Sveitarstjórnarmál

Årgang

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 62

Sveitarstjórnarmál - 01.08.1997, Side 62
KYNNING SVEITARSTJÓRNARMANNA □ A G R Auglýsing um Svæðisskipulag miðhálendis Islands 2015 Sumkvæmt 17. og 18. gr. skipulagslugu nr. 19/1964 er hér með lýst eftir at- hugasemdum við tillögu að Svæðisskipulagi miðhálendis fslands 2015. Skipulagstillagan nær yfir alla almenna landnotkun á miðhálendi íslands, en á skipulagssvæðinu er að jafnaði ekki föst búseta. Skipulagssvæðið markast í aðalatriðum af hnu, sem dregin er milli heimalanda og afrétta á miðhá- lendinu. Tillaga að Svæðisskipulagi miðhálendis íslands liggur frammi á eftirfarandi stöðum frá 6. júní til 10. október 1997 á skrifstofutíma. Jafnframt er hægt að skoða tillöguna á heimasíðu Skipulags ríkisins, http://www.islag.is. 1. Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166, Reykjavík. 2. Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3, Reykjavík. 3. Héraðsnefnd Borgarfjarðarsýslu, skrifstofu Reykholtsdalshrepps, Reyk- holti. 4. Héraðsnefnd Mýrasýslu, bæjarskrifstofunni Borgarbyggð, Borgar- braut 11, Borgarnesi. 5. Héraðsnefnd Vestur-Húnavatnssýslu, skrifstofu Hvammstangahrepps, Klapparstíg 4, Hvammstanga. 6. Héraðsnefnd Austur-Húnavatnssýslu, Brautarhvanuni, Blönduósi. 7. Héraðsnefnd Skagafjarðar, stjórnsýsluhúsinu, Skagfirðingabraut 21, Sauðárkróki. 8. Héraðsnefnd Eyjafjarðar, Strandgötu 29, Akureyri. 9. Héraðsnefnd Suður-Þingeyjarsýslu, Útgarði 1, Húsavík. 10. Héraðsnefnd Múlasýslna, Skólabraut 10, Stöðvarfirði. 11. Sýslunefnd Austur-Skaftafellssýslu, bæjarskrifstofu Hornafjarðar, Hafn- arbraut 27, Höfn. 12. Héraðsnefnd Vestur-Skaftafellssýslu, Klausturvegi 10, Kirkjubæjar- klaustri. 13. Héraðsnefnd Rangárvallasýslu, skrifstofu Rangárvallahrepps, Lauf- skálum 2, Hellu. 14. Héraðsnefnd Árnessýslu, bæjarskrifstofum Selfosskaupstaðar, Austur- vegi 10, Selfossi. 15. Sýslumanninum á ísafirði, stjórnsýsluhúsinu, Hafnarstræti 1, ísafirði. 16. Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, Vesturbraut lOa, Reykjanesbæ. Skriflegum athugasemdum skal skila fyrir 10. október 1997 til samvinnu- nefndar um Svæðisskipulag miðhálendis íslands hjá Skipulagi ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþvkkir til- lögunni. Samvinnunefnd um SvæSisskipulag miðhálendis Islands Skipulagsstjóri ríkisins J Unnur V. Ingólfsdóttir forstöðumaður félags- málasviðs Mosfellsbæjar Unnur V. Ing- ólfsdóttir félags- málastjóri hefur verið ráðin for- stöðumaður fé- lagsmálasviðs Mosfellsbæjar. Félagsmálasvið hefur umsjón með félagsþjónustu Mosfellsbæjar sem og rekstri íbúða aldraðra að Hlað- hömrum. Unnur er fædd 15. janúar árið 1952 og uppalin í Reykjavík. For- eldrar hennar eru Alfheiður Unnars- dóttir og Ingólfur Jóhannsson. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskól- anum við Hamrahlíð árið 1972 og námi í félagsráðgjöf frá Háskólan- um í Lundi í Svíþjóö árið 1979. Að loknu námi starfaði Unnur á Kleppsspítala, Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri og á geðdeild Borg- arspítalans. I september 1987 hóf hún störf sem félagsmálastjóri í Mosfellsbæ og varð forstöðumaður félagsmálasviðs við stjórnkerfis- breytinguna hinn 1. september sl. Unnur hefur sótt fjölda nám- skeiða í tengslum við starf sitt á sviði félagsþjónustu, þar með talin námskeið fyrir stjómendur í félags- þjónustu á vegum NOPUS sem er háskóli rekinn af norrænu ráðherra- nefndinni. Unnur var formaður Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa tímabilið 1994 til 1996 og situr í stjórn Bandalags háskólamanna. Unnur er gift Guðjóni Magnús- syni umhverfisfræðingi sem starfar hjá Landgræðslu ríkisins og eiga þau einn son. Auk þeirra þriggja forstöðumanna sviða sem hér hafa verið kynntir er Asgeir Eiríksson forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs. Hann hefur starfað hjá Mosfellsbæ frá árinu 1991 og var kynntur í 6. tbl. Sveitarstjómarmála 1991. 1 88

x

Sveitarstjórnarmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.