Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Page 59

Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Page 59
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 2013 59 KristÍn bJarnadóttir Boðið var að piltar skyldu læra Geographia og Arithmetica, en hvorugt var þar [í Reykjavíkurskóla] kennt í minni tíð … okkur bara sagt, að við ættum að læra þetta, og það gekk þá upp og niður … öllum sem komust í efra bekk var gefin stiptamt- manns Ólafs Arithmetík, en það var í sjálfra piltanna valdi, hvort þeir luku upp bók- inni nokkurntíma eða aldrei. (Árni Helgason, 1907–1915, bls. 86) Stutt undirvísun er styttri bók og samanþjappaðri en Greinileg vegleiðsla. Einungis voru sýnd fjögur til sjö dæmi um hverja reikniaðgerð í heilum tölum. Stutt undirvísun er að miklu leyti byggð á háskólafyrirlestrum þar sem reikniaðferðum voru gerð ná- kvæm skil en ekki sýnd fjölbreytileg nálgun eins og í Greinilegri vegleiðslu. Sýnt var hvernig má einfalda tölur í þríliðu með styttingu og kallast hún eins og önnur brögð í þríliðu „Praxis Italica af því að þeir Ítalísku hafa slíkt að mestu uppfundit“ (Ólafur Stefánsson, 1785, bls. 141). Dæmum úr fornmenntum bregður fyrir, svo sem um skipa- fjölda í Trójumannabardaga (bls. 60) og samræður [Markúsar] Antoníusar og félaga hans Semproníusar (bls. 175). Stöku sinnum má öðlast innsýn í aldarhátt. Fjallað var um dánarbú, kaup og útgerð báta, aflaskipti, afköst sláttumanna og fleira er varðaði hefðbundinn búskap stórbænda sem höfðu mannskap á stóra báta eins og áttæringa. Fátækum var gefin ölmusa og dæmi sýnir röðun til borðs eftir virðingarröð og sam- svarandi mismikinn íburð í mat. Dæmin voru notuð til að sýna aðferðir: Annars vegar lausn jöfnu með tveimur óþekktum stærðum (bls. 241–248) en hins vegar notkun jóm- frúareglu (bls. 169–173), afbrigði af blöndunarreglu sem beitt var við blöndun ólíkra þátta við tiltekin skilyrði. Ólafur Stefánsson ritaði ávarp til stjórnar konungsverslunarinnar sem ætla má að hafi styrkt eða kostað útgáfuna. Þar segir að hann afhendi bókina löndum sínum og sér í lagi uppvaxandi æskufólki til að veita því þekkingu og hagkvæmni svo að það geti tekið einhvern þátt í versluninni eða orðið þjónar hennar þegar þess tími komi (bls. *4). Aðeins eitt dæmi er þó að finna um innkaup hjá kaupmanni. Verslunarvaran var brennivín og mjöður. Ef til vill hafa menn ekki þurft að sækja margt annað til kaupmannsins nema þá mjöl. Í einu dæmanna sagði að keyptar hefðu verið til Íslands árið 1750 10.000 tunnur mjöls sem skipta átti milli 40.000 manns sem menn vissu fyrir víst vera á landinu (bls. 60). Reikningslist – Jón Guðmundsson Jón Guðmundsson (1807–1875), síðar ritstjóri Þjóðólfs, átti erfiða æsku sökum fátæktar og veikinda en lauk stúdentsprófi 25 ára gamall (Einar Laxness, 1960). Jón var ráðinn umboðsmaður konungseigna á Kirkjubæjarklaustri á Síðu árið 1836 og gegndi því starfi til 1847. Þar ritaði hann, liðlega þrítugur að aldri, bókina Reikníngslist, einkum handa leikmönnum, 260 bls., auk fjögurra bls. formála (Jón Guðmundsson, 1841). Bókin var prentuð í Viðey á kostnað Ólafs M. Stephensen, sonar Magnúsar. Jón Guðmunds- son taldi sig einnig þurfa að forðast ámæli menntaðra lesenda. Ekki mátti samt treysta því að allir kynnu að lesa: [M]á samt einginn sá hugsa sér að læra neitt af því – nema með góðri tilsögn – sem ekki kann vel að lesa, þ.e. sem gétur gjört sér greinileg meiníngaskil eptir lestrar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.