Morgunblaðið - 07.04.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
lífið? og innihélt 14 lög og texta eftir
ýmsa höfunda. Þar á meðal voru
Þórður, Hún hring minn ber, Undir
dalanna sól og Siglufjarðardraumur.
Mottó Sveins er þetta, stutt og
laggott: Ef menn ætla sér að gera
hlutina, þá er það hægt.
Bæti bara við tríóið
„Ég var formaður eldriborg-
arafélagsins og þegar voru skemmt-
anir var svo erfitt að fá hljóðfæra-
leikara, ég tala nú ekki um ef það
átti að vera dansleikur, svo ég hugsa
með mér, að ég stofni bara hljóm-
sveit, bæti bara við tríóið,“ heldur
Sveinn áfram frásögninni. „Og ég
talaði við Sigurjón Steinsson, vöru-
bílstjóra og harmonikkuleikara, og
fékk hann í gengið, og líka Ingimar
Þorláksson, sem var níu árum eldri
en ég, og spurði hvort hann væri til í
slaginn, því ég vissi að hann hefði
spilað á trommur þegar hann var
bakari í Ólafsfirði. „Ég get svosem
prófað það,“ sagði hann, „en senni-
lega er ég búinn að gleyma öllu.“ Og
það gekk allt upp.
Trommusett keypt með styrk
Og svo þegar ég er búinn að safna
þessu saman og við erum orðnir
þarna fimm, þá fer ég í sparisjóðs-
stjórann, Ólaf Jónsson, og spyr hann
hvort hann geti ekki styrkt okkur og
gefið okkur fyrir trommusetti. Það
var eitt til notað hérna í bænum og
kostaði 40 þúsund. „Ekki málið,“
sagði hann. Og við kaupum trommu-
settið af strák hér í Siglufirði og
byrjum á því að æfa uppi í Skál-
arhlíð, á dvalarheimili aldraðra, þar
sem fundir eldriborgarafélagsins
voru og eru haldnir, og hugsuðum
okkur að fá að geyma hljóðfærin í
geymslum þar, en það einhvern veg-
inn gekk ekki upp; þetta tók of mikið
pláss. Þá samdi ég við konu mína um
að fá æfingaaðstöðu í bílskúr heim-
ilisins, þar sem tríóið hafði æft. Sig-
urjón var helvíti flinkur á nikkuna
og Ingimar á trommurnar, þannig
að þetta hægt og rólega fór að verða
hljómsveit. Kúnstin var þessi, að
maður gaf sig ekki, heldur tók þessa
gutta á sálfræðinni, eins og maður
gerði til sjós áður fyrr, lokkaði fram
það sem maður vissi að var innan í
þeim.
Svo förum við að spila fyrir dansi
uppi í Skálarhlíð og eftir það á Síld-
arævintýrinu, bæði tríóið sér og
hljómsveitin, þetta fór svona eftir
því um hvað var beðið. Jafnframt
þessu æfðum við tvisvar í viku í
tríóinu, á þriðjudögum og fimmtu-
dögum, og svo var hljómsveitaræf-
ing á laugardögum. Og við tókum
Bátsmannstríódiskinn upp hérna í
skúrnum.“
Mannaskipti í sveitinni
Svo gerist það að Ingimar veikist
og treystir sér ekki lengur í þetta.
Sæti hans tekur Þorsteinn Sveins-
son, nú 46 ára, og jafnframt yngsti
maðurinn í grúppunni. Og svo þegar
Júlíus gítarleikari hættir gengur
Ómar Hauksson, endurskoðandi og
bassaleikari, til liðs við þá, en engan
fundu þeir sem spilaði á gítar og var
tilkippilegur.
„Þegar hér er komið sögu fórum
við að spila meira opinberlega,
reglulega á Síldarævintýrinu, í
Ólafsfirði, í Lónkoti í Skagafirði,
Ljósheimum innan við Sauðárkrók,
Hótel Örk í Hveragerði og víðar,“
segir Sveinn. „Um þetta leyti hugsa
ég með mér að það væri gaman að
Stuð að hætti Heldrimanna
Eina bílskúrsbandið sem er starfandi á Siglufirði „Það er bara verst að við skyldum ekki byrja á
þessu miklu fyrr,“ segir aðalsöngvarinn og forsprakkinn Sveinn Björnsson, sem er að verða 77 ára
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Við trommusettið Sveinn Björnsson, aðalsöngvari og prímus mótor Heldri-
manna. Þeir félagarnir áforma að gefa út a.m.k. einn disk til viðbótar.
VIÐTAL
Sigurður Ægisson
sae@sae.is
Einn er vörubílstjóri, annar gamall
togarajaxl og verkstjóri, sá þriðji
fyrrverandi bóndi, sá fjórði endur-
skoðandi og sá fimmti tónlistarkenn-
ari og sjoppueigandi. Samanlagður
aldur þeirra er 326 ár, meðalaldur
65,2 ár. Saman mynda þeir eina bíl-
skúrsbandið á Siglufirði og eru ný-
búnir að gefa út disk. Þetta eru
Heldrimenn og þeir eru flottir.
„Upphafið að þessu öllu var það,
að ég var í Lionsklúbbnum hér í
bænum og þar tróðum við upp, ég og
annar félagi, Júlíus Hraunberg, til
að skemmta, sungum raddað, og það
tókst svo vel að menn voru að biðja
okkur um að syngja helst á hverjum
fundi eftir það; þetta var veturinn
2006-2007,“ segir forsprakkinn og
aðaldriffjöðrin í hópnum, Sveinn
Björnsson, að verða 77 ára, þegar
blaðamaður spyr um tildrög að
stofnun þessarar merkilegu og vin-
sælu hljómsveitar.
Harmonikkuleikari bætist við
„Við förum svo að æfa okkur sam-
an, bara til að hafa gaman af því,
hann var undirleikarinn, spilaði á
gítar. Litlu síðar bættist okkur liðs-
auki í Vorboðakórinn, kór aldraðra,
þegar Hjálmar Jónsson, fyrrverandi
bóndi á Stóru-Brekku í Fljótum,
gekk þar inn, og ég frétti að hann
spilaði á harmonikku. Við Júlíus
ákváðum að reyna að fá hann til liðs
við okkur og það var auðsótt. Þannig
varð Bátsmannstríóið til.“
Vorið 2009 gáfu þremenningarnir
út geisladisk. Sá nefndist Hvað er
Lífeyrissparnaður
með trausta
og góða ávöxtun
Landsbankinn býður fjölbreyttar leiðir í lífeyrissparnaði og
er traustur bakhjarl. Íslenski lífeyrissjóðurinn og Lífeyrisbók
Landsbankans hafa skilað góðri ávöxtun undanfarin þrjú ár.