Sveitarstjórnarmál

Árgangur

Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Síða 9

Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Síða 9
AFMÆLI Trjáiðnaðarfyrirtækið íslenskur harðviður. Fyrirtækið þurrkar og sagar harðvið og framleiðir úr honum hágæðaparket undir vöruheitinu ALDIN. að öldruðunt búið á svæðinu og að þeir njóti þeirrar bestu þjónustu sem gerist. Félags- og skólaþjónusta Þingeyinga er rekin sameig- inlega af sveitarfélögunum og sinna þau einnig máleín- um fatlaðra samkvæmt sérstökum þjónustusamningi við rikisvaldið í gegnum þá sameiginlegu stofnun sína. Böm á Húsavík geta stundað nám allt frá leikskóla og upp í gegnum framhaldsskóla í heimabyggð og er það tvímælalaust ein af sterkum stoðum búsetu í bænum. Menningar- og félagslíf Menningarlíf hefúr alltaf verið blómlegt á Húsavík og í sýslunni allri. Leikfélag Húsavíkur hefúr löngum þótt standa framarlega í hópi áhugaleikfélaga þessa lands. Leikfélagið á 100 ára afinæli á þessu ári og fagnar því með uppsetningu á tveimur leikverkum, íslandsfrumsýn- ingu í báðum tilfellum. Tónlistarlíf er fjölbreytt, tónleikahald, kórar og hljóm- sveitir krydda menningarlifið. Tónlistarskólinn er starf- ræktur í nánum tengslum við grunnskólann og er aðsókn að skólanum ávallt mjög góð. Án efa hefúr þetta sam- starf skapað þann jarðveg sem hið öfluga tónlistarlíf í bænum er sprottið úr. Safnahús Þingeyinga hýsir byggðasafn, skjalasafn, bókasafn, náttúrugripasafn, listasafn og sjóminjasafn. Á safninu er góður sýningarsalur þar sem myndlistarmenn sýna verk sín og hefur Safnahúsið um árabil verið ein traustra stoða menning- arstarfseminnar í bænum. Fyrsti áfangi nýs stjórnsýsluhúss tekinn í notkun í byrjun yfirstandandi árs. I þessu húsi var Tré- smiðjan Borg starfrækt til margra ára. Helstu verkefni bæj- arsjóðs og fyrir- tækja Á undanförnum árum hafa miklir fjármunir verið lagðir í uppbyggingu grunnskólamannvirkja og er þeim nú að mestu lokið og er sú aðstaða með því besta sem gerist. Þær fram- kvæmdir hafa einnig tengst uppbyggingu aðstöðu tón- listarskólans sem rekinn er í sama húsnæði og nánu sam- starfi eins og fram hefur komið. Nemendafjöldi í grunnskólanum er um 430 og í tónlistarskólanum tæp- lega 300. 1 35

x

Sveitarstjórnarmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sveitarstjórnarmál
https://timarit.is/publication/1063

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.