Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Alþjóðlegi dagur þornsins verður
haldinn í 18. sinn á morgun. Þess
verður þá minnst að 9. júní 1994
fékkst bókstafurinn þ viður-
kenndur af vinnuhópi evrópska
staðlaráðsins sem 27. stafurinn í
latneska stafrófinu undir Unicode-
staðlinum. Baldur Sigurðsson, dós-
ent í íslensku hjá mennta-
vísindasviði HÍ, sem var fulltrúi Ís-
lands í vinnuhópnum, flytur
fyrirlestur í tilefni dagsins, sem
verður lokahluti ráðstefnu um
aukafallsfrumlög sem nú er í gangi
í Reykjavík og á Flúðum.
Jóhanna Barðdal, rannsókna-
prófessor við háskólann í Bergen,
segir að skipuleggjendur ráðstefn-
unnar hafi komist að því fyrir ein-
skæra tilviljun að lokadag hennar
bæri upp á dag þornsins. Því hafi
þeim fundist það tilvalið að fá
Baldur til þess að tala um baráttu
sína fyrir þorninu í vinnuhópnum.
Jóhanna vonast til þess að héðan í
frá verði gert mun meira úr degi
þornsins.
Baldur Sigurðsson segir að þessi
áfangi hafi haft mikla þýðingu fyr-
ir Íslendinga, sem höfðu þurft að
sætta sig við að íslenskir stafir eins
og ð og æ yrðu taldir afbrigði af d
og a. Með því að fá þ samþykkt
sem stofnstaf í Unicode-staðlinum
hefði t.d. íslenskun hugbúnaðar
verið gerð mun auðveldari.
Baldur þakkar sérstaklega full-
trúa Íra í vinnuhópnum, Banda-
ríkjamanninum Michael Everson,
en hann er mikill áhugamaður um
sérstaka stafi í tungumálum sem
fáir tala og heldur m.a. úti heima-
síðu um bókstafinn þ. Baldur og
Michael hafa haldið 9. júní hátíð-
legan sín á milli ár hvert síðan
1994.
Baldur rifjar upp að ekki voru
allir á því að þornið ætti skilið sér-
stakan sess í stafrófinu og vildu
margir í vinnuhópnum gera það að
undirstaf tésins: „Það sem okkur
fannst merkilegast var að and-
staðan við okkar málstað var hörð-
ust frá fulltrúa Dana, því að frænd-
ur okkar Danir eru líklega eina
þjóðin fyrir utan okkur sem verður
að viðurkenna þornið, þar sem
þjóðhöfðingi þeirra heitir Margrét
Þórhildur. Þetta varð til þess að
öðrum í nefndinni fannst að þetta
væri nú eiginlega bara danskt
innanríkismál og spurðu hvort við
gætum ekki leyst þetta mál sam-
an.“
Fyrirlestur Baldurs verður í
stofu 201 í Árnagarði á morgun og
hefst kl. 18. Aðgangur er öllum op-
inn. sgs@mbl.is
Degi þornsins fagnað í 18. sinn á morgun
Þ var tekið upp sem sérstakur stafur í Unicode 9. júní 1994 Danir helstu
andstæðingar þornsins Baldur Sigurðsson flytur erindi í Árnagarði
Innflytjandi í íslensku letri Þornið
á rætur að rekja til Englendinga.
Baldur Sigurðsson Jóhanna Barðdal
Árnastofnun/Jóhanna Ólafsdóttir
Nýr Íslandsmeistari í skák, Þröstur
Þórhallsson stórmeistari, bauð um
100 manns í fagnað í Oddfellowhús-
inu í Reykjavík í gær í tilefni sig-
ursins. Flestir öflugustu skákmenn
landsins mættu og meðal þeirra var
Friðrik Ólafsson stórmeistari sem
varð Íslandsmeistari árið 1952, fyr-
ir 60 árum, aðeins 17 ára gamall.
