Morgunblaðið - 12.05.2012, Page 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmur
Vorið er komið við Breiðafjörð,
þótt kaldir vindar blási enn. Með
vorkomunni lifnar yfir bæjar-
bragnum. Eyjabændur fara að leita
eggja og sinna öðrum hlunnindum
sem eyjarnar bjóða upp á. Ferða-
menn eru farnir að heimsækja bæ-
inn og reikna ferðaþjónustuaðilar
með góðu ferðasumri.
Í Stykkishólmi er margt í boði
fyrir ferðamenn. Nýjung í ferða-
þjónustu eru daglegar ferðir um
Breiðafjörð á hraðskreiðum opnum
bátum.
Það virðist vera góð fjárfesting
að eiga íbúðarhús í Stykkishólmi
Frá efnahagshruni hefur fasteigna-
verð lækkað í flestum sveitar-
félögum á Íslandi. Það sama á ekki
við um Stykkishólm. Á síðustu
þremur árum hefur fasteignamat
húsa hækkað um 49% og í kjölfarið
fasteignaskattar um 41%. Fast-
eignamat tekur mið af kaupsamn-
ingum sem sýnir að fasteignir hafa
haldið verðgildi sínu og gott betur.
Það eru margir sem hafa áhuga
á því að drýgja tekjurnar með því að
stunda strandveiðar. 26 bátar
stunda þessa dagana strandveiðar
frá Hólminum. Í maí hafa þeir verið
að veiðum í sex daga og eitthvað er
eftir í potti mánaðarins. Það eru að-
eins eigendur bátanna sem mega
stunda strandveiðar og ef einka-
hlutafélag er eigandi bátsins dugar
að eiga aðeins 1% hlut í félaginu. Það
reynist ekki erfitt að uppfylla þá
kröfu.
Stykkishólmur er sú höfn þar
sem hvað flestir bátar eru skráðir
með heimahöfn. Hér eru skráð 96
skip og bátar og aðeins Reykjavík og
Hafnarfjörður hafa fleiri skip skráð.
Grásleppuveiðar hefjast á inn-
anverðum Breiðafirði 20. maí. Í
fyrra stunduðu á milli 30 og 40 bátar
þær veiðar og var mestum grá-
sleppuafla landað í Hólminum í
fyrra. Reiknað er með að svipaður
fjöldi báta stundi grásleppuveiðar á
komandi vertíð
Fyrirtækið Ágússton ehf. kaupir
grásleppu víða að af landinu og er
hún flutt hingað og gert að henni.
Hrognin eru söltuð, en grásleppan
heilfryst og seld til Kína. Alls er búið
að frysta 300 tonn af grásleppu og
þessi nýja afurð er góð búbót í
rekstri fyrirtækisins.
Starfsemi Dvalarheimilis aldr-
aðra verður flutt í húsnæði St.
Fransiskusspítalans ef hugmyndir
Stykkishólmsbæjar og velferðar-
ráðuneytisins verða að veruleika.
Bæjarstjórn hefur samþykkt tillögu
þessa efnis og verið er að vinna að
teikningu og tillögugerð að end-
urbótum á sjúkrahúsinu til að geta
tekið við nýju hlutverki. Unnið verð-
ur eftir Eden-hugmyndafræði þar
sem markmiðið er að bæta þjónustu
þeirra sem velja að búa á dvalar-
heimili og styrkja þjónustu við eldri
borgara í Hólminum. Málið mun
skýrast mjög fljótlega.
Morgunblaðið /Gunnlaugur Auðunn Árnason
Miðbærinn Gamli vatnsbrunnurinn. Þangað var vatnið sótt fyrir daga
vatnsveitunnar.
Vor er um Breiðafjörðinn
þótt kaldir vindar blási
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Reiknað er með að framkvæmdasvið
Reykjavíkurborgar óski á næsta
fundi borgarráðs eftir heimild til að
hefja verkhönnun og undirbúning út-
boðs tveggja göngu- og hjólabrúa við
Elliðaárósa og tilheyrandi stíga.
Stefnt er að útboði verksins í haust og
að brýrnar verði teknar í notkun
næsta vor.
Brýrnar munu setja svip á um-
hverfið og verða nýtt kennileiti í
borginni. Verðlaunatillaga arkitekt-
anna Hans-Olavs Andersens og
Sigríðar Magnúsdóttur á Teikni-
stofunni Tröð gerir ráð fyrir að
brýrnar verði bornar uppi af bitum
sem mynda pýramída.
Áningarstaður á Geirsnefi
Brýrnar tengja Geirsnef við land,
sitthvorumegin. Einnig þarf að leggja
göngu- og hjólastíg yfir Geirsnef og
áningarstað. Brúargerðin er sam-
starfsverkefni Reykjavíkurborgar og
Vegagerðarinnar og ber hvor aðili
helming kostnaðar sem er áætlaður
160 milljónir kr.
Fáist heimild borgarráðs verður
samið við höfunda verðlaunatillög-
unnar um hönnun mannvirkisins og
byrjað að undirbúa útboð.
Ámundi Brynjólfsson, skrif-
stofustjóri mannvirkjaskrifstofu
framkvæmdasviðs Reykjavík-
urborgar, segir áætlað að bjóða verk-
ið út í september. Segir hann ekki
hægt að standa í miklum fram-
kvæmdum við Elliðaár á göngutíma
lax og laxveiðitímabilinu. Því verði að
vinna þetta verk að hausti og vetri.
Brýrnar á að opna vorið 2013.
Gatnamót löguð
Göngubrýrnar eru liður í gerð og
endurbótum á hjólastígum á milli
Grafarvogs og miðbæjar Reykjavík-
ur. Verið er að undirbúa endurbætur
á hjólastígnum frá Hlemmi og að
væntanlegum brúm á Elliðaárósum.
Þegar er opin hjólaleið meginhluta
þessarar leiðar en Ámundi segir að
breikka þurfi stíginn og tvöfalda
sums staðar og laga krappar beygjur.
Þá verða gerðar verulegar breyting-
ar á gatnamótum við Álfheima og
Skeiðarvog til að auka öryggi gang-
andi og hjólandi vegfarenda. Ámundi
segir að væntanlega verði göngu- og
hjólabrautin hækkuð upp og dregið
úr hraða. Leggja þarf nýjan stíg síð-
asta kaflann að brúnum.
Stígurinn sem endurbættur verður
í sumar er um 4,5 km að lengd. Áætl-
að er að kostnaður við framkvæmd-
ina verði rúmar 300 milljónir kr.
Á fjárhagsáætlun er um 500 millj-
óna fjárveiting til göngu- og hjóla-
stíga og er hjólastígurinn frá Hlemmi
stærsta einstaka framkvæmdin.
Stefnt að útboði hjólabrúa í haust
Hjólastígurinn frá Hlemmi lagaður í
sumar Brýrnar opnaðar næsta vor
Tölvuteikning/Teiknistofan Tröð
Elliðaárósar Göngu- og hjólreiðabrýrnar verða nýtt kennileiti í borginni.
Hjólastígar
» Göngu- og hjólreiðastígar
með bundnu slitlagi eru 800
kílómetrar í Reykjavík.
» Samþykkt var hjólreiðaáætl-
un fyrir tveimur árum. Þá voru
sérstakir hjólastígar 10 km og
átti að fimmfalda þá á fimm ár-
um. Það hefur ekki gengið eft-
ir.
» Reykjavíkurborg, Mosfells-
bær og Vegagerðin eru að und-
irbúa tengingu við Úlfarsárdal
og Mosfellsbæ. Að því verki
loknu verður verður komin
samfelld greið og örugg hjóla-
leið úr Mosfellsbæ og niður í
miðbæ Reykjavíkur.Morgunblaðið/Ómar
Hjólatúr Áð í Laugardalnum.
Kaffi á könnunni og næg bílastæði
b ó k a b ú ð
f o r l a g s i n s
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA
kl. 10–18
OG LAUGARDAGA
kl. 10–14
Fiskislóð 39