Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012 Hann Sveinbjörn afi var ein- stakur maður. Eiginlega er ekki hægt að tala um hann án þess að minnast á ömmu um leið því að þau voru alla tíð afskaplega sam- rýnd hjón og miklar fyrirmyndir fyrir okkur hin í fjölskyldunni. Mín fyrsta minning um afa er þeg- ar pabbi keyrði mig niður á Álfa- skeið þaðan sem afi skutlaði mér á leikskólann. Hann var ætíð mikill barnakarl og börnin í fjölskyld- unni sóttu mikið í nærveru hans. Ófá Ólsen Ólsen spil tók hann með okkur krökkunum og þær minn- ingar rifjuðust upp þegar hann spilaði síðan við börnin okkar nokkrum áratugum síðar. Fyrir mér hefur afi ávallt verið ein mín mesta fyrirmynd í lífinu og ég er mjög þakklátur fyrir að hafa átt svo góðan afa sem ég hef alltaf getað litið upp til. Björn. Mig langar að minnast föður míns, Sveinbjörns Ólafssonar, nokkrum orðum. Hver hefði trúað því að hann færi á undan mömmu? Pabbi annaðist hana síðustu árin, eldaði matinn, hugsaði um heim- ilið og svo mætti áfram telja. Og eftir að þau fóru á Hrafnistu í Hafnarfirði var hann ætíð hennar hjálparhella. En nú er hann lát- inn, nánast óvænt þrátt fyrir að vera kominn vel á tíræðisaldur. Pabbi var alla tíð mín fyrir- mynd; reglumaður í alla staði og mjög skipulagður. Ég er ekki al- veg eins skipulagður og hann, en vonandi hef ég erft eitthvað af þeim góða eiginleika hans. Eitt sinn fór Inga mín til pabba að fá sér kaffi áður en hún fór í vinnu á Hrafnistu. Pabbi svaraði hins veg- ar sem svo: Inga mín, þú færð ekkert kaffi í dag, þú kemur of seint, kaffitíminn var klukkan hálffjögur. Mínar fyrstu minningar úr bernsku eru um það þegar við átt- um heima á Strandgötu 50C í Hafnarfirði, þar sem nú er Fjörukráin. Mamma hafði saum- að á mig föt og við pabbi fórum norður á Strandir sem var langt ferðalag. Fyrst var farið með bíl norður á Hólmavík, þaðan með flóabátnum norður Húnaflóa og í mynni Veiðileysufjarðar vorum við sóttir á trillu. Þetta var langt ferðalag fyrir sex ára gutta. Önnur ferð var farin eina vetr- arhelgi, á æskuslóðir pabba að Syðri-Velli í Flóa. Á heimleiðinni þurftum við að stoppa efst í Sveinbjörn Ólafsson ✝ SveinbjörnÓlafsson fædd- ist á Syðra-Velli í Flóa 17. október 1916. Hann lést á Hrafnistu í Hafn- arfirði 30. maí 2012. Sveinbjörn var jarðsunginn frá Hafnarfjarð- arkirkju 5. júní 2012. Kömbunum þar sem fór að sjóða á bíln- um. Þegar við vor- um að nálgast Sand- skeiðið vildi svo illa til að bíllinn rann í hálku og fór út af veginum og endaði á toppnum. Sjálfur lenti undir öllu, en slapp þó óslasaður. Þetta eru minningar sem seint gleymast. Þegar ég var fimmtán ára gamall bauð pabbi mér vinnu hjá sér uppi á Hrauni eins og við köll- uðum það. Það var á vélaverk- stæði Jóns heitins Gíslasonar, út- gerðarmanns í Hafnarfirði, en pabbi rak það verkstæði uns hann fór að vinna í skipasmíðastöðinni Dröfn. Þetta starf var mér var dýr- mætur skóli. Þarna lærði ég raf- suðu og logsuðu og allt sem við- kemur vélaverkstæðisvinnu. Það var mikið álag á pabba þegar Jón Gíslason gerði út ellefu báta á vetrarvertíðinni í Grindavík. Bát- arnir komu að landi um kvöldmat- arleytið til að landa aflanum og þurftum við vinnukarlarnir að fara til Grindavíkur