE
BOMAG er leiðandi framleiðandi á þjöppum og völturum.
Við eigum eftirfarandi tæki á lager og til afgreiðslu STRAX:
VÉLHNALLA 60 og 71 kg. JARÐVEGSÞJOPPUR 92 - 137 -
190 og 210 kg. VALTARA, 600 kg.
Útvegum með skömmum fyrirvara:
Allar stærðir af völturum og nýja eða
notaða S0RPHAUGATR0ÐARA.
0TRULEGA HAGSTÆTT VERÐ!
17
Ráðgjöf ■ Sala ■ Þjónusta
Skútuvogi 12a -104 Rvk - Sími 581 2530
1 87