Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012 Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is HB Grandi hefði skilað 1,6 milljarða króna tapi eftir skatta árið 2011 í stað eins milljarðs króna hagnaði ef frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækk- un veiðigjalds hefði verið í gildi þá. Þetta kom fram í máli Eggerts B. Guð- mundssonar, forstjóra HB Granda, á fundi með starfs- mönnum, fulltrúum birgja og viðskiptavinum fyrirtækisins sen haldinn var í höfuðstöðvum þess í Reykjavík í gær til þess að ræða áhrif kvótafrumvarpa ríkisstjórnarinnar á rekstur fyrirtækisins. Eftir fundinn bauð fyrirtæk- ið upp á rútuferðir á Austurvöll þar sem samstöðufundur gegn frumvörpunum var haldinn. Tók Eggert það fram í upphafi máls síns að rúturnar væru aðeins fyrir þá sem vildu fara og engum starfsmanni væri skylt að mæta á samstöðufundinn. Þá ræddi forstjórinn um áhrif þess að aflaheim- ildir fyrirtækisins yrðu skertar til að setja þær í pott eins og kveðið er á um í fiskveiðistjórnunar- frumvarpinu. Sagði hann HB Granda verða fyrir viðbótarskerðingu upp á 2.170 þorskígildistonn, en skerðingin væri þegar 1.430 tonn. Viðbótar- skerðingin næmi rétt rúmum helmingi af með- alveiðum botnsfisksskips á árinu 2010. Heildar- skerðingin upp á 3.600 tonn færi hátt upp í veiðar heils togara. Eggert gagnrýndi þá umræðu sem sífellt væri uppi um að arðurinn af auðlindinni ætti að fara til þjóðarinnar og benti á allar þær tekjur sem færu til ríkisins og landsmanna í gegnum skatta og laun sem fyrirtækið greiddi. „Þessar fullyrðingar standast því enga skoðun,“ sagði hann. Gætu borgað hærra veiðigjald Þegar framsögu forstjórans lauk bauðst starfs- fólki og öðrum fundargestum að spyrja hann spurninga. Var hann meðal annars spurður hvort stjórnendur fyrirtækisins væru algerlega mót- fallnir nokkurri hækkun á veiðigjaldinu. Eggert svaraði því til að svo væri alls ekki og menn hefðu virkilega léð máls á því. Það jákvæða við frumvörpin nú væri að þar væri gerð tilraun til að reikna veiðigjaldið á skynsamlegri hátt en áður og þar væri tekið tillit til hvernig gengi í greininni frá ári til árs og á milli mismunandi teg- unda. „Við gætum borgað talsvert meira en sam- kvæmt núverandi kerfi, en þær tillögur sem liggja nú fyrir eru hins vegar langt umfram það sem skynsamlegt væri að sætta sig við vegna þeirra skaðlegu áhrifa sem það hefði á fyrirtækið.“ Forstjórinn gagnrýndi skort á samráði við full- trúa greinarinnar þegar frumvörpin voru samin og lagði til að úr því yrði bætt. „Það er gríðarlega mikið af kreddum og for- dómum, hugsanlega á báða bóga, sem aðeins er hægt að eyða með umræðum,“ sagði hann. Glórulaust að blanda vinnslu og veiðum Að lokum var hann spurður út í það hvernig veiðum og fiskvinnslu væri blandað saman í frum- vörpunum. Sagði forstjórinn þetta vera eitt grundvallaratriða í gagnrýni á frumvörpin. Það væri alveg glórulaust að eftir því sem betur gengi í fiskvinnslunni, því meira ættu þeir sem veiddu fiskinn að greiða í veiðigjald. Þetta skipti ekki svo miklu máli fyrir fyrirtæki eins og HB Granda sem réði bæði yfir veiðum og vinnslu en kæmi skringilega út þar sem eitt fyrir- tæki væri í veiðum og annað í vinnslu. Hagnaður annars þeirra hækkaði gjöldin á hitt. „Menn sjá hversu hamlandi þetta væri fyrir framfarir í vinnslu,“ sagði hann. Geta ekki sætt sig við skaðleg áhrif á fyrirtækið  HB Grandi fundar með starfsfólki um áhrif kvótafrumvarpanna á reksturinn Morgunblaðið/Eggert Grandi Starfsmönnum, birgjum, viðskiptavinum og stéttarfélögum var boðið á fund HB Granda í skemmu í höfuðstöðvunum í Reykjavík fyrir samstöðufundinn sem haldinn var á Austurvelli í gær. Fundargestir hlustuðu á forstjóra HB Granda útskýra áhrif kvótafrumvarpanna á fyrirtækið en á veggjunum héngu myndir af öllum fiskiskipum þess. Eggert B. Guðmundsson Á fundi SFÚ, Samtaka fiskframleið- enda og útflytjenda, sem haldinn var í gær, var farið hörðum orðum um frumvarp ríkisstjórnar um stjórn fiskveiða. Verði frumvarpið sam- þykkt óbreytt telja samtökin að fisk- markaðir muni leggjast af og lifi- brauð 10.000 einstaklinga ógnað. „Krafa okkar í SFÚ er tvíþætt: Að fá fisk inn á fiskmarkaðina, m.