Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Side 105

Uppeldi og menntun - 01.01.2013, Side 105
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 22(1) 2013 105 Kristian gUttesen nýtum hana og komum henni á framfæri. Það er ekki lengur nauðsynlegt að vita eða muna allt. Ef og þegar maður þarf að vita eitthvað er hægur vandi að fletta því upp. Upplýsingagrunnurinn, hin mikla auðlind þekkingar, er fyrir hendi. Það þarf því ekki með sama hætti og áður að vita alla skapaða hluti. Það má auðveldlega nálgast upp- lýsingar um allt mögulegt í gegnum leitarvélar alnetsins. Nú á dögum virðist þörfin brýnni fyrir að uppfræða og ræða við ungt fólk um það hvernig heppilegt þyki að umgangast þekkingu, en ekki hvernig eigi að afla hennar. HUgsUn Í fyrirlestrinum sem ég vék að í inngangi talaði Páll Skúlason (í prentun) um þrjár leiðir að hinni náttúrulegu heimspeki. Hann leiddi rök að því að hver sá fræðimaður eða áhugamaður sem hygðist nema vestræna heimspeki yrði að byrja á upphafinu og leita í vöggu grískrar menningar. Rökin fyrir þessu voru á þá leið að það væri eðli heimspekinnar sem fræðigreinar að ástundun hennar muni alltaf byggja á því sem sagt og hugsað hefur verið á undan. Öll heimspekileg hugtök, allar kenningar og ný sjónarmið tækju mið af fyrri tilgátum. Því væri innihaldsríkasta námsleiðin á sviði heimspekinnar einfaldlega að rekja sig aftur til upphafsins. Þessar þrjár leiðir væru af þeim sökum með útgangspunkta í hugsuðunum Sókratesi, Platóni og Aristótelesi. Þetta sagði hann bæði stafa af því sem greina mætti sameiginlegt og ólíkt með þeim. Í stuttu máli hefði hver þeirra sína aðferðafræði, sitt svið. Þannig kvað hann Sókrates vera holdgerving gagnrýninnar hugsunar. Um Platón sagði hann að hans heimspeki væri tilraun til að hugtaka heiminn í eitt heildstætt kerfi. Aristóteles hefði aftur á móti farið þá leið að sundurliða allt og greina í sundur þangað til hann vissi hvernig allir hlutir (reglur, hugtök og frumöfl) tengdust innbyrðis. Þannig má ef til vill segja að þeir nálgist sama markmiðið hver með sínum hætti. Þessi framsetning rímar ágætlega við hugmynd sem ég hafði þegar gert mér um skiptingu hugsunarinnar í þrjú svið: gagn- rýna, skapandi og sjálfstæða. Þá máta ég, eins og Páll Skúlason, aðferð Sókratesar við þá fyrstu en segi Platón vera skapandi í sinni ástundun og Aristóteles iðka sjálfstæða hugsun. Ef ég hygðist nota Heimspekisögu til að kynna þessi svið hugsunarinnar sem lifandi viðfangsefni væri upplagt að byrja á köflum 2c, 3 og 4 í bókinni, sem fjalla um þessa hugsuði og innihalda valda frumtexta í íslenskri þýðingu. Jafnframt gæti ég notað kafla 1, 2, 3 og 15 í Heimspeki fyrir þig til að bera þá nánar saman. Kafli 4 í Heimspeki fyrir þig er helgaður þekkingu og hér væri freistandi að virkja lýðræðið í skólastofunni með því að ræða eigin kennsluaðferðir við nemendur út frá hugtakinu, ekki síst eins og þeir Ármann Halldórsson og Róbert Jack gera því skil. Kristín Hildur Sætran fjallar um gagnrýna, greinandi hugsun, um skapandi hugsun og um sjálfstæða hugsun. Skilgreininguna á skapandi hugsun hefur hún eftir Eyþóri Eðvarðssyni (2003). Gagn- rýnin, greinandi hugsun er yfirvegandi (e. meta-thinking), þ.e. hún er „hugsun um hugsun og þannig á vissan hátt leitandi rannsókn á hugsunum og um leið túlkun eða endursköpun hugsana“ (KHS, 2010, bls. 56). En forvitnin er:
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.