Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Hljóðkerfi og hljóðbúnaður
í miklu úrvali.
Hljóðkerfistilboð á www.hljodfaerahusid.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú átt það til að rukka of lítið fyrir
þjónustu þína eða vinna fyrir ekkert til að
reyna að styrkja stöðu þína. Gott ráð er að
laga skilaboðin að viðtakandanum.
20. apríl - 20. maí
Naut Það þýðir lítið að stinga við fótum þeg-
ar allt er á fleygiferð í kringum þig. Gott væri
að gefa sér tíma til íhugunar og reyndu að
komast að því hvað það er sem þú vilt í raun
og veru.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver sem hefur gerólíkar skoð-
anir verður á vegi þínum. Finnist þér of miklar
kröfur vera gerðar til þín gæti það reynst þér
nauðsynlegt að komast í burtu um tíma.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Haltu þínu striki og notaðu verkfærin
sem þú hefur til ráðstöfunar. Gleymdu ekki
að láta þína nánustu finna fyrir ást þinni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Leitaðu aðstoðar vina og ættingja varð-
andi umbætur á heimilinu. Leggðu þig fram
um að koma til móts við aðra og sýndu fyr-
irhyggju í fjármálum sem og öðrum málum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú kynnist manneskju sem hefur mikil
áhrif á þig en gleymdu því ekki að oft er flagð
undir fögru skinni. Erfitt samtal sem þú kvíðir
mun reynast þér auðvelt.
23. sept. - 22. okt.
Vog Að segja að þú sért fylginn þér eru engar
ýkjur. Afstaða þín í málum sem þér eru hjart-
fólgin er skýr. Mundu að allir eiga leiðréttingu
orða sinna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Gættu þín að láta engan mis-
nota tilfinningar þínar, hvort heldur um er að
ræða vini og vandamenn eða aðra. Gerðu það
sem til þarf til að hressa þig við andlega sem
líkamlega.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það ríður á miklu að þú haldir ró
þinni, þótt eitthvað gangi á í kring um þig.
Viðskipti geta verið varasöm, þegar ekkert til-
lit er tekið til aðstæðna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þér virðist allt ganga í haginn og
aðrir vilja njóta velgengni þinnar með þér.
Settu þér markmið og sæktu að því af dugn-
aði og festu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Væntingar annarra skipta þig nán-
ast engu máli, því þínar eigin væntingar eru
stöðugt með þér. Reyndu að gera ekki alveg
svona miklar kröfur til sjálfrar/sjálfs þín.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu ekki illa, þótt þér finnist dag-
skráin í dag mótuð af öðrum og lítið tillit tek-
ið til þinna þarfa.
Gömul heilræðavísa sem pabbisendi mér eitt sinn,“ er yf-
irskrift þessarar braghendu sem
Þórarinn Eldjárn setur á fésbók-
arsíðu sína:
Vegtyllurnar eru fjarg og fjötur.
Þó eru völdin verri en þær,
veldu hvorugt sonur kær.
Þar spunnust einnig umræður um
afdráttarhátt, þar sem botninn fæst
ef sleppt er staf framan af hverju
orði í fyrripartinum. Þórarinn rifj-
aði upp vísu Jóhannesar úr Kötlum:
Drósir ganga, dreyrinn niðar,
drjúpa skúrir.
Rósir anga, reyrinn iðar,
rjúpa kúrir.
Guðmundur Andri Thorsson lagði
orð í belg og rifjaði upp vísu Sveins
frá Elivogum:
Sléttum hróður, teflum taflið teygjum
þráðinn snúna.
Léttum róður, eflum aflið,
eygjum ráðin núna.
Þórarinn kann þá list að efast –
eða hvað?
Efastu um allt.
Einkum skalt
þú efast um að
einmitt það
sé eitthvað snjallt
að efast um allt.
Og hann yrkir um álitsgjafana:
Gaf mér álit álitsgjafi,
ekki hrjáð’ ann minnsti vafi.
Komst ég þar í þykkt og feitt
og þarf aldrei framar að líta á neitt.
Bjarni frá Gröf orti vætu tíð:
Hér er bölvuð ótíð ort
og aldrei friður,
það ætti að rigna upp í loft
en ekki niður.
Bjarki orti að gefnu tilefni í mars:
Nú renna upp dagar vors fegursta frama
því forsetinn Ólafur (var ég að lesa)
er dýrlegur norðursins Dalaí Lama,
en Dorrit, að sjálfsögðu, móðir Theresa.
