Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Qupperneq 33
ALMANNAVARNIR
Þó svo að híbýli fólks hafi ekki hrunið 17. og 21. júní sl. í jarðskjálftunum á Suðurlandi sem náðu allt að 6,6 stigum á Richterkvarða
geta að mati vísindamanna orðið mun stærri skjálftar á íslandi og haft mun meiri og víðtækari afleiðingar í för með sér. Tillögur bún-
aðarnefndar gera m.a. ráð fyrir öflugum stoðbúnaði til nota við rústabjörgun sem jarðskjálftar og ofanflóð geta leitt af sér. Myndin
sýnir tjón sem varð á Hellu í „þjóðhátíðarskjálftanum". Myndin er birt með góðfúslegu leyfi húseiganda. (Ljósm. JÓE/AVRIK).
og öðrum sem koma að almanna-
vömum í landinu. Góður rómur var
gerður að tillögum búnaðamefndar
þótt nokkur álitamál væru um út-
færsluatriði.
Hinn 11. apríl 2000 lagði búnað-
amefnd siðan fram lokaskýrslu sina,
sem kynnt hefur verið almanna-
vamaráði og stjóm sambandsins.
Tillaga búnaðameíndar að búnaði
til almannavama:
1. Hverri almannavarnanefnd til-
heyri ákveðinn grunnbúnaður, þ.e.
lágmarksbúnaður sem nauðsynlegur
er i hverri aðgerð og lýtur að stjóm-
un og umsjá aðgerða á vettvangi og
í stjórnstöðvum, auðkenni starfs-
manna almannavama (opinberra og
hjálparliðs) og lokunarbúnaður.
2. Almannavarnanefndir eigi og
reki sameiginlega stoðbúnað. Um
er að ræða öflugan björgunarbúnað
og aðhlynningarbúnað sem hugsað-
ur er til nota fyrir björgunaraðila við
stærri áföll. Hann sé varðveittur í
birgðastöðvum í umsjá slökkviliðs á
átta stöðum á landinu og er staður-
inn valinn með tilliti til stærðar
byggðarlags, legu gagnvart sam-
göngum og dreifingar um landið.
3. A 15 sjúkrastofnunum úti um
land sé sérhæfður sjúkrubúnaður
greiningarsveita.
3.1 Grunnbúnaður
Þessi búnaður lýtur að stjómun og
umsjón aðgerða, lokunum, móttöku
þyrlu o.þ.h. og hefúr m.a. að geyma
auðkenni starfsmanna (opinberra og
hjálparliðs). Búnaðarnefnd leggur
það til að grunnbúnaður verði að
stofni til hinn sami og búnaðarlisti
almannavamanefnda hljóðar upp á
nú en með nokkmm viðbótum.
3.2 Stoðbúnaður
Hinn öflugi stoðbúnaður sem
búnaðarnefnd leggur til í skýrslu
sinni er í raun megininntakið í til-
lögum nefndarinnar. Stoðbúnaðar-
stöðvar, sem upp yrði komið á til-
greindum stöðum í Iandinu, mynd-
uðu víðtækt net björgunarbúnaðar
sem kæmi að notum um allt land ef
stóráfoll kæmu upp.
Lagt er til að allar stoðbúnaðar-
stöðvar hafi sömu samsetningu bún-
aðar sem taki fyrst og fremst mið af
óveðrum, jarðskjálftavá og ofan-
flóðahættu og henti sérstaklega til
rústabjörgunar og umfangsmeiri
verkefna.
3.2.1 Samsetning stoðbúnaðar
Hver stoðbúnaðareining skiptist í
eftirtalda flokka sem ber hver sitt
litaauðkenni.
RAUÐGULT: Búnaður til að-
hlynningar og flutnings fólks af
skaðasvœói
Hryggspjöld, samanbrjótanlegar
börur, innpökkuð teppi, einnota
spelkusett, rúllur af strigateipi,
merkimiðar fyrir sjúklinga, líkpok-
ar, 15 nr tjöld, 10 m2 nælonsegl,
1 59