á hverju kvöldi til að gera við bátana og halda þeim við. Venjulega vorum við að koma heim í háttinn kl. fjögur um nóttina og svo byrjaði dagurinn aftur á hrauninu kl. 8. Enginn myndi láta bjóða sér svona í dag og því er ótrúlegt hvað pabbi hélt góðri heilsu alveg fram á síðasta dag. Nú þegar faðir minn kveður, skilur hann aðeins eftir sig góðar minningar. Vona ég að þær gefi móður minni, systrum mínum, fjölskyldum þeirra og öðrum styrk í sorginni. Hvíl þú í friði, pabbi minn. Þinn sonur og tengdadóttir, Trausti Sveinbjörnsson og Ingveldur Einarsdóttir. Elskulegur afi minn Svein- björn hefur kvatt okkur. En það eru aðeins ljúfar og góðar minn- ingar sem ég á um afa og þvílíkt ljúfmenni sem hann var og blítt viðmót var hans einkennismerki. Hann afi var eins góð fyrirmynd og hugsast getur því hann hafði einstakt lag á að bjarga hlutunum með útsjónarsemi sinni. Afi var elskaður og dáður af öllum sem honum höfðu kynnst og það var ákaflega fallegt sam- band milli hans og ömmu alla tíð. Það var líka einstakt að fylgjast með hvernig hann hefur sinnt ömmu undanfarin ár. Ég veit að starfsfólk Hrafnistu í Hafnarfirði hefur orðið vitni að sérstakri um- hyggju hans í garð ömmu og með því hefur hann sjálfsagt brætt hjörtu margra. Mig langar til að þakka þér elsku afi minn fyrir þau ár sem mér voru veitt til að vera með þér og fá með því að kynnast einni bestu manneskju sem ég hef hitt. Ólafur Sveinn Traustason. ✝ Ingólfur Ein-arsson fæddist að Snjallsteins- höfða í Landsveit, Rangárvallasýslu, 13. júlí 1927. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 24. maí 2012. Foreldrar hans voru Einar Gísla- son, f. 20.11. 1857 að Hæðargarði í Landbroti, V.-Skaftafellssýslu, lengst af trésmiður á Eyr- arbakka, d. 27.9. 1933, og Þórunn Guðjónsdóttir, f. 8.11. 1890 að Þúfu í Landsveit, hús- móðir, d. 8.6. 1961. Fósturfor- eldrar hans voru Jóhann Teit- ur Magnússon, f. 22.4. 1862, bóndi að Snjallsteinshöfða, d. 14.8. 1929, og Halldóra Magn- úsdóttir, f. 29.11. 1875, hús- móðir, d. 28.4. 1970. Hálf- systkini Ingólfs samfeðra voru: Gísli, f. 1880, d. 1916; Ragnhildur María, f. 1882, d. 1882; Erlendur, f. 1883, d. 1963; Ágúst, f. 1888, d. 1967; Magnús, f. 1889, d. 1963; Guð- rún, f. 1893, d. 1976; Sig- urgeir Páll, f. 1896, d. 1898; Júlíana, f. 1903, d. 1982; Ólafía Ágústa, f. 1904, d. 1990; Kristín, f. 1907, d. 1976; Sólrún, f. 1911, d. 1962. Hálf- systkini Ingólfs sammæðra voru: Guðrún Ólafsdóttir, f. 1916, d. 2008, og Sóley Þor- steinsdóttir, f. 1932, d. 2006. Bræður Ingólfs voru: Gísli Ár- prófi frá Samvinnuskólanum 1946. Ingólfur var sendill hjá versluninni Brynju á náms- árunum og síðan gjaldkeri þar frá 1946 til 1968. Árið 1968 hóf hann störf sem gjaldkeri hjá Þórði Sveinssyni & Co, sem síðar sameinaðist Vífilfelli hf., og þar starfaði hann þang- að til hann lét af störfum árið 2002. Ingólfur var félagi í Hinu íslenska náttúrufræði- félagi frá árinu 1952 og sat í stjórn þess samfellt í 28 ár sem gjaldkeri á árunum 1968- 1996. Hann var gerður að heiðursfélaga þess árið 1989. Ingólfur var félagi í Ferða- félagi Íslands frá árinu 1941 og var auk þess félagi í Ætt- fræðifélaginu og Hinu íslenska fornleifafélagi. Ingólfur vann að söfnun örnefna og