Morgunblaðið - 14.03.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Breytingar á gjaldeyrislögum, sem
samþykktar voru á Alþingi í fyrri-
nótt draga úr áhættu í kerfinu, að
mati Arnórs Sighvatssonar aðstoð-
arseðlabankastjóra. Hann segir að á
undanförnum vikum hafi verið haft
samráð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
um þessar aðgerðir. Á næstu dögum
verður fundað með slitastjórnum
bankanna um reglur við losun gjald-
eyris.
Arnór segir að
glufa hafi verið í
lögum um gjald-
eyrishöft og hún
hafi verið að
stækka undan-
farið. „Aðgerð-
irnar snúast um
það fyrst og
fremst að beina
því fjármagni
sem vill fara út í þær útgönguleiðir
sem við höfum opnað í gegnum
gjaldeyrisútboð,“ segir Arnór.
„Kjarninn í þeirri áætlun er að fá
langtímafjárfesta til að taka stöðu
skammtímafjárfesta sem vilja fara
út. Ef við leyfum svona glufum að
stækka þá myndum við í stað þess að
fá inn langtímafjárfesta fá inn spá-
kaupmenn, sem kaupa þessa skulda-
bréfaflokka og stækka stöður sínar
sífellt. Þeir eru ekki endilega að
koma hingað inn til að fjárfesta til
langs tíma. Auðvitað kaupa menn
þessa flokka af mismunandi hvötum,
en við vitum að það er talsvert um
þetta.“
Arnór var spurður hvort sjá hefði
mátt þessa þróun fyrir og hvort
Seðlabankinn hefði verið of seinn að
átta sig á þessum möguleika.
„Kannski mátti reikna með að
eitthvað af þessu tagi gerðist, en
þetta var viðráðanlegur vandi. Höf-
uðstólsgreiðslur af umræddri teg-
und af skuldabréfum eru flokkaðar
sem viðskiptajafnaðargreiðslur, en
aðrar höfuðstólsgreiðslur teljast til
fjármagnsjafnaðargreiðslna. Þarna
hefur verið um að ræða sniðgöngu-
möguleika sem getur stækkað og
það var það sem við sáum að var að
gerast.“
Hjálpar til við að losa um höftin
Aðspurður hvort þessi aðgerð
dugi eða hvort setja þurfi ný lög eftir
hálft ár segir Arnór að menn sjái
ekki núna hvar menn ættu að finna
næstu glufu. Vonandi verði hún þá
ekki svo stór að lagasetningu þurfi
til. Hins vegar séu hagnaðartæki-
færi mikil ef menn finni glufur til að
hagnast á gengismun. Fram hefur
komið ótti við að þessar aðgerðir
kunni að leiða til þess að framlengja
höftin. Arnór segir að þessu sé þver-
öfugt farið og muni hjálpa til við að
losa um höftin fyrr en ella.
„Þessar aðgerðir draga úr áhættu
um að það losni um höftin með
óskipulögðum hætti. Slíkt gæti haft í
för með sér óstöðugleika sem leiddi
til þess að gengi krónunnar gæti
veikst verulega til lengri tíma litið.
Þessi aðgerð miðar að því að styrkja
undirstöðurnar og koma í veg fyrir
slíka veikingu.“
Spurður um samráð við Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn segir Arnór að
Seðlabankinn hafi verið í samræðum
við AGS um þessi efni síðan í haust,
síðast á mánudag. Á milli aðila hafi
verið eining um að þetta kynni að
verða nauðsynlegt og fulltrúar AGS
verið upplýstir um stöðuna.
Spurður hvort þessi lagasetning
væri til þess fallin að draga úr tiltrú
á íslensku efnahagslífi segir Arnór:
„Það er neikvætt að þurfa að grípa
til aðgerða sem þessara. Hins vegar
bendum við á að meðal annars mats-
fyrirtækin og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
urinn hafa haft áhyggjur af því að
það væri hugsanlega tilhneiging hér
að rífa höftin í burtu of snemma og
áður en við erum tilbúin til þess. Eitt
af því sem gæti leitt til þess er snið-
ganga sem græfi svo undan höft-
unum að við yrðum að losa þau með
tilheyrandi óstöðugleika. Ég hygg
að þetta muni fljótlega jafna sig.“
Mikilvægt að róa kröfuhafa
Hann sagði það verkefni næstu
daga að ræða við slitastjórnir, en
fyrir þær væri mikilvægt að róa
kröfuhafa. „Ég hygg að þegar við
höfum farið yfir málin með þeim þá
muni koma í ljós að við erum alls
ekki að hindra útgreiðslur heldur er-
um við þvert á móti að sjá til þess að
þær geti átt sér stað með hætti sem
teflir stöðugleikanum ekki í tvísýnu.
Í rauninni hjálpar það við að verja
þeirra eigur, því þeirra verðmætasta
innlenda eign eru nýju bankarnir. Ef
hér væri óstöðugleiki myndi það
leiða til þess að útlánatöp í þessum
bönkum ykjust og þá myndu verð-
mæti þeirra minnka.
Það er því líka þeirra hagsmuna-
mál að verja stöðugleikann og mik-
ilvægt að settar verði fram áætlanir
sem grundvallast á þeirri hugsun að
þetta verði gert með þeim hætti að
ekki valdi óstöðugleika,“ segir Arnór
Sighvatsson.
Aðstoðarseðlabankastjóri segir að með lagabreytingu hafi verið brugðist við
möguleikum á sniðgöngu Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa fylgst með
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabankinn Meðal verkefna næstu daga er að ræða við slitastjórnir bankanna í kjölfar breytinga á lögum.
