Morgunblaðið - 12.05.2012, Síða 10
Kvennakór Hafnarfjarðar syngur inn
sumarið í dag með tónleikum sem
bera yfirskriftina Allir vindar blunda.
Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt,
allt frá klassískum perlum tónlistar-
sögunnar til íslenskrar dægur-
tónlistar. Ferðast verður á vængjum
ástarinnar frá Bandaríkjunum til
meginlands Evrópu, staldrað við í
Frakklandi og hlustað á franska kvik-
myndatónlist og að lokum verður
takturinn sleginn að hætti Gyðinga
og Afríkubúa. Tónleikarnir verða
haldnir í Hásölum við Strandgötu
laugardaginn 12. maí kl. 16:00. Miða-
verð er 2.000 krónur og fer miðasala
fram hjá kórkonum og við inngang-
inn.
Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar
Allir vindar blunda
Tónleikar Kórinn heldur með gesti í ferðalag á vængjum ástarinnar.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Barnahátíð er nú í fullumgangi í Reykjanesbæ.Upphaf hennar má rekjatil Listahátíðar sem
haldin hefur verið fyrir leik-
skólabörn í Duushúsum und-
anfarin 6 ár en hún markar jafn-
framt upphaf Barnahátíðar.
Hátíðin var sett sl. fimmtudag og
þá var elstu árgöngum leikskól-
anna 10 í Reykjanesbæ boðið í Du-
ushús, sem höfðu tekið á sig æv-
intýralegan blæ enda þema
Listahátíðar „Sögur og ævintýri“.
Þau byrjuðu á því að horfa á leik-
túlkun á ævintýrinu um Búkollu
frá einum leikskólanna og sungu
svo saman lög sem þau hafa verið
að æfa. Þá var ævintýraveröldin í
listasalnum afhjúpuð og það voru
mörg „vá!“ sem heyrðust um sal-
inn. Þar eru saman komnar túlk-
anir á ævintýrum sem allir
þekkja, Gilitrutt, Geitunum
þremur, Tuma þumli, Grísunum
þremur, Skilaboðaskjóðunni,
Dimmalimm, Pétri og úlfinum,
Mjallhvíti og dvergunum 7, Jóa
og baunagrasinu, en einnig
minna þekktum eins og Aski og
prinsessunni, Undradrekanum
Aski, Tröllabarninu Dynk og Æv-
intýri grjónagrautar, Ninja vél-
mennis og krókódíls sem getur
hoppað í vatni. Grunnskólabörn
taka einnig þátt í listahátíð með
„Listaverkum í leiðinni“ en úrval
úr verkum þeirra eru til sýnis á
fjölförnum stöðum víðsvegar um
bæinn. Listahátíð stendur til 24.
maí nk.
Landnámsdýragarðurinn
opnaður fyrir sumarið
Hápunktur Barnahátíðar er
hins vegar í dag og á morgun.
Auk listahátíðar verður boðið upp
á fjölbreytta dagskrá víða um bæ-
inn, svo allir geti fundið eitthvað
Einu sinni var …
Börn í Reykjanesbæ verða áberandi í menningarlífinu um helgina. Á fimmtudag
hófst Barnahátíð sem stendur fram á sunnudag og auk þess að geta valið úr fjölda
dagskrárliða eiga þau listaverk út um allan bæ.
Útfærsla á Rauðhettu Það eru ekki bara
klassísk ævintýri til sýnis á Listahátíð. Höf-
undar þessa ævintýris eru 3 leikskólastúlkur.
Kýrin úr Gilitrutt Það er margt sem er ævintýralegt eins og litli álfurinn í
eyranum á kúnni úr ævintýrinu um Gilitrutt.
Stundum grípur mann nostalgía
þannig að maður verður skyndilega
að heyra ákveðið lag eða jafnvel
borða eitthvað sem minnir mann á
gamla og góða tíma. Til eru ýmsar
vefsíður þessu tengdu á verald-
arvefnum. Ein þeirra er
things90skidsrealize.com og er kjör-
in fyrir þá sem voru á unglingsaldri
eða örlítið yngri á níunda áratugnum.
Sælgætið, bíómyndirnar og almenn
dægurmenning er rifuð upp á léttan
og skemmtilegan hátt á þessari síðu.
Vefsíðan www.things90s-
kidsrealize.com/
Strákaband Þessir voru vinsælir.
Aftur í tímann
Sönghópur Átthagafélags Vest-
mannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu
(ÁtVR) heldur vortónleika í dag, laug-
ardag 12. maí, í kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg í Reykjavík.
Að þessu sinni leikur fimm manna
hljómsveit með hópnum, Árni Áskels-
son á slagverk, Ársæll Másson á gít-
ar, Gísli Helgason á blokkflautur,
munnhörpur og fleira, Þórólfur
Guðnason á bassa og Hafsteinn Guð-
finnsson á gítar.
Á efnisskránni eru Eyjalög og
textar, verður fyrri hluti tónleikanna
tileinkaður lögum Gísla Helgasonar
blokkflautuskálds og lagasmiðs í til-
efni þess að hann varð nýlega 60 ára
en Gísli er meðlimur í hópnum. Á
seinni hluti tónleikanna verða flutt
lög og textar úr Eyjum eftir ýmsa höf-
unda þar á meðal Oddgeir Krist-
jánsson.
Stjórnandi kórsins er Hafsteinn G.
Guðfinnsson. Hefjast tónleikarnir
klukkan 15 og er miðasala við inn-
ganginn en aðgangseyrir er 2000 kr.
Allir eru hjartanlega velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
Vortónleikar ÁtVR í kirkju Óháða safnaðarins
Eyjalög Gísla Helgasonar
og fleiri á dagskránni
ÁtVR Sönghópurinn hefur verið starfandi í sjö ár og eru félagar um fjörutíu talsins.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.