Morgunblaðið - 07.04.2012, Blaðsíða 50
50 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. APRÍL 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er eitt og annað sem þú ert að
velta fyrir þér þessa dagana en þér finnst
þú ekki fá neinn botn í þau mál, ennþá.
20. apríl - 20. maí
Naut Sambönd reynast flókin og reyna
virkilega á. Láttu áhyggjuhugsanir lönd og
leið og leitaðu þér athvarfs um sinn í innsta
kjarna þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Nú er kominn tími til athafna í
stað orða. Reyndu að takmarka orðaflaum-
inn og gefa öðrum færi á að segja sína
sögu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú færð einhverjar meiriháttar frétt-
ir sem lyfta þér upp í hæðir. Trú þín á hið
góða veitir þér hugrekki til þess að mæta
því sem koma skal.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú fer að sjá fyrir endann á því álagi
sem þú hefur búið við og þá máttu búast
við umbun erfiðis þíns. Ekki gera út af við
samstarfsfólkið, dragðu andann.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur einbeitt þér um of að and-
legri líðan þinni og um leið vanrækt líkama
þinn. Farið sérstaklega varlega í viðskiptum
sem tengjast sjúkrahúsum og skemmtana-
iðnaðinum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Taktu það ekki nærri þér þótt þú neyð-
ist til þess að verja deginum með erfiðri
manneskju. Spyrðu sjálfa/n þig að því hvort
væntingar þínar séu raunsæjar.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þetta er góður dagur til að
gera umbætur í vinnunni. Láttu bara sem
þú sjáir ekki vandamálin og þá færðu
örugglega þinn frið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Staldraðu við og skoðaðu tengsl
þín við vini og vandamenn. Fólk er óvenju
vinsamlegt og samvinnuþýtt og getur því
hugsanlega fundið lausnir sem verða öllum
til góðs.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Litlu, gætilegu skrefin sem þú
tekur til þess að bæta starfsaðstöðuna
leiða til stórfelldra breytinga. Ekki láta aðra
letja þig í nýrri tekjuöflun.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Forðastu peningaviðskipti við
vini eða félaga í dag. Leitaðu leiða til að
létta á skuldabyrði þinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til fjáröflunar.
Leyfðu þér að njóta alls hins góða í lífinu og
láttu aðra finna hversu vel þér líður í návist
þeirra.
G
re
tt
ir
S
m
á
fó
lk
H
ró
lf
u
r
h
ræ
ð
ile
g
i
G
æ
sa
m
a
m
m
a
o
g
G
rí
m
u
r
F
er
d
in
a
n
d
ELLA, ÉG ER
MEÐ KVEF
ÉG VAR AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR MÉR
HVORT ÞÚ VILDIR GEFA MÉR SÚPU
ELLA, SKEIÐAR ERU
EKKI ÆTLAÐAR TIL ÞESS
ÁI!
4 DAGAR Í
AFMÆLI
BEET-
HOVENS
BAKAÐU
KÖKU
FAGNAÐU
MEÐ
VINUM
ÞÍNUM
SKEMMTU
ÞÉR, ÞETTA
VERÐUR
LANGUR
VETUR
VIÐ ERUM STRANDAÐIR
Á EYJU LANGT FRÁ LANDI
OG ÞAÐ ER
ENGINN AÐ
FARA AÐ
BJARGA OKKUR
ÞANNIG AÐ VIÐ
NEYÐUMST TIL AÐ
NOTA GREIND OKKAR
TIL AÐ BJARGA
OKKUR
HVAÐ
LEGGURÐU TIL
AÐ VIÐ GERUM?
VIÐ ÞURFUM
AÐ BYRJA Á ÞVÍ
AÐ SYNDA Í ÁTT
AÐ LANDI
ÞEIR
SEGJA, SENDU
EITT SKÝ FYRIR
ENSKU, TVÖ
FYRIR APACHE
OG ÞRJÚ FYRIR
NAVAJO...
Víkverji er kominn með nýja bókGunnlaugs Jónssonar í hend-
urnar en hún heitir Ábyrgðarkver.
