Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Blaðsíða 83
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 2013 83
gUÐmUndUr b. KristmUndsson
vandlega rannsakað víða um heim. Það er viðkvæmur þáttur í námi hvers einstaklings
og skiptir miklu fyrir getu hans til þátttöku í samfélaginu. Læsi, það að geta lesið og
skrifað, er grundvallaratriði fyrir samfélag og afkomu þjóðar. Ferli námsins hefst með
máltöku og varir langt fram eftir ævi en er þó allra mikilvægast á leik- og grunn-
skólaárum. Í ritinu Læsi má finna ýmislegt sem vekur til umhugsunar um breytingar
sem hafa orðið og eru að verða á miðlun og kostum til samskipta. En þar vantar þann
mikilvæga grunn sem traust læsi byggist á og er meðal annars forsenda þess að geta
notið þeirra rafrænu miðla sem nú eru almenningseign. Þá segir fátt af nemandanum
sem lesanda og höfundi og þeim kröfum sem gerðar eru til hans og hann þarf að gera
til sjálfs sín. Nám sem leiðir til læsis verður að fela í sér margs kyns lærdóm, þjálfun og
uppeldi sem gerir nemandann að lesanda ævina á enda. Hann þarf að vera fær um að
afla sér lesefnis í hvaða formi sem er, kunna leiðir sem styðja við skilning, geta túlkað
texta, lært af honum og sett hann í samhengi við þann veruleika sem hann býr við,
og miðlað öðrum af þekkingu sinni. Læsi fylgja einnig siðferðilegar kröfur. Það á ekki
síst við um þann tíma sem nú er runninn upp og felur í sér frjálsan aðgang að hverju
einu sem hugurinn leitar eftir og veitir leið til að miðla því sem hver vill. Menntun til
læsis felur því í sér að efla hinn hugsandi mann, hinn siðferðilega sterka mann, hinn
skapandi mann og einnig vitaskuld þann mann sem leitar eftir þekkingu og kann að
spyrja þeirra spurninga sem leiða hann áfram í leit að þekkingu. Læsi er eign þess sem
yfir því ræður og hann verður að vera fær um að rækta það áfram eftir að skóla lýkur.
Nám sem leiðir til læsis er ekki einfalt og þar þarf að fást við margt svo farsæl
niðurstaða fáist. Ekki er nægilegt að líta á þá miðla sem fyrir hendi eru. Mikilvægast
er að efla lesandann þannig að hann ráði við þá texta sem koma fyrir sjónir hans nú
og verði einnig fær um að velja og læra af þeim textum sem bíða handan við hornið.
Það hefði þurft að fjalla um þetta í ritinu Læsi og á þann hátt að þeir sem ritið er ætlað
hefðu gagn af við kennslu og uppeldi barna.
HEiMilDir
Anna G. Magnúsdóttir og Páll Ólafsson. (1990). Áttavitinn: Kennslubók um fjölmiðla.
Reykjavík: Mál og menning.
Organisation for Economic Cooperation and Development. (2001). Knowledge and
skills for life: First results from the OECD programme for international student assessment
(PISA) 2000. (2001). París: Höfundur.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið. (2012). Aðalnámskrá grunnskóla 2011: Almennur
hluti. Reykjavík. Höfundur.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti. (2013). Aðalnámskrá grunnskóla: Almennur hluti
2011 – greinasvið 2013. Reykjavík. Höfundur.
Morgunblaðið. (e.d.). Dagblöð í skólum. Sótt 2. apríl 2013 af http://www.mbl.is/
mogginn/skolar/