Morgunblaðið - 12.05.2012, Síða 48
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Dreifingarmáti tónlistar hefur
breyst allnokkuð á síðastliðnum ára-
tugum og vinsældir lagsins „Tend-
erloin“ með nýrri óþekktri sveit, Til-
bury, er gott dæmi um það. Áður
fyrr vöktu lög athygli í gegnum út-
varp, endurtekna spilun á tónleikum
eða menn báru þau á milli sín á
kassettum. Netið hefur breytt þessu
öllu, hin stafræna bylting ef svo
mætti segja og dreifing er nú í senn
hraðari og víðtækari.
Þegar „Tenderloin“ var hleypt af
stokkum þar fór það sem sinueldur
um Fésbókina og málsmetandi að-
ilar sem leikmenn „lækuðu“ lagið og
skrifuðu athugasemdir við það af
miklum móð. Lagið hékk þá lengi
vel uppi sem það vinsælasta á gogo-
yokoveitunni og ekki spillti youtube-
viðvist heldur fyrir. Á um tveggja
vikna tímabili varð sveitin umtöluð,
fyrst um sinn á meðal „bransans“ en
þegar fram í sótti fóru þessar góðu
fréttir að rata víðar.
Kallaði á stærri hljómsveit
Góðar fréttir segi ég, því ef marka
má þetta eina lag, „Tenderloin“, er
spennandi hluta að vænta frá sveit-
inni. Lagið er grípandi en um leið
undurfurðulegt, minnir á ýmislegt –
Sin Fang, Belle and Sebastian og
Grandaddy m.a. – en er um leið
skuldlaus eign höfundar síns, Þor-
móðs Dagssonar, sem þekktastur er
fyrir að hafa barið húðir með sveit-
um eins og Jeff Who, Hudson
Wayne og Skakkamanage. Nú stíg-
ur hann hins vegar fram fyrir
skjöldu, semur lög, syngur og leikur
á gítar og píanó.
„Þetta byrjaði sem verkefni sum-
arið 2010,“ lýsir Þormóður með
sinni alþekktu, stóísku hægð.
„Þá hét þetta Formaður Dags-
brúnar. Ég hafði sankað að mér
nokkrum lögum sem ég vissi ekki al-
veg hvað átti að gera við. Vissi þó að
mig langaði til að taka þetta upp. Ég
gerði síðan þrjár prufuupptökur
með Árna plúseinum, Árna Rúnari
úr FM Belfast, sem urðu vísir að
þessari plötu.“
Þau lög voru síðan flutt á Inni-
púkanum þetta sama sumar. Tón-
listin var flutt með aðstoð tölvu-
tækninnar en Örn Eldjárn, einn
meðlima Tilbury í dag, sá um gít-
arspil (hann á og eitt lag á plötunni,
„Picture“).
„Þetta vélræna undirspil virkaði
ekki,“ segir Þormóður. „Mér fannst
þetta kalla á stærri hljómsveit. Örn
var á þessum tíma með Kristni
(Evertssyni, hljómborðsleikara) í
tónsmíðadeild LHÍ og hann var rétti
maðurinn í að sjá um hljóðgervlana.
Hann er svona „syntha“-nörd og
mikill fengur í honum, hann sér um
að búa til hljóðgervlaáferð laganna,
sem er lykillinn að þeim.“
Örn (sem leikur einnig með
Brother Grass og Hljómsveitinni
Ég) og Kristinn (einnig í Valdimar)
voru þar með orðnir hluti af bandinu
og bara eftir að ráða inn hrynpar en
um þann þátt sjá síst einhverjir au-
kvisar, þeir Guðmundur Óskar Guð-
mundsson (Hjaltalín) og Magnús
Trygvason Elíassen (Sin Fang,
ADHD, Amiina og margar fleiri).
Of miklir hæfileikar
Þormóður segir lögin hafa verið
að mestu leyti klár þegar bandið
skreið loks saman. Aðeins átti eftir
að setja þau í hljómsveitarbúning.
En af hverju er Þormóður allt í einu
farinn að ota sínum tota?
„Þegar stórt er spurt …ég samdi
aldrei neitt þegar ég var í þessum
hljómsveitum hér áður fyrr. Ég held
ég hafi hreinlega verið að vinna með
of hæfileikaríku fólki og það var erf-
itt að olnboga sig. Ég var feiminn
við að sýna lögin mín. En svo byrj-
uðu lögin að koma af krafti þegar ég
hætti í hljómsveitunum. Þetta var
það eina sem ég hafði til að sinna
þessum tónlistaráhuga mínum.