„Ég býst við því að ég sé elsti nú-
lifandi Íslandsmeistarinn í skák,“
segir Friðrik. „Erfiðustu andstæð-
ingarnir voru menn sem eru
kannski lítið þekktir í dag, menn
eins og Baldur Möller, Guðmundur
S. Guðmundsson, Eggert Gilfer,
Benóný Benediktsson. Einnig Árni
Snævarr, sem var forstjóri Al-
menna byggingafélagsins.
Og svo var það Lárus Johnsen,
við urðum efstir og jafnir, við þurft-
um því að tefla einvígi um titilinn.
Það varð frægt af því að það gekk
erfiðlega að fá hann til að tefla.“
Lárus taldi að þar sem hann hefði
orðið Íslandsmeistari árið áður
mætti hann halda titlinum. Friðrik
sagði að slíkar reglur hefðu reynd-
ar gilt árum saman um titilinn. Þær
hefðu verið ákaflega flóknar og
nánast óskiljanlegar, hann treysti
sér ekki lengur til að rekja þær í
stuttu máli. En þær hefðu ekki
lengur verið í gildi og Lárus því
orðið að beygja sig og tefla við ung-
linginn.
„Ég sagði Þresti áður en einvígið
hans hófst að vonandi þyrfti hann
ekki jafn langan tíma og ég 1952 til
að koma titlinum í höfn. Það tók
langan tíma að telja Lárus á að
mæta, tvo eða þrjá mánuði, en ég
var ungur og kappsamur og ætlaði
ekkert að láta hann sleppa! Við
tefldum fjórar skákir og þá var
staðan enn jöfn, tveir á móti tveim-
ur. Ákveðið var að framlengja ein-
vígið um tvær skákir og þá vann ég
aðra en gerði jafntefli í hinni.“
kjon@mbl.is
Var lengi að landa
fyrsta Íslands-
meistaratitlinum
Friðrik vann í fyrsta sinn 1952
Morgunblaðið/Ómar
Meistarar Þröstur Þórhallsson fagnar Íslandsmeistaratitlinum með öðrum
frægum stórmeistara og fyrrverandi Íslandsmeistara, Friðriki Ólafssyni.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z.
Guðjónsson voru í gær dæmdir í
Hæstarétti í fjögurra og hálfs árs
fangelsi fyrir umboðssvik í svokölluðu
Exeter-máli. Mennirnir höfðu áður
verið sýknaðir í héraðsdómi.
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi
forstjóri MP banka, var einnig
ákærður í málinu fyrir hlutdeild í
brotunum en sýknudómurinn yfir
honum var ómerktur og sendur aftur
til héraðsdóms. Segir Hæstiréttur að
einu rök héraðsdóms fyrir sýknu hans
hafi verið að þeir Jón og Ragnar væru
sýknaðir.
Ákæran í Exeter-málinu var ein af
þeim fyrstu sem embætti sérstaks
saksóknara gaf út. Ragnar er fyrrver-
andi sparisjóðsstjóri Byrs og Jón Þor-
steinn er fyrrverandi stjórnarformað-
ur sparisjóðsins. Þeir voru ákærðir
fyrir umboðssvik í tengslum við lán-
veitingu Byrs til einkahlutafélagsins
Exeter Holding. Lánið var veitt til
kaupa á stofnfjárbréfum í eigu Jóns
Þorsteins og nokkurra starfsmanna
sparisjóðsins og félags sem að hluta
var í eigu Ragnars.
Beitti ekki veðkalli
Í dómnum segir að Jón og Ragnar
hafi komið málum þannig fyrir að
áhættu á tjóni vegna stofnfjárbréf-
anna var velt yfir á Byr.
„Eins og að framan er rakið vísaði
MP banki hf. til verulegra breytinga á
markaðsaðstæðum, óvissu á mörkuð-
um og óviðráðanlegra ytri atvika í
framangreindu bréfi 2. október 2008,“
segir í dómi Hæstaréttar.
„Voru þær ástæður tilgreindar sem
grundvöllur fyrir boðaðri gjaldfell-
ingu lána sem bankinn hafði veitt til
kaupa á stofnfjárbréfum í Byr spari-
sjóði. Af gögnum málsins verður ekki
séð að bankinn hafi beitt veðkalli
gagnvart þeim lánþegum sem til-
greindir eru í ákæru eða að lánþeg-
arnir hafi andmælt innheimtu á þeim
grundvelli sem vísað var til í bréfinu.
