SunnudagsMogginn - 04.12.2011, Page 41
4. desember 2011 41
LÁRÉTT
1. Perri sem kemur fyrir jólin? (11)
5. Á sem er snögg. (5)
9. L næstum því eftir þann XI. (7)
11. Samkomur meta stærð þrjóskra í andófi. (12)
12. Hinu sýni ólíkt. (8)
13. Sá fyrsti, guð, við ólgandi sæ á landspildunum.
(12)
14. Berja inn með stönginni heyrist. (5)
16. Stafrænn snýr við fatnaði. (6)
19. Skál fyrir meiddar með buxnahlutana. (10)
20. Vírar ei einhvern veginn á erlendri strönd. (7)
23. Sko Patrik tapar að lokum einu kíló á iði í sýningu.
(10)
26. Með ódýrum arga skepnur. (8)
27. Sælgæti íþróttar. (5)
29. Ógnum eitthvað bilaðri með tjóni. (5)
31. Ernir fá aðra keppni við statista. (12)
34. Við norðanátt enn ein gögn blandast sérkenni-
legum vökvanum. (10)
35. Óvarleg smíð veldur skrautgirni. (6)
36. Í skáldsögu er evrópsk borg enn að svara. (8)
37. Ný búinn að vera byrjandinn. (8)
LÓÐRÉTT
1. Greinar fá tvö úr höndunum. (10)
2. Takt’ í fastar til að fá sprækastar. (10)
3. Til ama lærast miðlægir hjá ruglaðasta. (10)
4. Hljómsveitarmeðlimur sem draslast í öllu. (6)
6. Hraun erlendis til snúnings í málningarbúð. (7)
7. Raðirnar fá í lok ágúst að enda sem heimreið-
arnar. (9)
8. Bónusálagið nái ekki til þessa dýrs. (8)
10. Kjarnakljúfar fyrir blíðar. (6)
14. Er óvissan dræmari við fláka. (8)
15. Í ágúst við sumarlok æddi inn með peninginn. (8)
17. Kona í leyfi. (3)
18. Óðinn og fugl fá eitthvað til að setja á höfuðið. (8)
21. Prump við smölun. (10)
22. Það að taka af einhvers konar gný við hafið. (8)
24. Þarmar Björgvins birtast á hliðunum. (8)
25. Tja, ræ með eiturlyf og með einn að landsvæði.
(9)
28. Þreytt á bréfum og braut. (8)
30. Fantalegur missti afl í keppni. (7)
32. Kolakraninn hefur trjónuna. (6)
33. Litlir ruglast í ritvinnsluforriti. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Há-
degismóum 2, 110 Reykjavík.
Frestur til að skila úrlausn kross-
gátu 4. desember rennur út á há-
degi 9. desember. Nafn vinnings-
hafans birtist í blaðinu 11.
desember. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinn-
ing. Vinningshafi krossgátunnar 27. nóvember er
Borghildur Sigurbergsdóttir, Blómvöllum 23, Hafn-
arfirði. Hún hlýtur að launum bókina Hægur dauði
eftir Kaaberbøl og Friis.
Krossgátuverðlaun
Á minningarmótinu um Mikhael
Tal sem lauk í Moskvu um síðustu
helgi gafst ágætt tækifæri til að
rifja upp feril meistara sem líklega
ávann sér meiri hylli en nokkur
annar heimsmeistari. Þó að halla
tæki undan fæti eftir tapið í
seinna einvíginu við Botvinnik
árið 1961 báru aðdáendur hans
ávallt þá von í brjósti að þeir dag-
ar kæmu aftur þegar Tal lagði
skákheiminn að fótum sér.
Leiftrandi snilld hans hafði fært
honum heimsmeistaratitilinn
verðskuldað aðeins 23 ára göml-
um en næstu ár voru honum erf-
ið, ekki síst í heilsufarslegu tilliti.
Íslendingar fengu margoft að
njóta snilldar Tal, fyrst á stúd-
entamótinu 1957, á Reykjavík-
urmótunum 1964 og 1986, IBM-
mótinu 1987 og á heimsbik-
armótinu 1988.
