Sveitarstjórnarmál - 01.08.2000, Síða 58
UMHVERFISMÁL
ÝMISLEGT
Stöðvarhús Landsvirkjunar
opin almenningi
1. Tryggt verði ijármagn til að ráða
starfsmann í ffamtíðarstarf við sam-
ræmingu, ráðgjöf og stuðning við
þau sveitarfélög sem vinna að gerð
Staðardagskrár 21. Jafnframt verði
tryggt fjármagn til nauðsynlegs þró-
unar-, kynningar- og útgáfustarfs í
tengslum við starfið.
2. Kostnaður sveitarfélaga við gerð
Staðardagskrár 21 verði tekinn sér-
staklega fyrir í viðræðum um verka-
skiptingu og tekjustofna ríkis og
sveitarfélaga sem nú standa yfir.
3. Stofnaður verði sérstakur sjóður
til að veita styrki til sveitarfélaga
vegna verkefna og fjárfestingar sem
miðar að því að nálgast markmiðið
um sjálfbæra þróun. Sérstaklega
verði tekið tillit til sérstöðu fá-
mennra sveitarfélaga og þeirra
vandkvæða sem þau eiga við að
glíma við áætlunargerð til langs
tíma.
4. Veitt verði árleg viðurkenning,
Islensku staðardagskrárverðlaunin,
til þess sveitarfélags sem best hefur
unnið að gerð Staðardagskrár 21.
Jafnframt verði veitt viðurkenning
fyrir áhugaverðustu verkefnin sem
unnið er að í anda Staðardagskrár
21.
5. Lögð verði áhersla á að umsjón
með gerð Staðardagskrár 21 er ekki
aðeins verkefni ráðuneytis umhverf-
ismála, heldur einnig annarra ráðu-
neyta.
6. Stefnt verði að stofnun sérstakr-
ar landsneíndar um sjálfbæra þróun
(NCSD) í samræmi við samþykktir
Ríóráðstefnunnar.
7. Stefnt verði að undirritun yfir-
lýsingar UNEP um hreinni fram-
leiðslutækni til að undirstrika enn
frekar vilja stjómvalda til að hafa
fyrirbyggjandi aðgerðir að leiðar-
ljósi við stefnumótun og áætlunar-
gerð.
Gerð Staðardagskrár 21 er ekki
og getur aldrei verið átaksverkefni,
heldur er um að ræða heildaráætlun
um þróun samfélaga fram eftir 21.
öldinni. Mikilvægi Staðardagskrár-
starfsins endurspeglast í þeirri stað-
reynd.
Stöðvarhús Landsvirkjunar eru
opin gestum og gangandi í allt sum-
ar, í flestum tilvikum milli kl. 13.00
og 17.00, en í sumum þeirra til kl.
18.00 um helgar. Þá efnir Lands-
virkjun til listsýninga í tveimur
þeirra í samstarfi við Félag íslenskra
myndlistarmanna (FÍM) í tilefni af
Reykjavík menningarborg Evrópu.
Hér fer á eftir listi yfir stöðvamar og
örstutt lýsing á hverri þeirra og því
sem þar ber fyrir augu
Blöndustöð
Blöndustöð þykir á margan hátt
sérstakt mannvirki. Hún er stærsta
raforkuver norðan heiða. Stöðvar-
húsið er á 200 metra dýpi en að-
gengi er um 800 m löng jarðgöng
og lyftu. Landsvirkjun þykir jafn-
framt ástæða til að benda á áhuga-
verða útivistarkosti í Húnavatns-
sýslum, merka sögustaði, göngu-
leiðir og góða veiðistaði í ám og
vötnum.
Laxárvirkjun
FÍM heldur listsýninguna List í
orkustöðvum í Laxá III í allt sumar.
Stöðin er í berghvelfingu neðanjarð-
ar sem þykir skapa sýningunni frá-
bært andrúmsloft. Þá hefur Lands-
virkjun gefið út bækling um Laxár-
stöðvar þar sem gönguleiðum á
svæðinu em gerð sérstök skil.
Krafla
I Kröflustöð er gestastofa þar sem
komumönnum er boðið að kynna
sér hvernig jarðvarmi er nýttur til
rafmagnsframleiðslu. í tengslum við
virkjun Kröflu var lagður vegur sem
gerir Leirhnjúkssvæðið ofan stöðv-
arinnar aðgengilegt, en þar er
sprengigígurinn Víti og mikil nátt-
úrufegurð.
Búrfellsstöð
Búrfellsstöð í Þjórsárdal er
stærsta raforkuver á landinu. í ná-
grenni hennar eru margar nátt-
úmperlur, s.s. Hjálparfoss, Háifoss
og Gjáin í Þjórsárdal, einnig sögu-
aldarbærinn Stöng og Þjóðveldis-
bærinn sem stendur skammt frá
Búrfellsstöð.
Sultartangi
Sultartangi er nýjasta aflstöð ís-
lendinga en hún komst í fullan
rekstur í byrjun yfirstandandi árs.
Hana prýðir listaverkið Sólalda sem
byggir á skuggaspili og áhugavert er
að skoða. Frá Búrfellsstöð er vegur
með bundnu slitlagi að Sultartanga.
Hrauneyjafoss
Frá Sultartanga tekur um 20 mín-
útur að aka að Hrauneyjafossi og
vegurinn þangað lagður bundnu slit-
lagi alla leið frá Reykjavík. Bent er
á að orkuverið er á leiðinni að sunn-
an í Veiðivötn, Landmannalaugar
eða norður Sprengisand.
Ljósafossstöð
I Ljósafossstöð fer fram sýningin
List í orkustöðvum í sumar. Sýning-
in er samstarfsverkefni FIM og
Landsvirkjunar og fer ffarn í glæsi-
legu rými stöðvarinnar en einnig er
gestum boðið að fara um svæðið og
jafnvel inn í stífluvegg stöðvarinnar.
1 84