ö.o. að skylda útgerðina til þess að landa ákveðnu hlutfalli, helst öllum fiski, inn á íslenska fiskmarkaði,“ segir Gunnar Örlygsson, hjá AG Seafood í Reykjanesbæ, en hann segir kröfu þessa vera tilkomna vegna Verðlags- stofu skiptaverðs. Segir Gunnar hana tryggja útgerðarmönnum hrá- efni til vinnslu á allt að 30-40% lægra verði en þekkist hjá vinnslum sem starfa án útgerðar. Hin krafa SFÚ er að hinn svokall- aði gámafiskur, óunnið hráefni sem sett er í gáma og flutt á erlenda markaði, fari fyrst inn á innlendan fiskmarkað svo íslensk fiskvinnsla fái að bjóða í íslenskan fisk í sam- keppni við erlenda jafnt sem inn- lenda kaupendur sem vilja kaupa fisk á opnum markaði. Í frumvarpi ríkisstjórnar er ekki að finna eitt orð um fiskmarkaði en án þeirra eiga sjálfstætt starfandi fiskverkendur litla framtíð. Ólafur Arnarson hagfræðingur flutti langt ávarp á fundinum og vék hann m.a. að stöðu byggðarlaga í landinu og benti á að sjálfstæðir fisk- verkendur væru bakbein þeirra. Hann sagði hlutverk Alþingis vera að setja sanngjarnar og réttlátar leikreglur sem m.a. eigi að koma í veg fyrir samkeppnisójöfnuð. Frum- varp ríkisstjórnar tryggir það hins vegar ekki. „Ef þetta fer svona í gegn þá er einfaldlega verið að þröngva sjálfstæðum fiskverkendum út af markaði með þeim afleiðingum að 10.000 störf eru í uppnámi,“ sagði Ólafur og spyr hvort vöntun sé á at- vinnulausu fólki hér á landi. 10.000 störf í hættu  Stöðu fiskmarkaða ógnað með frumvarpi Icelandair býður upp á beint flug frá Akureyri til Keflavíkur fjóra daga í viku í sumar. Fyrsta ferðin var í gær og er tilgangurinn sá að gera norð- anmönnum auðveldara en áður að komast beina leið til helstu áfanga- staða félagsins í Evrópu og Banda- ríkjunum. Viðskiptavinir Icelandair bóka flugið hjá Icelandair og innrita sig alla leið á áfangastað. Flogið verður fjórum sinnum í viku til 27. ágúst, á mánudögum, fimmtudögum, föstu- dögum og sunnudögum og tvisvar í viku eftir það til 30. september á fimmtudögum og sunnudögum. Skv. upplýsingum frá Icelandair er gert ráð fyrir að um 2500 farþeg- ar fljúgi þessa leið í sumar og að stærstur hluti þeirra, um 80%, verði erlendir ferðamenn sem taldir eru nær hrein viðbót við þá ferðamenn sem fyrir eru. Búist er við því að Danir, Bretar, Svíar og Þjóðverjar verði fjölmennastir í hópi þessara ferðamanna. Brottför frá Akureyrarflugvelli verður jafnan kl. 14.30 og lending á Keflavíkurflugvelli kl. 15.20. „Tíma- setningin gerir það að verkum að fjölmargir áfangastaðir Icelandair liggja vel við þessu tengiflugi, til dæmis London, Kaupmannahöfn, Frankfurt, Amsterdam, Brussel, Stokkhólmur og Ósló, auk þess sem það eru tengingar á ýmsa áfanga- staði í Norður-Ameríku,“ segir í til- kynningu frá Icelandair. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Beint út Tveir farþeganna til Keflavíkur, Guðrún Sigurðardóttir, sem var á leið heim til Svíþjóðar, og Sven Adolph, klipptu á borða á Akureyri í gær. Akureyri tengd áfanga- stöðum Icelandair  Flogið fjóra daga í viku til Keflavíkur Svarið við spurningu dagsins NÝ HEIMASÍÐA Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Sími 533 1300 - fylgifiskar@fylgifiskar.is - fylgifiskar.is Kíktu við og sjáðu rétti dagsins, finndu þér uppskrift eða veltu fyrir þér veislunni sem þú ætlar að halda í sumar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.