Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 7. A P R Í L 2 0 1 2  Stofnað 1913  82. tölublað  100. árgangur  LÍKLEGA ER ÉG BARA SANNUR ÍSLENDINGUR FERMING TVÍBURA OG BISKUPSEFNI BLÁSA, MÁLA OG SKEMMTA SÉR SUNNUDAGSMOGGINN PÁSKAFÖNDUR 10TRÚIN HEFUR HJÁLPAÐ 24 Morgunblaðið/RAX Ofurskattlagning Deloitte stendur við niðurstöðu sína um áformuð veiðigjöld.  „Mér finnst að það eigi nú bara að draga þetta frumvarp til baka og reyna að vinna að sameiginlegri lausn sem allir geta verið sáttir við,“ segir Þorvarður Gunnarsson, framkvæmdastjóri Deloitte, en end- urskoðunarfyrirtækið stendur við þá niðurstöðu sína að áformuð veiðigjöld ríkisstjórnarinnar jafn- gildi ofurskattlagningu hagnaðar. Þá segir hann það einnig ámæl- isvert að stjórnvöld skuli ekki leggja fram neina útreikninga um áhrif og afleiðingar breytinganna. Rúnar Jónsson, forstöðumaður sjávarútvegsteymis Íslandsbanka, segir að með sérstaka veiðigjaldinu sé verið að teygja sig um of með því að taka alla hugsanlega rentu sem til verður í fiskvinnslu. »2 Verið er að teygja sig um of með sér- staka veiðigjaldinu Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Ný fyrirtæki eru að byggja sig upp á athafnasvæði Faxaflóahafna á Grundartanga í Hvalfirði. Það gerir flóru atvinnutækifæranna fjöl- breyttari en þegar ganga hátt í þús- und manns daglega til starfa á Grundartanga. Stóriðjufyrirtækin Norðurál og Elkem eru grunnur allrar uppbygg- ingar á Grundartanga og langflestir vinna hjá þeim. Í faðm þeirra hafa sótt ýmis þjónustufyrirtæki og eru vélsmiðjurnar veigamesta viðbótin. Þau hafa verið að koma sér upp var- anlegri aðstöðu á svæðinu. Einnig alls óskylt framleiðslufyrirtæki, fóð- urverksmiðjan Lífland sem þrífst vel í nábýli við vélsmiðjurnar. Þessar vikurnar eru tvö endur- vinnslufyrirtæki sem meðal annars munu endurvinna afgangsmálma frá álveri Norðuráls að byggja hús yfir starfsemi sína. Endurvinnsla álgjalls hefst í sumar og stálendurvinnsla tekur til starfa í byrjun næsta árs. Faxaflóahafnir sjá mikla þróunar- möguleika á svæðinu. Verið er að undirbúa lengingu hafnarkants til að þjóna nýjum fyrirtækjum á stækk- uðu athafnasvæði. Þar hafa verið skipulagðar 80-90 atvinnulóðir. „Inn- viðirnir eru nógu sterkir til að taka við frekari uppbyggingu. Við erum komnir í þá stöðu að við getum leitað eftir fyrirtækjum sem við teljum falla vel að framtíðaráætlunum okk- ar. Það eru minni framleiðslufyrir- tæki sem hafa þörf fyrir hafnar- aðstöðu og skapa störf og umsvif í kringum sig en valda lágmarks rösk- un á umhverfinu,“ segir Gísli Gísla- son, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Orkan er ígildi atvinnu Uppbyggingin grundvallast á að- gengi að raforku. Á Grundartanga er öflugur tengipunktur og Landsnet er að undirbúa styrkingu háspennu- virkja. „Í orkunni eru fólgin tækifæri til atvinnusköpunar. Ég get vel skilið að það þurfi að ganga af hófsemd um orkuauðlindirnar en orkan er ígildi atvinnu. Ef við viljum vinna á at- vinnuleysinu þurfum við að virkja þessa auðlind,“ segir Gísli. MFjölbreyttari flóra »22-23 Þúsund manna vinnustaður  Stóriðjan á Grundartanga dregur að sér þjónustufyrirtæki  Faxaflóahafnir sækjast nú eftir minni framleiðslufyrirtækjum til að gera flóruna fjölbreyttari Morgunblaðið/RAX Athafnir Geislar sólar brjóta sér leið niður á athafnasvæði Elkem. Starf- semin á Grundartanga verður fjölbreyttari með hverju nýju fyrirtæki. Börnin taka virkan þátt í páskahátíðinni enda margir frídagar og fjölskyldurnar eru gjarnan á faraldsfæti yfir hátíðina. Vinkonurnar Freyja, Hjördís Freyja og Elín Björt komu sér upp þessu fína páskaungabúi í bakgarðinum í blíðviðrinu sem ríkt hefur á landinu í vikunni fyrir páska. Morgunblaðið/Golli Gleðilega hátíð  Hugmyndir eru uppi um að setja á laggirnar eggjabú í Hrísey í Eyjafirði með hátt í þúsund ís- lenskar land- námshænur. Í eyjunni stendur tómt 380 fer- metra húsnæði sem var áður ein- angrunarstöð fyrir svín og er hug- myndin að nýta það undir hæn- urnar. Stefnt er á að eggja- framleiðslan verði lífræn enda Hrísey með lífræna vottun. »20 Hamingjusamar hænur í Hrísey Hani Eggin úr Hrís- ey verða lífræn.  „Það stendur allt í blóma. Öll tún hvanngræn og menn geta farið að keyra út skít og plægja,“ segir Björn Harðarson, bóndi í Holti í Flóa. Jörð er klakalaus um mestallt land og gróður hefur því tekið vel við sér í gróðrartíðinni síðustu vik- urnar. Tún eru fagurgræn um allt Suðurland og einnig í bestu sveitum Norðurlands. Bændur eru farnir að huga að vorverkunum og einstaka menn farnir að plægja Páll Bergþórsson veðurfræð- ingur segir að spár geri ráð fyrir kólnandi veðri í næstu viku, sér- staklega norðanlands, og það geti skaðað nýgræðinginn. »4 Gróður hefur tekið vel við sér í hlýind- unum undanfarið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.