Morgunblaðið - 12.05.2012, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
• Orkuveita Reykjavíkur leggur áherslu á góða þjónustu www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
59
66
6
05
/1
2
Sumarsala OR
Við tókum til á lagernum og bjóðum til sölu lagnaefni fyrir rafmagn, heitt
og kalt vatn, götulýsingu og fleira á sumarkjörum til 25. maí. Skoðaðu
sölutorgið okkar á www.or.is/lagnaefni og sendu inn fyrirspurn eða
tilboð þar sem fram kemur nafn tilboðsgjafa, netfang, símanúmer og
tilboðsfjárhæð í einstaka liði. Tilboð berist á netfangið utbod@or.is fyrir
kl.15.00 föstudaginn 23. maí 2012.
Frekari upplýsingar fást hjá Orkuveitu Reykjavíkur í síma 516 6339
og 516 6347 á virkum dögum milli kl. 13.00 og16.00.
Orkuveita Reykjavíkur áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Athygli vakti við afgreiðslubreytingar á Stjórnarráðinu
í gær hve Hreyfingin stimplaði
sig rækilega inn í stjórnarliðið.
Ríkisstjórnin missti frá sér þing-
menn úr stjórnarflokkunum og
þá stóð ekki á þingmönnum
Hreyfingarinnar að standa vakt-
ina við öndunarvélina og halda
áfram hjartahnoðinu.
Jóhanna og Steingrímur getaþví haldið áfram óþurft-
arverkum sínum í boði þing-
mannanna þriggja sem að-
spurðir láta sem þeir hafi ekkert
með líf ríkisstjórnarinnar að
gera.
Með aðstoðinni tókst Jóhönnuog Steingrími að stíga enn
eitt skrefið í aðlögun Íslands að
Evrópusambandinu og fylgja
kröfum þess um skipan ráðu-
neyta og ríkisstofnana hér á
landi.
Og þingmennirnir þrír láta sighafa það þó að aðstoðin að
þessu sinni kosti ríkissjóð nokk-
ur hundruð milljónir króna sem
þar með verða ekki nýttar í þá
málaflokka sem þessir þingmenn
hafa sagst hafa mestan áhuga á.
Á næstunni mun ef til villkoma í ljós hvaða endur-
gjald kemur í staðinn fyrir
hjartahnoðið.
Nema þremenningarnir látiorðið nægja að áframhald-
andi hnoð fresti hinu óhjá-
kvæmilega; alþingiskosningum.
Hjartahnoð
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 11.5., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 6 alskýjað
Akureyri 10 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 10 skýjað
Vestmannaeyjar 8 skýjað
Nuuk -1 snjókoma
Þórshöfn 7 heiðskírt
Ósló 7 skúrir
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Stokkhólmur 16 skúrir
Helsinki 12 skýjað
Lúxemborg 17 skúrir
Brussel 13 skýjað
Dublin 11 léttskýjað
Glasgow 10 skýjað
London 16 heiðskírt
París 17 skýjað
Amsterdam 15 léttskýjað
Hamborg 16 skýjað
Berlín 22 skýjað
Vín 26 heiðskírt
Moskva 21 heiðskírt
Algarve 27 heiðskírt
Madríd 32 heiðskírt
Barcelona 23 heiðskírt
Mallorca 23 heiðskírt
Róm 27 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 12 léttskýjað
Montreal 15 léttskýjað
New York 16 heiðskírt
Chicago 21 heiðskírt
Orlando 28 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:21 22:29
ÍSAFJÖRÐUR 4:03 22:56
SIGLUFJÖRÐUR 3:45 22:40
DJÚPIVOGUR 3:45 22:04
Rangt nafn birtist í frétt um fjalla-
skíðamenn á forsíðu Morgunblaðs-
ins í gær. Rétt er að konan, sem á
mynd sést renna sér niður Hestinn í
Skíðadal, heitir Þórunn Bjarney
Garðarsdóttir. Er beðist velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Rangt nafn
Johan Rönning, Bernhard og Sæ-
mark eru fyrirtæki ársins 2012. Þau
voru valin í kjölfar árlegrar, nafn-
lausrar könnunar VR sem lögð var
fyrir ríflega 20.000 starfsmenn ís-
lenskra fyrirtækja.
Í hópi stærri fyrirtækja (yfir 50
starfsmenn) hlaut raftækjaverslunin
Johan Rönning hf. hæstu einkunn. Í
hópi meðalstórra fyrirtækja (20-49
starfsmenn) var sigurvegarinn bíla-
umboðið Bernhard ehf. en fisk-
útflutningsfyrirtækið Sæmark í hópi
minni fyrirtækja (færri en 20 starfs-
menn). Sæmark hlaut hæstu ein-
kunn sem gefin hefur verið í könn-
uninni frá upphafi eða 4,97 en hæsta
mögulega einkunn er 5.
Könnunin var gerð í febrúar og
mars og sá Capacent um fram-
kvæmd og úrvinnslu. Svarhlutfall
var 47% .
Valin fyrirtæki ársins
í árlegri könnun VR
Ljósmynd/hag
Gleði Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, afhendir Hugrúnu
Harðardóttur, sölustjóra Sæmarks, verðlaunagripinn.
Fíkniefni fundust við húsleitir í
þremur íbúðum í fjölbýlishúsi í
Reykjavík í fyrradag. Í einni þeirra
var að finna um 70 grömm af am-
fetamíni, sem voru falin í frysti.
Rúmlega fertugur karl var handtek-
inn í þágu rannsóknarinnar en hann
tengist Hells Angels, segir í frétt frá
lögreglunni.
Í annarri íbúð fundust bæði am-
fetamín og marijúna hjá barnshaf-
andi konu á þrítugsaldri og viður-
kenndi hún neyslu á því síðarnefnda.
Lögreglan rakst svo á fullkominn
ræktunarbúnað í þriðju íbúðinni. Við
frekari leit var einnig að finna mari-
júana í sömu íbúð. Utan við húsið
hafði lögreglan afskipti af karli á þrí-
tugsaldri, sem áður hefur komið við
sögu hjá lögreglu í fíkniefnamálum
og einnig vegna tengsla við skipu-
lagða brotastarfsemi erlendra
glæpamanna sem hingað hafa kom-
ið. Við leit á manninum og í bíl hans
var lagt hald á meira af amfetamíni
og marijúana, segir í frétt frá lög-
reglu.
Fíkniefni
í frystinum