Og hann liggur ekkert á afstöðu
sinni í forsetakosningunum:
Óli þumbast, Þóra rokkar
- þetta er lífsins forrit -
svo er líka Svavar okkar
sætari en Dorrit.
Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af afdráttarhætti,
efasemdum, álitsgjöfum
og Dorrit
Tíska er furðulegt fyrirbæri. Galla-buxur sem Víkverji keypti í gær
verða örugglega komnar úr tísku á
morgun og gömlu og hallærislegu upp-
háu strigaskórnir þykja núna kannski
bara ágætir. Engin leið er að átta sig á
hvaðan tískuvindarnir blása.
x x x
Þetta á við um fatatísku sem skó-tísku en eitt gleggsta dæmið um
tískuvitleysuna er í sólgleraugnatísk-
unni.
x x x
Víkverji er hlaupari og fyrir nokkr-um árum keypti hann sér sér-
hönnuð hlaupasólgleraugu. Flestir
kannast við þessa tegund sólgler-
augna; glerin eru allstór, oft egglaga
og umgjörðin (sem gjarnan er litrík)
er þannig gerð að auðveldlega er hægt
að skipta um gler, setja brún eða glær
í staðinn fyrir svört, svo dæmi sé
nefnt. Hlaupasólgleraugu eru létt og
glerin liggja ekki of nálægt andlitinu
og því fyllast þau ekki af móðu þegar
hlauparinn tekur að svitna ótæpilega.
x x x
Frá því að Víkverji fékk sín fyrstuhlaupasólgleraugu hefur hann
týnt öðrum sólgleraugum sem hann
átti og núna er staðan sú að hann á
bara hlaupasólgleraugu, raunar tvenn.
Og þá er komið að furðum tískunn-
ar: Af einhverjum ástæðum hefur Vík-
verji ítrekað fengið að heyra að það sé
ferlega glatað að láta sjá sig með
hlaupasólgleraugun, nema í hlaupa-
eða hjólatúr. Það sé verulega hallær-
islegt, svo vægt sé til orða tekið, að
bera þau við önnur tækifæri. Fólk
gæti haldið að Víkverji væri nörd eða
væri að monta sig af því að vera hlaup-
ari en hvort tveggja er fjarri lagi. Ekk-
ert hefur dugað að benda á að hin vin-
sælu Ray Ban-flugmannagleraugu
voru sérstaklega hönnuð fyrir orrustu-
flugmenn í seinni heimsstyrjöldinni.
Ef fólk sem aldrei hefur flogið flugvél,
hvað þá tekið þátt í flugorrustu, getur
gengið með flugmannagleraugu niðri í
bæ – hvers vegna getur Víkverji þá
ekki spókað sig þar með hlaupasól-
gleraugun sín án þess að verða fyrir
aðkasti? Víkverji er þó a.m.k. hlaupari.
Þetta er hreinlega óskiljanlegt og
óþolandi! víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Þá er þeir mötuðust, tók
Jesús brauð, þakkaði Guði, braut það og
gaf lærisveinunum og sagði: Takið og
etið, þetta er líkami minn. (Matt. 26, 26.)
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
F
er
di
n
an
d
HEYRÐU! ÞETTA ER TRÉÐ SEM
ÉG KLIFRA Í!
SÉRÐU
ÞESSA LITLU
PÖDDU?
ÞAÐ ER SORGLEGT HVAÐ HÚN
HLÝTUR AÐ VERA FÁFRÓÐ
HÚN VEIT EKKERT UM
KOSNINGAR, SJÚKDÓMA,
JARÐSKJÁLFTA, ÁST EÐA
MÁNUDAGSMORGNA...
OG HVORT YKKAR ER
BETUR SETT?
BAUÐSTU
HRÓLFI OG HELGU
Í VEISLUNA Í
KVÖLD?
NEI! ÉG VONA AÐ ÞAUFRÉTTI EKKI AF ÞVÍ AÐ VIÐ
ÆTLUM AÐ HALDA VEISLU
ÁN ÞEIRRA...
ÞAU GÆTU
TEKIÐ ÞAÐ
NÆRRI SÉR
KANNASTU VIÐ ÞAÐ ÞEGAR TVEIR
EINSTAKLINGAR ERU BÚNIR AÐ EYÐA OF MIKLUM
TÍMA SAMAN ÞÁ EIGA ÞEIR ÞAÐ TIL AÐ KLÁRA...
MORGUNMAT
HVORSANNARS?
KISI