Þetta gerðist eiginlega af sjálfu sér,
leitaði bara út þannig séð. Ég vildi
líka prufa eitthvað nýtt, ég hafði t.d.
lært mjög seint að tromma en ég er
upprunalega píanóleikari. Það hljóð-
færi stendur mér næst og það lá
beint við að semja á það.“
Þormóður er eðlilega ánægður
með þessar góðu viðtökur hingað til.
„Ég bjóst ekki við þessum látum
og það er gaman að fylgjast með því
hvernig hlustunarmynstur fólks er
að breytast. Hvernig tónlist dreifist
í dag. Það er á vissan hátt auðveld-
ara að koma sér á framfæri virðist
vera.“
Framundan er svo spilamennska
til að fylgja breiðskífunni eftir.
„Við höfum ekki hugsað þetta
mikið lengra. Það er engin hern-
aðaráætlun í gangi. Við ætlum bara
að vera eins sýnilegir og hægt er
næstu mánuði og vanda okkur við að
byggja þetta upp.“
„Svo byrjuðu lögin að koma“
Hljómsveitin Tilbury sendi nýverið frá sér fyrstu breiðskífu sína, Exorcise
Umræður á netinu hjálpuðu óþekktri sveit að koma sér á framfæri
Undurfurðulegt Tilbury; Þormóður Dagsson, Örn Eldjárn, Kristinn Everts-
son, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Magnús Trygvason Elíassen.
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. MAÍ 2012
Hátíðartónleikar í tilefni af 100 ára
afmæli franska tónskáldsins Jean
Françaix verða haldnir í Norræna
húsinu á morgun kl. 15:15. „Franç-
aix er meðal þekktustu tónskálda
Frakka á 20. öld. Verk hans eru
meistaralega samin, full gáska og
gleði en hafa furðu sjaldan verið
flutt hérlendis. Það er því ærin
ástæða til að heiðra minningu þessa
fjölhæfa og afkastamikla tón-
skálds,“ segir í tilkynningu.
Að tónleikunum standa kvart-
ettinn Dísur, Íslenski saxófón-
kvartettinn og félagar úr Hnúka-
þey ásamt píanóleikurunum Helgu
Bryndísi Magnúsdóttur og Bryn-
hildi Ásgeirsdóttur.
Gáski Fríður hópur listamanna
kemur fram á tónleikunum.
Til heiðurs
Françaix
15:15 tónleikar í
Norræna húsinu
Jane Ade Sutarjo
heldur
útskriftar-
tónleika sína á
píanó í Fella- og
Hólakirkju á
morgun kl. 16, en
hún lýkur BMus-
gráðu frá
Listaháskóla Ís-
lands í vor.
Á efnisskránni eru verk eftir J.
Haydn, F. Liszt, S. Rachmaninoff,
F. Schubert og R. Schumann.
Útskriftartón-
leikar á píanó
Jane Ade Sutarjo
Sýningin Nánd eða Close hefur verið opnuð í
menningarverkefninu Hlöðunni í Vogum, en hún
er samstarfsverkefni systranna Gunnhildar og
Brynhildar Þórðardætra. Þær taka þátt í lista-
mannaspjalli um sýninguna á morgun kl. 15.
„Á sýningunni eru veggteppi, skúlptúrar, ljós-
myndir, fatnaður, húsgögn og gínur sem er stillt
upp á ævintýralegan hátt í hráu umhverfi. Titill-
inn Nánd skýrir samband systranna en einnig
tengsl áhorfandans við listamennina og hugar-
heim þeirra. Sýningin er unnin með það í huga að
áhorfandinn getur tekið þátt með því að koma við
verkin og skynja umhverfið á fróðlegan hátt,“
segir m.a. í tilkynningu. Sýningin er opin um
helgar milli kl. 13-17.
Spjall um Nánd
Síðumúla 16 ~ 108 Reykjavík ~ Sími: 580 3900 ~ fastus.is
Bjóðum upp á margar gerðir
af rafskutlum
Hafðu samband og við hjálpum þér að finna rafskutlu við hæfi
Fjölbreytt úrval
af rafskutlum
Njótum lífsins
Fastus til framtíðar