Morgunblaðið - 14.03.2012, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2012
Tökum á móti hópum,
stórum sem smáum.
Sími 567 2020 · skidaskali.is
Við erum nær
en þú heldur
· Brúðkaup
· Fermingar
· Árshátíðir
· Afmæli
· Ættarmót
· Útskriftir
· Erfidrykkjur
Aðeins 15 mín frá Rauðavatni
Götulistamaðurinn James Bowen spilaði á gítarinn sinn
í Covent Garden í London í gær og með honum í för var
kötturinn Bob, sem er villiköttur. Hér verðlaunar
James kisa eftir að hann hefur gert ýmsar kúnstir og
sýnt listir. Fregnir herma að þessi James Bowen hafi
nú skrifað bók sem ber titilinn „Götukötturinn Bob“ og
fjallar hún um reynslu þessara tveggja heimilislausu
einstaklinga og einnig segir frá hvernig þeir kynntust.
Tveir heimilislausir ná vel saman
Reuters
Kötturinn og götulistamaðurinn
Haag. AFP | Alþjóðlegi glæpadóm-
stóllinn í Haag í Hollandi hefur brátt
starfað í tíu ár og sýnist sitt hverjum
um frammistöðu hans. Ýmist er
hann hlaðinn lofi eða gagnrýndur
fyrir að vera verkfæri í höndum sig-
urvegaranna.
Louis Moreno-Ocampo, yfirsak-
sóknari dómstólsins, segir að í fyrstu
hafi því verið haldið fram að dóm-
stóllinn myndi ekki ná árangri en nú
væri hann „virt, alþjóðleg stofnun“.
Í dag fellur fyrsti dómur glæpa-
dómstólsins. Hann er í máli Thomas
Lubanga, leiðtoga vígamanna í
Kongó, og er sakaður um að þvinga
barnahermenn
undir 15 ára aldri
til að berjast fyrir
sig.
15 mál eru nú
fyrir dómstólnum
sem er fyrsti
dómstóllinn af
þessum toga sem
sitja á til fram-
búðar.
Rúmlega fjög-
ur þúsund fórnarlömb hafa komið
fyrir dómstólinn. Hjá honum starfa
700 manns og á þessu ári hefur hann
108 milljónir evra til ráðstöfunar.
Dómstóllinn hefur hins vegar ver-
ið gagnrýndur. Rannsóknir hans eru
bundnar við Afríku og eiga fullan
rétt á sér, segir Geraldine Mattioli
hjá Mannréttindavaktinni, en bætir
við að aðeins leiðtogar uppreisnar-
manna séu sóttir til saka í Kongó,
ekki pólitískir leiðtogar og herfor-
ingjar í Úganda, Rúanda og Kongó,
sem hafi vopnað þessa hópa.
Goarn Sluiter, prófessor í þjóða-
rétti í Amsterdam, segir að rétt-
urinn verði að sýna að þeir, sem séu
við völd, eigi á hættu að verða sóttir
til saka, oft hafi aðeins þeir, sem töp-
uðu, verið sóttir til saka.
Glæpadómstóll umdeildur
Louis
Moreno-Ocampo
Óhugur hefur gripið um sig í sam-
félagi múslíma í Belgíu eftir að
kveikt var í mosku síta í Brussel
með þeim afleiðingum að múslíma-
klerkur þar lét lífið. Verknaðurinn
hefur verið rakinn til deilna milli
síta og súnníta.
Maður, sem grunaður er um
verknaðinn, er í haldi.
Joelle Milquet, innanríkis-
ráðherra Belgíu, sagði að hinn
grunaði hefði farið inn í moskuna
og hrópað yfirlýsingar, sem tengd-
ust átökunum í Sýrlandi. Hann var
vopnaður öxi, hníf og eldsneyti.
Ráðherrann sagði að svo virtist
sem um væri að ræða vandamál
milli súnníta og síta og bætti við:
„Belgar munu ekki líða svona
verknaði og innflutning ágreinings
af þessu tagi inn fyrir landamær-
in.“
Isabelle Parile, varaforseti sam-
taka múslíma í Belgíu, EMB, hafn-
aði því hins vegar að samhengi væri
milli ágreinings í öðrum löndum og
ódæðisverksins. Um væri að ræða
„einangrað tilvik“.
Súnnítar og sítar hittust eftir
verknaðinn og sagði borgarstjóri
borgarhlutans, þar sem verknaður-
inn var framinn að einlægur sátta-
tónn hefði einkennt fundinn.
Rannsókn stendur yfir því hvað
hafi vakað fyrir manninum, sem
hermt var að tilheyrði bókstafstrú-
ararmi salafista. Ímaminn, sem lést,
hét Abdallah Dadou, 46 ára gamall
fjögurra barna faðir. Banamein
hans var reykeitrun.
Stór hópur múslímskra innflytj-
enda býr í Brussel og eru súnnítar í
miklum meirihluta.
Síðast var ráðist á ímam í Brussel
1989. Þá var Abdullah Muhammad
al-Ahdal skotinn til bana fyrir að
hafa hafnað dauðdóminum yfir
Salman Rushdie. kbl@mbl.is
Múslímaklerkur
myrtur í Brussel
Samfélag múslíma í Belgíu slegið óhug
Reuters
Íkveikja Brenndur sandali liggur á
gólfi Rida-moskunnar í Brussel.