Morgunblaðið - 07.04.2012, Qupperneq 48
48 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
„Þetta verða bara fjölskylda konunnar og mitt nánasta sem koma í
mat, engin stórveisla,“ segir Bjargþór Ingi Aðalsteinsson á Akra-
nesi sem er fertugur í dag. „Hugmyndin var að leigja sumarbústað
og taka krakkana með en svo reyndist erfitt að fá bústað á þessum
tíma. En þetta eru miklir afmælisdagar, konan mín er 37 ára á
fimmtudeginum, bróðir minn 41 árs á föstudeginum. Og tvö af börn-
unum okkar eru fædd 19. mars!“
Eiginkonan er Jóhanna Ólöf Reynisdóttir, þau hjónin eiga sam-
anlagt sex börn á aldrinum tæpra tveggja til 13 ára. Bjargþór hefur
unnið hjá Norðuráli á Grundartanga í fimm ár og er sáttur, stutt sé í
vinnuna með rútu. Fyrirtækið borgar ferðir og allan mat á vinnu-
staðnum. Og utandeildarlið í fótbolta er á staðnum.
„Ég hef unnið víða við löndun, við rækjuvinnslu og var líka til
sjós, vann í byggingariðnaði og á hjólbarðaverkstæði. Ég fæddist á
Neskaupstað en ólst upp á Stöðvarfirði, á Siglufirði og Akureyri, bjó
líka í Reykjavík en undanfarin sex ár á Akranesi. Við leigjum núna,
það er dýrt en við vorum svo heppin að selja íbúðina okkar korteri
fyrir hrun og skuldum ekki.“
Bjargþór lauk grunnskóla og fór að vinna en segist sjá eftir því
núna að hafa ekki haldið áfram. Nú er búið að setja á fót stóriðju-
skóla í álverinu og Bjargþór langar að nýta sér hann. kjon@mbl.is
Bjargþór Ingi Aðalsteinsson er 40 ára í dag
Feðgar Bjargþór Ingi með son sinn, Ingimund Frey, á brúðkaups-
deginum fyrir tveimur árum. Hjónin eiga alls sex börn.
Mikill afmælistími í
fjölskyldunni
H
allur fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp í
Fossvogi og á Soga-
vogi. Þá var hann í
sveit í Hallkels-
staðahlíð á Snæfellsnesi í fjórtán
sumur, þar sem hann sótti kýrnar,
skildi mjólk, strokkaði smjör og vitj-
aði um silunganet með Einari Halls-
syni, föðurbróður sínum.
Próf í stjórnun og stefnumótun
Hallur lauk stúdentsprófi frá MH
1983, lauk BA-prófi í sagnfræði við
HÍ 1992, dúxaði í prófi í rekstr-
arfræði frá Samvinnuskólanum á Bif-
röst 1995, lauk þar prófi í rekstr-
arfræði II 1998, lauk fyrri hluta
M.Sc.-prófs í stjórnun og stefnumót-
un við viðskiptadeild Háskóla Íslands
1998 og síðari hluta M.Sc.-prófs frá
Handelshøjskolen í Kaupmannahöfn
1999.
Hallur var háseti á strand-
ferðaskipum Ríkisskipa sumrin 1978-
80, þjálfaði yngri flokka og meist-
araflokk kvenna í handbolta hjá Vík-
ingi 1978-84, starfaði hjá
Æskulýðsráði Reykjavíkur 1979-86,
var framkvæmdastjóri SUF 1985,
starfsmaður félagsmiðstöðvar Tóna-
bæjar 1987-89 og þjálfaði yngri
flokka HK í handbolta 1989-90.
Fjölmiðlar og ráðgjöf
Hallur var með unglingasíðu á
Morgunblaðinu 1983-84, var blaða-
maður við Tímann 1986-90, frétta-
maður og dagskrárgerðarmaður við
Bylgjuna 1990, dagskrárgerð-
armaður á Rás 1 1990-91, var næt-
urvörður við Alþingi sumarið 1991 og
kenndi á Vopnafirði í grunnskóla og
við öldungadeild 1991.
Hallur sinnti sérverkefni á vegum
Hallur Magnússon 50 ára á páskadag
Ferming Fjölskylda Halls, í sínu fínasta pússi, í Kirkju óháða safnaðarins við fermingu Styrmis. Í aftari röð eru Ingi-
björg Ósk, kona Halls, þá Hallur og Álfrún Elsa, en í fremri röð eru Magnús, Styrmir og Gréta.
Hálfleikur hjá Halli
Réttir Hallur, tíu ára, ásamt frænku sinni í Hallkelsstaðarhlíð í réttum.
Einar Haraldsson,
Urriðafossi, Flóa-
hreppi, er fimm-
tugur í dag, 7. apr-
íl. Eiginkona hans
er Lilja Böðv-
arsdóttir og munu
þau taka á móti
gestum í félagsheimilinu Þjórsárveri í
kvöld frá kl. 20.30. Allir ættingjar og
vinir velkomnir.
50 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Elísa Ósk fæddist 7.
september kl. 2.18. Hún vó 4.070 g og
var 51 cm löng. Foreldrar hennar eru
María Ósk Albertsdóttir og Hermund-
ur Sigurðsson.
Nýir borgarar
Kópavogur Arnar Máni fæddist 29.
júlí kl. 10.25. Hann vó 4.345 g og var
53 cm langur. Foreldrar hans eru
Steinunn Dúa Jónsdóttir og Vignir
Guðjónsson.
Sigríður Vil-
hjálmsdóttir frá
Vestmannaeyjum
er áttatíu og fimm
ára í dag, 7. apríl.
Árnað heilla
85 ára
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
...sem þola álagið!
TRAUSTAR VÖRUR...
VIFTUR
Í MIKLU ÚRVALI
Það borgar sig að nota það besta!
www.falkinn.is
• Bor›viftur
• Gluggaviftur
• I›na›arviftur
• Loftviftur
• Rörablásarar
• Ba›viftur
• Veggviftur