Þar er bent á ábyrgðarleysið sem
var fólgið í því að vera með ríkis-
ábyrgðir á bönkunum. Hann telur
aðalástæður hrunsins ábyrgðarleysi
innistæðueigenda og lánardrottna
bankanna, því þar sem ríkið ábyrgð-
ist bankana var lánveitendum sama
þótt bankarnir tækju of mikil lán
miðað við eigið fé, fjárfestu í áhættu-
sömum eignum og lánuðu eigendum
sínum fé.
x x x
Í bókinni er líka bent á að stundumfæst betri ávöxtun með meiri
áhættu. Þegar ríkisábyrgð er á
bönkum munu þeir bankar sem taka
mesta áhættu því stundum geta boð-
ið hærri vexti en aðrir, án þess að
viðskiptavinurinn telji sig taka meiri
áhættu. Þannig soga áhættusamir
bankar til sín fjármagn og hinir tapa
í samkeppninni. Það verður jafnvel
lífsnauðsynlegt fyrir banka að fara
geyst.
x x x
Höfundur bókarinnar ræðir einnigum hugtak sem nefnist upp á
ensku moral hazard en hefur verið
þýtt á íslensku bæði sem freistni-
vandi og siðferðisháski. Hann nefnir
sem einfalt dæmi um siðferðisháska
þegar maður hefur greiðslukort ein-
hvers annars í veskinu og getur not-
að það til að kaupa vörur á kostnað
hans. Þannig er orðinn til siðferð-
isháski þegar manneskju er falin
forsjá fjár en hefur á sama tíma per-
sónulegan hag af því að taka gáleys-
islega áhættu með það. Þetta kann-
ast Víkverji við frá bönkunum
íslensku sem voru einkavæddir en
voru samt áfram í ríkisábyrgð.
x x x
Höfundur bendir einnig á hættunaá því þegar einhver annar þyk-
ist sjá um að gæta hagsmuna fólks-
ins. Fólk verði iðulega ábyrgð-
arlaust og sljótt þegar svo er.
Höfundurinn er því ekkert sér-
staklega hrifinn af fjármálaeftirliti
ríkisins sem hann bendir á að geti
sljóvgað fólk og gert það ábyrgð-
arlaust í því eftirliti sem það eigi að
sinna.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi,
hvaða dag Drottinn yðar kemur.
(Matth. 24, 42.)
Orðið „Apríl-hlaup“ vakti at-hygli mína, þegar ég var
að blaða í Stephani G. Steph-
anssyni sunnudaginn 1. apríl.
Þetta var yfirskrift vísu sem
hann hafði skrifað æskuvini sín-
um Sigurði Jónssyni frá Víði-
mýri þennan sama dag árið
1925 og lét fylgja: „Gott var að
heyra þig glaðari í bragði, þann
gadd af þér keyra sem veturinn
lagði! Og hefur vorið þó víst
„hlaupið apríl“ með heimskasta
móti, því hvergi bólar á því
enn!“
Fyrir kom að fennti í spor
forðum, og til baga –
sólina og sumrin vor
sáum ei alla daga.
Stephan kvartar yfir heils-
unni, karlarnir voru komnir á
áttræðisaldur, hann hafði ásett
sér að vera latur og fara vel
með sig um tíma, – hvað sem
tautaði:
Á því hangir hugur vor
hrumur að ganga drengja-spor,
og að langa út í for
ef að fangið býður Vor.
Ég rifjaði upp í gær, að Þórð-
ur á Strjúgi hefði verið mesta
rímnaskáld 16. aldar. Kunnust
er Fjósaríma sem varðveittist á
vörum alþýðu: „Maður kemur að
bæ að heimta skuld og hittir
skulduþrjót sinn í húsi; verður
þeim brátt sundurorða, og lenti í
handalögmáli, en konur komu að
og skildu þá. Rekur skáldið síð-
an kappa úr fornsögum, þá er
hann veit mesta, en enga finnur
hann jafningja þessara tveggja,
því að aldrei hafa þeir átt vopna-
viðskipti í fjósum,“ segir Páll
Eggert. Þetta er upphafserindið:
Hlýt ég enn, ef hlýtt er sögn,
hljóða mýkja strenginn,
gleðja fólk en gleyma þögn,
glepji fyrir mér enginn.
Páll Eggert segir að hvert
mannsbarn á Íslandi kunni enn
(árið 1926) þessar vísur úr
Fjósarímum og má vera að svo
sé enn.
Karlamagnús keisari dýr
kenndi trúna hreina;
aldrei hann fyrir aftan kýr
orrustu háði neina.
Þórður hreða þegna vo,
þessi bjó að Ósi;
breytti aldrei bóndi svo
að berði menn í fjósi.
Rollant hjó með Dýrumdal,
drjúgum vakti hildi;
bardaginn í baulusal
byrja aldrei vildi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vorið hljóp apríl
Vísnahorn
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta í 90 ár