Aðgerðir draga úr áhættu
Arnór Sighvatsson
„Ljóst er að nú-
verandi áætlun
um afnám hafta
er ótrúverðug og
framkvæmd
Seðlabankans
hefur gert lítið
annað en að und-
irstrika það,“
segir í markaðs-
punktum grein-
ingardeildar Ar-
ion banka í gær.
„Það má því spyrja sig hvort og
þá hvað sé til ráða. Fyrirsjáanlegt
er að ekki er hægt að afnema höft-
in án verulegrar veikingar sem
fæli í sér mikla kaupmáttarskerð-
ingu og eignarbruna, a.m.k. til
skamms tíma. Í öllu falli virðist
morgunljóst að lagasetning er eina
stjórntækið sem Seðlabankinn og
ríkið telja sig hafa tiltæk til að
hafa áhrif á gjaldeyrismarkaðinn
og tempra fall krónunnar. Hafi
einhvern tímann verið tími til að
hugsa út fyrir boxið varðandi
gjaldeyrismál þjóðarinnar, þá er sá
tími runninn upp,“ segir í mark-
aðspunktunum.
Þar segir að ákvörðun um að
herða gjaldeyrishöftin grafi eðli-
lega undan því trausti sem erlend-
ir fjárfestar hafi á íslenskum
stjórnvöldum. Bæði komi til að
ákvarðanataka virðist handahófs-
kennd og óyfirveguð og svo hitt að
staðan sem upp var komin gaf til
kynna að stjórnvöld hafi lesið
gjaldeyrisstreymi inn og út úr
landinu kolvitlaust.
Skuldsettur gjaldeyrisforði
„Væntanleg er sjö milljarða
króna afborgun nú á fimmtudag-
inn af HFF 14, íbúðabréfaflokks
sem í dag er að langmestu leyti í
eigu útlendinga. Miðað við það litla
flæði sem virðist vera af gjaldeyri
inn í landið hefði gjalddaginn vald-
ið áframhaldandi lækkun á krón-
unni, nema Seðlabankinn hefði
gripið í taumana og selt gjaldeyri.
Það er hætt við að sú aðgerð hefði
reynst dýrkeypt tilraun. Enda frá-
leitt að Seðlabankinn geti nýtt
skuldsettan gjaldeyrisforða til að
mæta þeim afborgunum sem fram-
undan eru,“ segir í markaðs-
punktunum.
Ótrúverðug áætlun
um afnám hafta
Arnar Sigur-
mundsson, for-
maður Lands-
samtaka
lífeyrissjóða,
segir að hert
gjaldeyrisshöft
séu slæm tíðindi.
„Það er ekki
bara verið að
herða höftin,
heldur gætu
þessar aðgerðir þýtt að tímabil
hafta lengdist líka. Það er mikið
áhyggjuefni.“
Arnar segir að lífeyrissjóðirnir
vilji dreifa áhættunni meira en
þeir geta núna gert. Nú sé hlut-
deild erlendra eigna í eignasafni
lífeyrissjóða komin niður í um
23%, en æskilegt væri að það væri
yfir 30%.
„Lífeyrissjóðirnir eiga 470-480
milljarða í erlendri mynt, en menn
vildu sjá þá upphæð 100-200 millj-
örðum krónum hærri,“ segir Arn-
ar. „Möguleikarnir hér heima eru
takmarkaðir. Menn hafa beðið eft-
ir því að losnaði um höftin en þessi
tíðindi eru ekki til að flýta því að
svo verði.“
Arnar segir að við gerð kjara-
samninga fyrir tíu mánuðum hafi
verið gert ráð fyrir styrkingu
krónunnar, en þvert á móti hafi
krónan veikst. Krónan sé komin í
þá stöðu sem hún var veikust fyrst
eftir hrun, sem hafi bein áhrif á
verðlag og afkomu fólks. Aðgerð-
irnar muni væntanlega styrkja
krónuna fyrst í stað, en stór
spurning sé hvað verða muni til
lengri tíma litið. aij@mbl.is
Gæti þýtt lengra
tímabil hafta
Arnar Sigur-
mundsson
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, telur lög sem
herða á gjaldeyrishöftum mikið
óheillaskref og að viðleitni til að
losa um höftin kunni nú að vera í
uppnámi.
„Allar breytingar á höftunum
sem gerðar hafa verið undanfarin
ár miða að því að herða þau og
fylla í þau göt sem markaðurinn
nær að finna. Ef að líkum lætur
munu nýjar glufur myndast og
vandinn vaxa enn frekar að
óbreyttu. Ég óttast að í kjölfar
þessarar lagasetningar séum við
fjær því en
nokkru sinni að
afnema höftin.
Þetta er hörð
aðgerð löggjaf-
ans og ég ótt-
ast að traust
manna á Íslandi
muni rýrna enn
frekar. Hvernig
á að stíga skref til afnáms hafta
þegar verið er að herða á höft-
unum með lagasetningu? Það er
kominn tími til að hugsa þetta upp
á nýtt,“ segir Orri á heimasíðu SI.
VIÐLEITNI TIL AÐ LOSA UM HÖFTIN KANN AÐ VERA Í UPPNÁMI
Orri Hauksson
Lagasetning óheillaskref
Álnabær veitir alhliðaþjónustu er lýtur að gardínum.
Máltaka, uppsetning og ráðleggingar.
N Ý T T Á Í S L A N D I
TWIN LIGHT
GARDÍNUR
Þú stjórnar birtunni heima hjá þér
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18