korta- gerð á árunum 1967-1995. Uppdrættir hans eru aðallega úr Landmannahreppi, Rang- árvallahreppi og Holtahreppi, en nokkuð úr Ásahreppi, Djúpárhreppi og Vestur- Eyjafjallahreppi. Einnig ritaði hann um Landmannahrepp og Landmannaafrétt í ritið Sunn- lenskar byggðir sem kom út árið 1987. Örnefnaskrár hans eru einkum úr Land- mannahreppi og nokkrar úr Rangárvallahreppi og Holta- hreppi. Auk þess teiknaði hann örnefnakort af Herdís- arvík í Selvogshreppi, Gunn- hildargerði og Nefbjarn- arstöðum í Hróarstunguhreppi og Bjarnaneshverfi og Skógey í Nesjahreppi. Útför Ingólfs fer fram frá Grensáskirkju í dag, 8. júní 2012, og hefst athöfnin kl. 13. mann, f. 1920, d. 1993; Guðjón Kristinn, f. 1921, d. 2008; Dag- bjartur, f. 1925, d. 1996. Ingólfur kvænt- ist þann 3. októ- ber 1959 Maríu Eggertsdóttur, húsmóður, f. 23.11. 1929 í Reykjavík. For- eldrar Maríu voru: Eggert Thorberg Gríms- son, f. 26.6. 1891 í Stöðlakoti í Reykjavík, sjómaður, síðar verkamaður í Reykjavík, d. 28.8. 1962, og Lilja Elínborg Jónsdóttir, húsmóðir, f. 4.3. 1896 á Haukagili í Vatnsdal, Austur-Húnavatnssýslu, d. 30.9. 1969. Börn Ingólfs og Maríu eru: 1) Jóhann Teitur, f. 4.7. 1960, tónlistar- og stærðfræðikennari í Reykja- vík. 2) Halldóra, f. 23.2. 1964, grunnskólakennari í Reykja- vík, gift Kjartani Birgissyni, f. 29.4. 1960, bankamanni í Reykjavík. Dætur þeirra eru Hildur, f. 28.12. 1989, há- skólanemi, og María, f. 14.8. 1991, stúdent. Ingólfur ólst upp hjá fóstur- foreldrunum Halldóru Magn- úsdóttur og Jóhanni Teiti Magnússyni bónda að Snjall- steinshöfða en fluttist með fósturmóður sinni til Reykja- víkur sex ára gamall. Hann stundaði nám við Kvöldskóla KFUM 1941-1943 og lauk Túni og fararstjóri Eiríkur Einarsson kennari. Við mæðg- ur höfðum verið í ferðunum, ég þá barn að aldri. Um fjórir ára- tugir voru liðnir frá því þegar sendingin barst. Ingólfur var kominn undir áttrætt þegar Ferðafélag Ís- lands gaf út ferðadagbókina um Brúaröræfi undir nafninu Í náttúrunnar stórbrotna ríki ár- ið 2006. Var það val í samráði við Ingólf sem sagði að sú ferð hefði verið alskemmtilegasta ferðin sem hann fór því að fé- lagsskapurinn hefði verið svo innilegur og hlýr og bætti við: „Í þá daga voru óbyggðaferðir um meiri torfærur, um svo ókunnar slóðir og ævintýraleg- ar.“ Í ferðinni höfðu verið tveir afbragðs ljósmyndarar og fylgja myndir þeirra í bókinni. Við Svavar Sigmundsson, for- stöðumaður Örnefnastofnunar, sáum um útgáfu bókarinnar sem var að frumkvæði Svavars. Hann hafði rekist á ferðabæk- urnar í fórum Bjarna í Túni, móðurbróður síns, og þótti þær merkilegar. Útgáfan gladdi Ingólf mjög, en hann ritaði ferðadagbækur í sextán ár, bækur sem lýsa ferðum um vegleysur öræfanna, varpa ljósi á viðhorf hans til náttúrunnar og gefa jafnframt góða mynd af ferðafélögunum. Í gegnum árin bar fundum okkar Ingólfs saman í sumar- ferðum Náttúrufræðifélagsins, á myndakvöldum Ferðafélags- ins og á förnum vegi. Hann var sérstaklega hlýr í viðmóti, spurði ávallt um móður mína og bað fyrir kveðju til hennar. Ingólfur skrifaði nokkrar greinar um ætt sína og æsku. Þær eru mjög í þjóðlegum frá- sagnarstíl, enda var hann mikill áhugamaður um þjóðleg fræði. Ein þeirra fjallar um Ampa, Arnbjörn