Á minningarmótinu var jafn-
teflisprósentan býsna há eða um
77%. Heimsmeistarinn Anand
gerði jafntefli í öllum skákum
sínum. Enn og aftur sannaði
Magnús Carlsen hæfni sína og er
kirfilega efstur á stigalista FIDE
með 2.829 stig. Magnús náði ný-
lega samkomulagi við FIDE um
tilhögun heimsmeistarakeppn-
innar og mun hann vera meðal
þátttakenda í næstu hrinu henn-
ar. Lokaniðurstaðan á Tal-
mótinu:
1.-2.Carlsen og Aronjan 5½
v.3.-5. Ivantsjúk, Karjakin og
Nepomniachtchi 5 v. 6.-7. Svidler
og Anand 4½ v. 8.-9. Kramnik og
Gelfand 3½ v. 10. Nakamura 3 v.
Skömmu fyrir mótið barst sú
fregn að Kasparov væri tekinn við
sem þjálfari Nakamura. Ekki er
vitað til þess að viðskilnaður
Kasparovs við Magnús Carlsen
hafi kostað mikil átök en þekki
maður Kasparov má reikna má
með að hann hafi gefið hinum
nýja skjólstæðingi sínum góð ráð
fyrir viðureignina í lokaumferð-
inni. Kom fyrir ekki; Magnús náði
snemma frumkvæðinu og vann
sannfærandi sigur:
Hiakru Nakamura – Magnús
Carlsen
Drottningar-indversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Ba6 5. Dc2 Bb4 6. Bd2 Be7 7. Bg2
c6 8. 0-0 d5 9. Re5 Rfd7 10. cxd5
cxd5 11. Bf4
Afundinn eftir slæmt gengi í
mótinu sniðgengur Nakamura
skarpari möguleika. 11. e4!? er
ekki eins vitlaus leikur og virðist í
fyrstu, t.d. 11 … Rxe5 12. exd5
Bxf1 13. Kxf1 með ýmsum mögu-
leikum.
11. … Rxe5 12. dxe5 0-0 13. Hd1
Bb7 14. Rd2 Rc6 15. Rf3 g5!
Með þessari óvæntu framrás
sem beinist gegn e5-peðinu
hrifsar Magnús til sín frum-
kvæðið. Hvítur geldur þess að
hafa teflt byrjunina alltof linku-
lega.
16. Be3 g4 17. Rd4 Rxe5 18. Bh6
He8 19. e4 Bc5! 20. Rb3 Hc8 21.
Rxc5 Hxc5 22. Da4
Eðlilegra var 22. De2 en
kannski hefur Nakamura óttast
22. … . d4.
22. … Bc6 23. Dd4 Df6 24. Bf4
dxe4 25. Bxe4 Rf3+!
Með uppskiptum kemst svartur
út í endatafl peði yfir. Það gefur
bestu vinningsmöguleikana.
26. Bxf3 Dxd4 27. Hxd4 Bxf3
28. Hd7 Hd5! 29. Hxd5 exd5 30.
Be3 He4 31. He1 d4 32. Bd2 Hxe1
33. Bxe1
Sjá stöðumynd.
33. … Be2!
Með þessum snjalla leik lokar
Magnús hvíta kónginn af og það
kostar peð að losa um hann.
34. f4 gxf3 35. Bf2 d3 36. Be1
Kg7 37. Kf2 Kf6 38. Ke3 Kf5 39. h3
h5 40. Bd2 Bf1 41. Be1 Bxh3 42.
Kxd3 Bf1 43. Ke3 Kg4 44. Kf2 Bb5
45. Bc3 Bc6 46. Be5 b5 47. Bb8 a6
48. Bc7 f5 49. b3 Bd5 50. Bd6 f4
51. gxf4 h4 52. f5 Kxf5 53. Ke3
Kg4 54. Kf2 h3 55. Ke3 Be4 56.
Kf2 Bb1 57. a3 Ba2 58. b4 Bf7
– og hvítur gafst upp, bisk-
upinn er á leið til h5 og g4 og
kóngurinn til d5. Eftir það er a3-
peðið dæmt til að falla.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Magnús Carlsen er langefstur á heimslistanum
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta