Morgunblaðið - 12.05.2012, Síða 45
ÍSLENDINGAR 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
heimsmeistari úr ræktun þeirra
hjóna, undir stjórn Heklu Katarínu
Kristinsdóttur.
Eftirminnileg handboltakempa
Ólafur keppti í handbolta með
meistaraflokki FH 1969-74 og varð þá
sex sinnum Íslandsmeistari og fimm
sinnum bikarmeistari, lék átta ung-
lingalandsleiki og 70 A-landsleiki, lék
með þýska liðinu Doncdorf og síðan
með Fric á árunum 1974-76, og með
Víkingi í tvö ár og varð þá tvívegis Ís-
landsmeistari og einu sinni bik-
armeistari. Þá lagði hann skóna á hill-
una, 28 ára.
Ólafur hefur setið í fjallskilanefnd, í
kjörstjórn, sat í stjórn Hrossarækt-
arsambands Suðurlands, í stjórn Fé-
lags hrossabænda, var formaður
hestamannafélagsins Voga og starfar
í Frímúrarareglunni. Hann hefur
áhuga á uppeldi, hestaferðum í
óbyggðir, kórum og klassískri tónlist
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 24.6. 1972 Drífu
Kristjánsdóttur, f. 31.10. 1950, odd-
vita Bláskógabyggðar og kennara.
Hún er dóttir Kristjáns Sigurðssonar,
f. 11.9. 1926, fyrrv. forstöðumanns
Upptökuheimilisins í Kópavogi, og
Rósu Björnsdóttur, f. 21.6. 1922, d.
14.8. 1999, húsmóður.
Börn Ólafs og Drífu eru Fannar, f.
20.11. 1979, forstjóri Íshesta en kona
hans er Margrét Unnur Sigtryggs-
dóttir, ljósmóðir og nuddari og eru
börn þeirra Stormur og Frigg; Björt,
f. 2.3. 1983, mannauðsfræðingur og
ráðgjafi hjá Capacent en maður henn-
ar er Birgir Viðarsson, verkfræðingur
hjá Sjóvá og er sonur þeirra Garpur;
Eldur, f. 24.6. 1985, jarðfræðingur
með eigin orkufyrirtæki, Orka/
Energy, en kona hans er Guðrún
Helga Kristjánsdóttir fatahönn-
unarnemi og er dóttir þeirra Ísey.
Alsystkini Ólafs eru Steinunn
María, f. 11.7. 1949, hjúkrunarfræð-
ingur í Kópavogi, og Gunnar Ein-
arsson, f. 25.5. 1955, bæjarstjóri í
Garðabæ.
Hálfsystur Ólafs, samfeðra, eru
Guðný Fríða, f. 12.6. 1941, lengst af
húsfreyja í Eyjum; Áslaug Anna, f.
3.12. 1947, lengi húsfreyja á Akranesi.
Foreldrar Ólafs: Einar Ólafsson, f.
13.3. 1921, d. 2.12. 1984, vélstjóri og
forstöðumaður Íþróttahúss Hafn-
arfjarðar, og Sigrún Steinsdóttir, f.
12.10. 1920, húsfreyja.
Ólafur og Drífa verða með opið hús
í Aratungu í kvöld, laugard. 12.5., frá
kl. 17.-20. Vandamenn, vinir og sveit-
ungar eru hjartanlega velkomnir.
Úr frændgarði Ólafs Einarssonar
Hermann
b. á Unaðsstað í Skagaf.
Þórdís Steinsdóttir
frá Ólafsvík
Jón Jónsson
b. í Hlíð á Langanesi
Salome Jónsdóttir
húsfr. í Hlíð
Snjólaug Jónsdóttir
húsfreyja
Einar Halldórsson
sjóm. í Sandpr. í Eyjum
Margrét Bárðardóttir
húsfr. í Sandprýði
Ólafur
Einarsson
Einar Ólafsson
vélstj. í Hafnarf
Sigrún Rósa Steinsdóttir
húsfr. í Rvík
María Jónsdóttir
húsfr. í Hafnarf.
Steinn G. Hermannsson
frá Kolbeinsstöðum í Skagaf
Ólafur Einarsson
skipstj. í Eyjum
Guðmundur Michelsen
verkam. á Fáskrúðsf
Stefán Runólfsson
útgerðarm
Petra Guðmundsd.
húsfr. í Eyjum
Heimsmeistarar Gautrekur og knapinn Hekla Katarína Kristinsdóttir.
12. maí
101 ára
Sveinbjörg Hermannsdóttir
95 ára
Birna Ólafsdóttir
80 ára
Gunnar Skarphéðinsson
Ólafur Heiðar Ólafsson
Sunna Guðmundsdóttir
70 ára
Ásdís Valdimarsdóttir
Gróa K Bjarnadóttir
Sverrir Þórólfsson
60 ára
Björg Þ. Thorlacius
Guðjón Magnús Bjarnason
Ragnhildur Þorbjörnsdóttir
50 ára
Einar Arnaldur Melax
Guðmundur Hansson
Hrafnhildur Hauksdóttir
Reynir Bjarnar Eiríksson
40 ára
Brynhildur Jónsdóttir
Freyja Ásgeirsdóttir
Hallgrímur S. Sveinsson
Jón Friðgeir Þórisson
Jón Yngvi Jóhannsson
Særún M. Samúelsdóttir
Þórhildur Dröfn Ingvadóttir
Þór Melsteð Steindórsson
30 ára
Ásdís Björk Jónsdóttir
Björk Konráðsdóttir
Egill Atlason
Hannes Kristinn Eiríksson
Hjalti Jóhannsson
Marlín Aldís Stefánsdóttir
Telma E. D. Magnúsdóttir
13. maí
95 ára
Arnbjörg Davíðsdóttir
80 ára
Ásdís Sigríður Pétursdóttir
Sigurdís Skúladóttir
Þórdís S. Friðriksdóttir
70 ára
Birna G Óskarsdóttir
Erla Flosadóttir
Guttormur Jónsson
60 ára
Björn Marteinsson
Finnur Sturluson
Hallgrímur Guðjónsson
Ólafur Einarsson
Þorgerður Árnadóttir
50 ára
Auður Hafdís Björnsdóttir
Ásgeir Elfar Tómasson
Helga Ásta Símonardóttir
Sigurþór Sigurþórsson
Steinunn G Thorarensen
Valgeir Valgeirsson
Þóra Björk Sigurþórsdóttir
40 ára
Guðlaugur Stefán Egilsson
Hulda E. Skarphéðinsdóttir
Kristinn Jón Gíslason
Kristín Halla Hannesdóttir
Sigurður Arnar Jónsson
Svandís Þórhallsdóttir
Tómas Hermannsson
Unnur Eva Jónsdóttir
30 ára
Adam Kári Helgason
Anna Freyja Vilhjálmsdóttir
Dagný Helga Eckard
Guðrún Meyvantsdóttir
Hanna Kristín Hannesdóttir
Magnús B. Andrésson
Matthildur Hólm
Páll Tómasson
Til hamingju með daginn
30 ára Einar ólst upp í
Kópvogi, lauk sveinsprófi í
dúklagningu og vegg-
fóðrun, síðan vélgæslu-
prófi og er nú sjómaður.
Kona Birta Antonsdóttir,
f. 1981, leikskólakennari.
Börn þeirra: Ragnheiður
Emma, f. 2008, og Þor-
varður Daníel, f. 2010.
Foreldrar Þorvarður Ein-
arsson, f. 1957, dúklagn-
ingarm. og Guðbjörg H.
Ólafsdóttir, f. 1961, leik-
skólakennari.
Einar
Þorvarðarson
30 ára Maríanna ólst upp
í Garðabæ, lauk prófi í
viðskiptafræði frá HR og
starfar nú hjá Arionbanka.
Eiginmaður Hjörleifur
Sumarliðason, f. 1981,
húsamálari.
Börn þeirra Ragnheiður
Elín, f. 2009, og Finnbogi,
f. 2011.
Foreldrar Elsa Jónsdóttir,
f. 1952, landfræðingur hjá
Hafnarfjarðarbæ, og Finn-
bogi Aðalsteinsson, f.
1952, matreiðslumaður.
Maríanna
Finnbogadóttir
Ásgeir Ásgeirsson var fæddur íKóranesi á Mýrum 13. maí1894. Foreldrar hans voru Ás-
geir, kaupmaður í Kóranesi, síðar
bókhaldari í Reykjavík Eyþórsson,
kaupmanns í Reykjavík Felixsonar og
k.h. Jensínu Bjargar Matthíasdóttur,
trésmiðs í Reykjavík Markússonar,
bróður Sigríðar, ömmu Rögnvaldar
Sigurjónssonar píanóleikara. Matt-
hías var sonur Markúsar, pr. á Álfta-
mýri Þórðarsonar, ættföður Vigur-
ættar Ólafssonar, ættföður Eyrarætt-
ar Jónssonar, langafa Jóns forseta.
Bróðir Ásgeirs var Ragnar, bú-
fræðingur og rith., faðir Úlfs læknis.
Eiginkona Ásgeirs var Dóra, systir
Tryggva forsætisráðherra, en þau
voru börn Þórhalls Bjarnarsonar
biskups og Valgerðar Jónsdóttur.
Börn Ásgeirs og Dóru voru Þórhall-
ur ráðuneytisstjóri, Björg, móðir
Tryggva Pálssonar, og Vala, eigin-
kona Gunnars Thoroddsen og móðir
Ásgeirs hrl.
Ásgeir lauk stúdentsprófi frá MR
1912, lauk guðfræðiprófi frá HÍ 1915
og var við framhaldsnám við háskól-
ann í Kaupmannahöfn og Uppsölum.
Ásgeir var biskupsritari hjá Þór-
halli Bjarnarsyni biskupi 1915-16, var
bankaritari við Landsbankann í
Reykjavík 1917-18 og var kennari við
Kennaraskólann 1918-27 og varð
fræðslumálastjóri 1926. Ásgeir var
upphaflega framsóknarmaður, sam-
herji mágs síns, Tryggva Þórhalls-
sonar sem var forsætisráðherra 1927-
31. Ásgeir var sjálfur fjármálaráð-
herra 1931-32 og var skipaður
forsætis- og fjármálaráðherra 1932 og
gegndi því til 1934.
Ásgeir var bankastjóri Útvegs-
bankans á árunum 1938-52 en bauð
sig þá fram til forseta eftir andlát
Sveins Björnssonar, og sigraði Bjarna
Jónsson vígslubiskup sem hafði verið
frambjóðandi stjórnarflokkanna,
Framsóknarflokks og Sjálfstæðis-
flokks. Ásgeir var þá orðinn alþýðu-
flokksmaður en hann fékk mikinn
stuðning af sjálfstæðismanninum og
tengdasyni sínum, Gunnari Thorodd-
sen, sem þá var borgarstjóri. Þekkt-
asta slagorð Ásgeirs í forsetakosning-
unum var: Fólkið velur forseta.
Ásgeir gegndi forsetaembættinu til
1968, en hann lést 15. september 1972.
Merkir Íslendingar
Ásgeir
Ásgeirsson
forseti
30 ára Steinunn ólst upp
í Hafnarfirði, lauk BA-prófi
með starfsréttindum í fé-
lagsráðgjöf frá HÍ og dip-
lómaprófi í fötlunarfræði
og er nú félagsráðgjafi við
Landspítalann.
Maður Ásgeir Hilm-
arsson, f. 1981, kerf-
isfræðingur. Dóttir þeirra
Thelma Lind, f. 2008.
Foreldrar Sævar Stef-
áns., f. 1947, rannsókn-
arlögr.m., og Lilja Oli-
versd., f. 1948, bókav.
Steinunn Þórdís
Sævarsdóttir
VANDAÐIR ÞÝSKIR
PÓSTKASSAR,
HENGILÁSAR OG
HJÓLALÁSAR.
MIKIÐ ÚRVAL
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | brynja@brynja.is
Opið virka
daga frá 9-18
og lau frá
10-16 Lykilverslun við
Laugaveginn frá 1919