Guðbrandsson, en hann var langafi Ingólfs í móð- urætt. Ampi flutti ásamt konu sinni til Veiðivatna sumarið 1880 og ætlaði að lifa á landsins gæðum. Þessa sögu heyrði ég fyrst í Veiðivötnum sumarið 1955, og hef aldrei gleymt henni. Í greininni fær lesand- inn heildarmynd af þessum dugmikla einfara. Þá ritaði Ingólfur um örlög móður sinn- ar, einnig um fósturmóður sína, Halldóru Magnúsdóttur, sem hann unni mjög. Ingólfur gekk í Samvinnu- skólann hjá Jónasi afa mínum. Sem áhugamaður um náttúru- fræði sat hann lengi í stjórn Náttúrufræðifélags Íslands og sá um fjárgæslu félagsins. Hann var gerður að heiðurs- félaga þess, sem sýnir í hver miklum metum hann var þar. Á kveðjustund votta ég Mar- íu og börnum þeirra Ingólfs innilega samúð. Gerður Steinþórsdóttir. Við minnumst þessa mikla fræðimanns og góðvinar með hlýhug og þökk fyrir kynnin bæði við hann og fjölskyldu hans alla, og hans ómetanlega starfs sem hann vann fyrir sveitina. Minning hans geymist í því verki sem og öll saga Landsveitarinnar. Sigríður Theodóra Sæ- mundsdóttir, Skarði. Það var um jól að móður minni og mér barst sending frá Ingólfi Einarssyni. Það voru tvær ferðadagbækur eftir Ing- ólf úr óbyggðaferðum áritaðar „Til mæðgnanna Auðar og Gerðar“. Önnur segir frá ferð árið 1954 um öræfin norðan við Vatnajökul; í Herðubreiðar- lindir og Öskju, en hámark þeirrar ferðar var að komast yfir Kverká og Kreppu í Hvannalindir. Hin ferðin var farin ári síðar í Nýjadal, Veiði- vötn og að Arnarfellinu mikla. Ingólfur var þá á þrítugsaldri. Þetta var í árdaga ferða á fjallabílum inn á hálendi Ís- lands. Bílstjóri var Bjarni í hans við sveitina haft sitt að segja um áhuga hans á örnefn- um, ættfræði og byggðasögu Landsveitarinnar. Að hans frumkvæði var farið af stað með byggðasögu Land- manna og fleiri sveita í Rang- árþingi. Það var gríðarlegt verk að safna öllum þeim fróðleik saman, en því öllu stýrði Ing- ólfur og vann að mestum hluta. Hann fór meðal annars bæ af bæ og aflaði sér upplýsinga frá heimafólki og þannig mynduð- ust tengsl og vinátta við bænd- ur og búalið, og hann var kær gestur hvar sem hann kom. Sér- staklega myndaðist kær vinátta milli Ingólfs og fjölskyldu hans og systkinanna í Hrólfsstaða- helli og dvaldi hann löngum þar. Eins kynntumst við í Skarði Ingólfi þegar hann var við þessa gagnaöflun og myndaðist á milli okkar allra vinátta og kunnings- skapur sem entist ævilangt. Ingólfur kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Maríu Eggerts- dóttur 1959 og eignuðust þau tvö elskuleg og mannvænleg börn sem bera nöfn hjónanna í Snjallsteinshöfða. Það er með mikilli virðingu sem ég minnist fræðimannsins Ingólfs Einarssonar sem nú er látinn. Hann var fæddur í Snjallsteinshöfða í Landsveit 13. júlí 1927, þar sem móðir hans var vinnukona. Á þeim tíma var Snjallsteinshöfði eitt af höfuðbýlum sveitarinnar og Jóhann Teitur bóndi og eigin- kona hans Halldóra miklar gæðamanneskjur og góðbænd- ur. Þau buðu drengnum strax fóstur og þar ólst hann upp við gott atlæti, og varð einn af sönnum sonum Landsveitarinn- ar. Sjálfur sagðist hann ekki hafa getað óskað sér betra fóst- urs en hjá þeim hjónum en naut ekki Jóhanns lengi við því hann lést árið 1929. Halldóra bjó um sinn