Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Coton De Tulear til sölu Erum með yndislega Coton De Tulear til sölu. Uppl. í síma 566 8417. www.dalsmynni.is Bjóðum raðgreiðslur, Visa og Master- card. Hundaræktun með leyfi. Garðar Tökum garðinn í gegn! Klippingar, trjáfellingar, beða- hreinsanir, úðanir og allt annað sem við kemur garðinum þínum. Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð og umfram allt hamingjusamir viðskiptavinir. 20% afsláttur eldri borgara. Garðaþjónustan: 772-0864. Gisting Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið náttúrufegurðar Dýrafjarðar. Orlofsíbúðir til leigu og hótelgisting. Sími 456 1600. gisting@hotelsandafell.com Sumarhús Rotþrær, vatnsgeymar og alvöru moltugerðarkassar Rotþrær og siturlagnir. Heildarlausnir - réttar lausnir. Vatnsgeymar frá 300 til 50.000 lítra. Lindarbrunnar. Borgarplast.is Mosfellsbæ. S. 561 2211. Gestahús, ósamansett, til sölu stærð 5 x 4 m. Verð kr. 870.000. Spónasalan ehf. Uppl. í netpósti: Snotra1950@gmail.com Sumarhúsalóðir í Kjósinni Til sölu sumarhúsalóðir í landi Möðruvalla 1 (Norðurnes) í Kjós. Nánari upplýsingar á www.nordurnes.info og í símum 561 6521 og 892 1938. Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Tómstundir Fótboltaspil 120cm Flott fyrir heimili og í sumar- bústaðinn. Kr. 38.100. Fínt að reisa upp eftir notkun, kemst alls staðar fyrir . www.pingpong.is Suðurlandsbraut 10 (2. h.), 108 Reykjavík. Sími 568 3920. Til sölu Blekhylki og tónerar í flestar gerðir prentara, 50-70% ódýrari, öll hylki framleidd af ORINK. Blekhylki.is, Fjarðargötu 11, Hafnarfirði, sími 517-0150. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Þjónusta MÓÐUHREINSUN GLERJA Er komin móða eða raki á milli glerja? Móðuhreinsun ÓÞ. Sími 897 9809. Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar Látið fagmenn okkar nostra við garðinn þinn. Öll almenn garðþjónusta á einum stað. 577 4444 www.gardalfar.is Ýmislegt TILBOÐ - TILBOÐ Dömuskór úr leðri með korksóla. Tilboð: 3.500 kr. Sími 551 2070. Bílar Ford F350 og pallhús frá Maverick Ford F350 Lariat 4x4. Árgerð 2005. Ekinn 36.000 mílur. Flottur bíll. Verð 3.190.000 + vsk. Pallhús, Maverick 6601. Árgerð 2009. Miðstöð, eldavél, úrvals- ísskápur, vatnshitari, sólarsella, WC og sturta. Verð 2.190.000 Upplýsingar: Bílás, Akranesi. Símar 431 2622 og 863 2622. Bílar óskast Bílalíf • Kletthálsi 2 • www.bilalif.is bílasala ...í bílum erum við sterkir! ☎ 562 1717 Skráðu bílinn þinn frítt hjá bilalif.is Bílaþjónusta Hjólbarðar Kebek - Nama heilsársdekk TILBOÐ 185/70 R 14 kr. 12.500 185/55 R 15 kr. 11.900 185/65 R 15 kr. 11.990 195/65 R 15 kr. 11.900 205/55 R 16 kr. 13.900 205/50 R 17 kr. 17.500 235/45 R 17 kr. 21.390 225/55 R 17 kr. 19.900 225/65 R 17 kr. 21.700 Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Traktorsdekk rýmingarsala 11.2-24 kr. 35.900 14.9-24 kr. 39.900 13.6 -24 kr. (1 stk) 49.900 12.4 – 28 ( 1 stk) kr. 49.900 Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. 13 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 11 R 22.5 kr. 36.600 + vsk. 425/65 R 22.5 kr.78.885 + vsk. 1100 R 20 kr. 39.500 + vsk. 1200 R 20 kr. 39.500 + vsk. 205/75 R 17 kr. 23.745 + vsk. 8.5 R 17.5 kr. 34.900 + vsk. .Kaldasel ehf. hjólbarðaverkstæði Dalvegi 16 b, Kópavogi, s. 544 4333. Húsviðhald Hreinsa þakrennur, laga ryðbletti, hreinsa garða og tek að mér ýmis smærri verkefni. Sími 847 8704, manninn@hotmail.com Kaupi silfur Vantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi fannar@fannar.is - s. 551-6488 Laddý var vinkona mömmu og við eigum margar minningar um hana frá því við vorum að alast upp. Það var gaman að fylgjast með þeim Laddý og mömmu sökkva sér ofan í ýmis baráttumál og oft svo mikið í gangi. Laddý var ein af fáum út- völdum sem fengu að reykja heima hjá okkur án áróðursræðu frá okkur stelpunum, af því það var hún. Það var alltaf svo hlýlegt að vera nálægt Laddý og hún veitti okkur alltaf athygli. Henni fylgdi svo mikil glaðværð og hún bar virðingu fyrir börnum, okkur fannst við vera fullgildar mann- eskjur og að hún væri vinkona okkar líka, þótt við værum bara börn. Laddý og Gæi urðu síðan hálfgerðir staðgenglar ömmu og afa fyrir okkur systurnar. Feimnar spurðum við hvort við mættum kalla þau afa og ömmu eins og hinir krakkarnir. Þannig var Laddý, afar góðhjörtuð og blíð kona og alltaf var stutt í Arndís Lára Tómasdóttir ✝ Arndís LáraTómasdóttir fæddist í Reykjavík 10. febrúar 1932. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 20. maí 2012. Útför Arndísar fór fram frá Ytri- Njarðvíkurkirkju 29. maí 2012. hláturinn. Svona amma eins og alla langar að eiga. Alltaf var Laddý til taks fyrir mömmu og okkur öll og var mikill samgangur á milli fjölskyldna okkar. Við vorum þar oft við hátíðleg tæki- færi eins og á af- mælum, jólum og á gamlárskvöld. Þá var stórfjöl- skyldan samankomin í Kotinu og það var nú mikið fjör og margir krakkar. Húsnæðið var ævin- týralegt, allt umhverfið eitt leik- svæði og nálægðin við sjóinn svo heillandi. Laddý var okkur svo góð og alltaf reiðubúin að hjálpa til við allt sem til féll, hvort sem það var saumaskapur, aðstoð í veislum, redda kjól fyrir fiðluball í menntaskóla eða stytta pils eða buxur á síðustu stundu. Við heimsóttum Laddý á sjúkrahúsið fyrir stuttu og hún spurði frétta af okkur og börn- unum. Þrátt fyrir veikindin hló Laddý dátt, brosti allan tímann og vildi halda í höndina á okkur til skiptis. Þannig munum við hana, hláturinn hennar og hlýjuna sem hún sýndi okkur þótt sárþjáð væri sjálf. Með þessum fátæklegu orðum viljum við þakka henni allt sem hún var okkur. Guðrún Ösp (Dúnna) og Ragnheiður. Þá er komið að kveðjustund minnar elskulegu mágkonu, hennar Perlu, sem hefur verið al- veg dásamleg mágkona og vinur í áratugi. Það var svo gott að vera með Perlu hún var alltaf svo glöð, skemmtileg og úrræðagóð.Við Rikki og þú og Benni fórum margar utanlandsferðir og var alltaf svo gaman hjá okkur. Oft var Benni bílstjóri og við sáum svo mikið af fallegum stöðum í þessum ferðum. Benni átti 60 ára afmæli í Portúgal og héldum við uppá það með stæl, ég átti síðan 60 ára afmæli í Halifax og var það líka gaman. Við keyrðum svo víða þar um og gistum á Prince Edw- ards eyju. Við Perla þóttum svo líkar að oft var spurt hvort við værum systur. Perla og Rikki voru mjög náin systkin, þau áttu bæði syni sem voru fæddir 7. des. og síðan fæddist Rikki litli á afmælisdag- inn þinn 20. jan. Þú varst alltaf í svo góðu skapi og varst einstök Perla Kristín Þorgeirsdóttir ✝ Perla KristínÞorgeirsdóttir fæddist í Vest- mannaeyjum 20. janúar 1933. Hún lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 4. maí 2012. Útför Perlu fór fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í kyrrþey 9. maí 2012. perla og barst nafn- ið þitt með sóma. Ég sakna þess að fá ekki símtal og gott spjall eins við áttum oft saman. Þegar ég kom til þín síðast varstu frekar lasleg en ég átti samt ekki von á að þú færir svona fljótt. Þú varst svo dug- leg í þínum veikind- um, alltaf hress og gerðir ekki mikið úr þeim, spurðir frekar um ættingjana og hvernig þeir hefðu það. Það er sárt að missa ykkur þrjú systkinin, Rikka, Gunnu og þig á þremur árum og stundum erfitt að trúa því. Söknuður Benna er mikill, þú varst honum góð eiginkona og stolt móðir. Guð varðveiti Benna, börnin þín og alla ástvini Perlu. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem) Þín mágkona, Þórdís (Dísa). Guðrún J. Halldórsdóttir er látin. Við vorum saman í stjórn Vin- áttufélags Íslands og Lettlands, sem blómstraði á árunum 1992- 1996. Var hún þar í hávegum höfð, sem félagslynd og forfröm- uð menntamanneskja. Einnig var hún jákvæð gagn- vart bókmenntum. Þannig var sagt um hana, að þegar ljóðskáld eitt gat ekki borgað skólagjöld sín að aflokinni veru í Námsflokk- um Reykjavíkur, og taldi í stað þess maklegt að þakka fyrir sig með eigin ljóðum, þá hefði hún séð ástæðu til að taka þeim viðskilnaði með ljúfmennsku. Ég rakst á hana nokkrum Guðrún J. Halldórsdóttir ✝ Guðrún JónínaHalldórsdóttir fæddist í Reykjavík 28. febrúar 1935. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Skjóli 2. maí 2012. Útför Guðrúnar var gerð frá Hall- grímskirkju 16. maí 2012. sinnum á förnum vegi á síðari árum, og þykir mér nú að henni mikill sjónar- sviptir. Mér þykir við hæfi að kveðja hana nú með einu óbirtu ljóði mínu, sem minnir mig hvað mest á viðhorf henn- ar til þjóðfélags- mála; en það heitir Sverðadansarinn: Útrásarvíkingurinn, sverðadansarinn: sá sem dansaði á sverðseggjum af því hann taldi það vera hina einu sönnu sælu; hólmgöngu við hrædda menn: sem eins og hann vildu finna ástina og hamingjuna hver höfðu náð að heflast burtu einhvers staðar eftir bernskuna; fjölskylduna sem skyldi finnast einhversstaðar milli hnífsblaða, milli breiðfylkingaraða sverða, saxa Sumir komust raunar upp með glæpinn en þó voru þeir fleiri sem í fótinn skárust og urðu litlir, klumbufættir karlar Tryggvi V Líndal. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fædd- ist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.