SunnudagsMogginn - 15.04.2012, Qupperneq 40
40 15. apríl 2012
Lífsstíll
Mér finnst alveg ógurlegagaman að horfa á skemmti-lega sjónvarpskokka. Ekkihef ég tölu á sjónvarps-
stöðvunum heima fyrir en oftast enda ég
á því sama. Food Network er minn
áfangastaður. Alltaf spennandi og lang-
oftast ljúffengur. Nema verið sé að elda
eitthvað með geitaosti eða skordýrum. Þá
segi ég stopp og breyti uppskriftinni eftir
mínu höfði. Það getur verið erfitt að
horfa á Food Network á meðan maturinn
mallar í ofninum og garnirnar gaula. En
ég læt mig samt hafa það og fæ oft ýmiss
konar góðar hugmyndir frá snjöllum
kokkum sem elda mat frá öllum heims-
hornum. Einn af mínum uppáhalds er
Guy Fieri. Maðurinn með aflitaða brodd-
galtarhárið. Hann hefur nú öllu betri
smekk á mat en hárgreiðslum og þvælist
um öll Bandaríkin og heimsækir hinn
hefðbundna bandaríska „diner“ eða
matstofu líkt og ágætt er að segja á ís-
lensku. Manni verður nú stundum dálítið
illt í kransæðunum við að horfa á helling
af djúpsteiktum mat hrúgað saman og
borið fram með vænni slettu af sósu og
frönskum. En margt er líka girnilegt.
Eins og heimatilbúið roastbeef sem sett er
á stórt, ristað samlokubrauð með sósu og
grænmeti. En Guy ferðast ekki bara um
og treður sig í mat heldur er hann sjálfur
dágóður kokkur og hefur gefið út mat-
reiðslubækur. Mataráhuginn kviknaði
þegar hann var 10 ára. Þá byrjaði hann að
selja salthringi (pretzel) í litlum bíl með
föður sínum. Eftir að hafa staðið við
uppvask og safnað pening í sex ár átti
Guy loks nóg til að halda í matreiðsl-
unám til Frakklands.
Kannski hann ætti næst að reyna að
opna þar ekta bandaríska matstofu? Eða
ekki. Fólk vill sjálfsagt ekkert með djúp-
steiktar froskalappir með jalapeno og
sterkri chilísósu hafa að gera. Samt aldrei
að vita, þar sem stundum virðist meira
vera betra í matarheiminum.
Guy Fieri þykir vinalegur fír og heilsar hann hér kumpánlega upp á aðdáanda sinn á matar- og vínhátíð í Flórída fyrr á árinu.
AP
Djúpsteiktur hrollur
Lífið og
tilveran
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Að horfa á sjón-
varpskokka sýna
listir sínar er góð
skemmtun. Oftast
elda þeir eitthvað
gómsætt þannig að
maður fær vatn í
munninn.
’
Manni verður nú
stundum dálítið illt í
kransæðunum við að
horfa á helling af djúpsteikt-
um mat hrúgað saman.
Sólarhylling
Hafðu fætur saman og handleggi niður með hlið-
um. Andaðu að þér, teygðu handleggi upp fyrir höfuð
og myndaðu boga.
Andaðu frá þér, beygðu þig fram og snertu gólfið,
reyndu að hafa fótleggi beina.
Andaðu að þér, horfðu fram og hafðu lófana flata
á gólfinu. Taktu stórt skref aftur á bak með hægri
fæti og láttu fremri fótinn mynda rétt horn. Reyndu
nú að rétta úr aftari fæti.
Andaðu frá þér, færðu vinstri fót aftur og hafðu
samhliða þeim hægri. Lyftu mjöðmunum og færðu
þungann aftur í hæla („hundastaða“).
Andaðu að þér, færðu þig niður á gólf. Komdu nú í
„cobra-stöðu“, þú myndar boga með líkamanum
með því að teygja vel á fótleggjum, lyfta bringu og
öxlum upp og aftur á bak og vera með olnboga
bogna.
Nú gerirðu hreyfingarnar aftur á bak. Andar frá
þér, lyftir aftur í „hundastöðuna“.
Andar að þér, stígur fram með hægri fæti, myndar
rétt horn með þeim fremri og hefur þann aftari bein-
an, lófa flata á gólfi.
Andar frá þér, stígur fram með vinstri fæti og færir
höfuðið að hnjám og snertir gólfið með fingrunum.
Andar að þér, stendur á fætur með handleggi fyrir
ofan höfuð.
Andar frá þér, færir hendur saman í bænastellingu
og heldur þeim að bringu.
1001 leið til að slaka á
Susannah Marriott, Salka
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Njóttu sólarinnar og andaðu henni að þér
Litagleði verður meira
ríkjandi þegar líða
tekur á vor. Þá kastar
maður loksins af sér
svörtum ham vetr-
arins og klæðist ein-
hverju dálítið léttara.
Tískuvikan í Islama-
bad hófst í vikunni og
ekki annað hægt að
segja en litagleðin
hafi verið við völd.
Þema vikunnar er að
styrkja við bakið á
ungum hönnuðum,
hvetja þá til áfram-
haldandi starfa og um
leið að halda í hefð-
bundnar aðferðir og
útlit.
Hér fara saman ým-
iss konar mynstur og
litir að því er virðist á
tilviljanakenndan hátt
en þó þannig að allt
smellpassi saman.
Litaglöð
tíska