áfram í Snjallsteinshöfða, en flutti 1931 til Reykjavíkur og hélt heimili með fósturbörnum sínum, Ingólfi og Laufeyju Fríðu Erlendsdóttur. Heimili þeirra sem hún reisti á Karla- götunni og hefur þar verið alla tíð, varð einn af miðpunktum Landmanna þegar þeir áttu er- indi í kaupstað og eflaust hafa þessi kynni og tryggð fóstru Ingólfur Einarsson Mín fyrstu kynni af Ragnari voru árið 1994 í Bosn- íu þegar ég fór að vinna fyrir Sameinuðu þjóðirnar. Við náðum strax saman í flugvélinni á leið- inni til Króatíu eins og við hefð- um ætíð þekkst, þannig náungi var Ragnar, hann var mann- blendinn og bar með sér góða nærveru og hlýju. Þegar við fórum að starfa Ragnar Höskuldsson ✝ Ragnar Hösk-uldsson fæddist í Reykjavík 10. maí 1957. Hann and- aðist á gjörgæslu- deild Landspítalans 19. maí 2012. Ragnar var jarð- sunginn frá Há- teigskirkju 29. maí 2012. saman í Króatíu komst ég fljótt að því hversu góður stafsmaður Ragnar var í sínu starfi. Hann var áhuga- samur um þau verk- efni sem honum var ætlað að leysa sem oft voru erfið og krefjandi og reyndi á hæfni ökumanna í hættulegum að- stæðum. Síðan þegar leið á árið kom fjölskyldan hans til hans og var það honum mjög kærkomið og áttu þau ógleymanlega tíma. Eftir að þessu „mission“ var lok- ið (eins og Raggi tók til oft orða) hélst okkar vinskapur áfram og varð alltaf sterkari og fjölskyld- ur okkar kynntust vel og áttum við margar og ógleymanlegar stundir bæði í gleði og sorg. Árið 2007 missti Ragnar og hans fjöl- skylda drenginn sinn hann Andra og voru þetta erfiðir tímar og reyndi mikið á okkar góða og trausta vinskap. Ragnar var alltaf góður við börn og þótti gaman í afahlut- verkinu. Ragnari fannst fátt skemmtilegra en að veiða og vera úti í náttúrunni, eins og þegar við fórum á Arnarvatns- heiði og Skaðaheiði að veiða að sumarlagi og eins að vetri að veiða gegnum ís. Síðan allar Laufskálaréttirnar sem við (strákarnir) Nonni, Bjartur, Emmi, Snorri, Stjáni píp, Stjáni á Akureyri og Aggi, eins og Raggi kallaði okkur, fórum í síð- ustu 16 árin. Í réttunum naut hann sín vel og var hrókur alls fagnaðar meðal heimamanna og gaf sér alltaf góðan tíma til að spjalla við heimamenn, bændur og aðra merkismenn. Ragnar hafði mikinn áhuga á verkfærum og deildum við því áhugamáli strákarnir. Það var ætíð gaman að koma í bílskúrinn hans og spjalla um bíla, viðgerðir og önnur málefni. Þar voru margir bílarnir gerðir upp. Hann var vel að sér í ýmsum málefn- um, hafði mikinn áhuga á öllum vísindum og nýjustu tækni og allri þróun í veröldinni. Það má segja að Ragnar hafi verið svolít- ill dellukall þegar kemur að gervihnattadiskum og sjónvar- prásum. Það var hans slökun að hvíla lúin bein í lazyboy-stólnum sínum fyrir fram sjónvarpið og forvitnast um nýjustu vísindi og voru ófá símtölin sem fylgdu í kjölfarið með hans spekúlering- um. Ragnar var ákaflega hjálp- samur og var ætíð reiðubúinn til að hjálpa nótt sem dag, það var fátt sem hann réð ekki við. Hann var með mikið jafnaðargeð og var mjög næmur á fólk og lífið. Elsku Ragnar minn, takk fyrir allt, góða vináttu og skemmtileg- ar stundir. Megir þú hvíla í friði, kæri vin- ur. Jón Hafnfjörð Hafsteinsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.