Á þessum tíma var veruleg lausafjár-
þurrð hjá fjármálafyrirtækjum,
hlutafjármarkaður í mikilli óvissu og
þrír stærstu viðskiptabankar landsins
féllu um líkt leyti. Verður því fallist á
með ákæruvaldinu að með aðgerðum
sínum hafi ákærðu Jón og Ragnar
komið málum þannig fyrir að áhættu
á tjóni vegna stofnfjárbréfanna var
velt yfir á Byr sparisjóð. Þetta gerðu
ákærðu án þess að kanna sérstaklega
stöðu Exeter Holding ehf. og án
nægilegs stuðnings við gögn um raun-
verulegt verðgildi stofnfjárbréfanna.“
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að umfang brota þeirra var veru-
legt, sakir miklar og að Jón hefði með
verknaðnum losað sig undan persónu-
legum ábyrgðum. Voru þeir því
dæmdir hvor um sig í fjögurra ára og
sex mánaða fangelsi.
Byr-menn
dæmdir fyrir
umboðssvik
Hlutu fjögurra ára fangelsisdóm
Morgunblaðið/Eggert
Farinn Sýslað við merki BYR spari-
sjóðs í Kópavogi í fyrra.
Umdeilt verðmæti
» Hæstiréttur fellst ekki á þá
röksemd héraðsdóms að gögn
bendi til þess að heimilt hafi
verið að leggja verðmæti
stofnfjárbréfanna og veðhæfni
að jöfnu við skráð hlutabréf.
» Einnig segir Hæstiréttur að
gögn um veigalitlar, fyrri lán-
veitingar af sambærilegu tagi
vegna stofnbréfa dugi ekki til
sýknu.
Fundir sem Ásta
Ragnheiður Jó-
hannesdóttir,
forseti Alþingis,
átti í gær með
stjórn og stjórn-
arandstöðu skil-
uðu ekki árangri.
Því liggur ekkert
samkomulag fyr-
ir um þinglok.
Þingforseti átti
bæði fundi með formönnum flokk-
anna og formönnum þingflokka.
Engin niðurstaða varð á þessum
fundum. Umræður um veiðileyfa-
frumvarpið halda áfram í dag.
Gunnar Bragi Sveinsson, þing-
flokksformaður Framsóknarflokks,
segir að stjórnarflokkarnir viti
hvað þurfi að gerast til að hægt sé
að ná samkomulagi um þinglok.
Stjórnarandstaðan leggi áherslu á
að veiðileyfafrumvarpið fari aftur
til nefndar og gerðar verði breyt-
ingar á því. Þessi hækkun veiði-
leyfagjalds sem frumvarpið gerir
ráð fyrir sé enn of brött.
Engin niðurstaða á
fundum þingforseta
Gunnar Bragi
Sveinsson
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Suðurlands um að
gengistryggt lán sem hjón tóku hjá
Íslandsbanka í ársbyrjun 2008 hafi
verið í erlendri mynt. Þeim er gert
að greiða bankanum 12,4 milljónir
ásamt dráttarvöxtum.
Í dómi Hæstaréttar segir m.a. að
við úrlausn þess hvort um gilt lán í
erlendum gjaldmiðlum sé að ræða
eða ólögmætt gengistryggt lán í ís-
lenskum krónum verði að líta til
heitis skuldabréfsins en fyrirsögn
þess er: „Skuldabréf í erlendum
gjaldmiðlum.“
Staðfesta dóm um
lán í erlendri mynt
Fiskistofa hefur svipt færeyska
línuskipið Hoyviking TG-900 leyfi
til veiða í fiskveiðilandhelgi Íslands
vegna brota gegn reglugerð um
botnfiskveiðar færeyskra skipa í ís-
lenskri fiskveiðilandhelgi.
Við eftirlit Fiskistofu kom í ljós
að lúða var í afla skipsins en við
línuveiðar skal sleppa allri lúðu
með því að skera á taum línunnar.
Sviptur veiðileyfi
vegna lúðu í afla