Morgunblaðið - 07.04.2012, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Atvinnuauglýsingar
Raðauglýsingar 569 1100
Háskólalest Háskóla Íslands
leggur aftur af stað í langferð
um landið og heimsækir fjóra
áfangastaði í ár. Þar verður
bæði boðið upp á námskeið úr
Háskóla unga fólksins fyrir
nemendur í eldri bekkjum
grunnskóla og blásið til vís-
indaveislu fyrir yngri sem
eldri.
Á hundrað ára afmæli Há-
skóli Íslands á sl. ári var
tímamótunum fagnað víða um
land með svokallaðri Há-
skólalest sem ferðaðist um
landið við miklar vinsældir.
Lögð var áhersla á lifandi vís-
indamiðlun til ungs fólks og
fjölbreytta dagskrá fyrir alla
fjölskylduna. Viðtökur voru
góðar og þeir atburðir sem
efnt var til voru fjölsóttir.
Nú á vordögum leggur
lestin af stað á ný með fræði
og fjör fyrir landsmenn. Í maí
verða heimsóttir fjórir
áfangastaðir: Kirkjubæjar-
klaustur, Siglufjörður,
Grindavík og Ísafjörður.
Í Háskólalestinni verða
valin námskeið úr Háskóla
unga fólksins fyrir grunn-
skólanemendur en að auki
verður slegið upp litríkum
vísindaveislum fyrir alla
heimamenn með stjörnuveri,
sýnitilraunum, eldorgeli,
mælingum og pælingum að
ógleymdu Sprengjugenginu
landsfræga.
sbs@mbl.is
Leggja af stað
í lestarferð
Tilraunir Vísindin efla alla
dáð, orti skáldið góða.
Háskólalestin á fjórum stöðum
Heimild skattstjóra til endur-
greiðslu á virðisaukaskatti af
vinnu iðnaðarmanna á bygg-
ingastað við endurbætur á
íbúðar- og sumarhúsum gildir
áfram út þetta ár og átakið
Allir vinna varir fram í byrjun
næsta árs. Stjórnvöld í sam-
starfi við SVÞ, Samtök versl-
unar og þjónustu, VR og
Samtök iðnaðarins hafa
hrundið af stað herferð til að
minna á átakið og birtast aug-
lýsingar um það á næstunni.
Árangur mældur
Capacent mældi árangur
Allir vinna árið 2010. Þá kom í
ljós að þúsundir heimila voru
sammála að öllu eða miklu
leyti þeirri staðhæfingu að
farið hefði verið í fram-
kvæmdir í eigin ranni fyrst og
síðast sakir þess að hægt var
að fá virðisaukaskatt vegna
aðkeyptrar vinnu iðnaðar-
manna endurgreiddan alveg í
botn. Er því áfram haldið með
þessi kostakjör.
sbs@mbl.is
Vaskur áfram end-
urgreiddur af vinnu
Smíði Iðnaðarmenn á fullu
og skattaafsláttur af vinnu.
Morgunblaðið/Ómar