Morgunblaðið - 08.06.2012, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.domusnova.is
Kirkjusandur 1 - 105 Rvk
Axel Axelsson
Löggiltur fasteignasali
Heimir Bergmann
Sími 822 3600
heimir@domusnova.is
heimir.domusnova.is
Virkilega vel með farin 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi
við Kirkjusand 1 ásamt stæði í bílageymslu.
Fallegt útsýni. Getur losnað fljótt.
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 10. JÚNÍ, FRÁ 17:00-17:30
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðis-
ins afhentu í gær Ástu Ragnheiði
Jóhannesdóttur, forseta Alþingis,
undirskriftarlista þar sem þeir
hvetja þingmenn til að styðja þings-
ályktunartillögu um ætlað samþykki
við líffæragjafir.
Tillagan felur í sér að velferðar-
ráðherra verði falið „að láta semja
frumvarp sem geri ráð fyrir „ætl-
uðu samþykki“ við líffæragjafir í
stað „ætlaðrar neitunar“, þannig að
látinn einstaklingur verði sjálfkrafa
líffæragjafi nema hinn látni hafi lát-
ið í ljós vilja til hins gagnstæða,“
eins og segir í tillögunni.
Jón Viðar Matthíasson, slökkvi-
liðsstjóri SHS, segir tilganginn með
afhendingu undirskriftalistans þann
að minna þingheim á tillöguna, sem
slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn
styðji heils hugar. „Þetta mál snert-
ir okkur þannig að mínir menn eru
daglega í sjúkraflutningum, eru að
flytja sjúka inn á spítalann og eru
meðvitaðir um mikilvægi þess að líf-
færaflutningar séu virkir innan okk-
ar litla lands. Við erum lítil eyja og
líffæraflutningar eru mjög mikil-
vægt verkfæri í heilbrigðiskerfinu
og við teljum að því auðveldara sem
það er að framkvæma líffæraflutn-
inga, því betra sé það fyrir heildina.
Og mínir menn verða varir við
þessa þörf í sinni vinnu,“ segir
hann.
Jón segir menn óttast að málið
verði innlyksa í málaflóðinu á þingi
en í þessu samhengi geti hver dag-
ur, vika og mánuður skipt marga
sköpum. Sem stendur hefur velferð-
arnefnd málið til umfjöllunnar en
Álfheiður Ingadóttir, formaður
nefndarinnar, segist vonast til þess
að það verði afgreitt fyrir þinglok.
Hún segir engan ágreining uppi um
tillöguna, heldur virðist hún njóta
góðs stuðnings, bæði innan nefnd-
arinnar og á þinginu.
Núgildandi lög gera ráð fyrir
„ætlaðri neitun“ og þarf því sam-
þykki náinna ættingja áður en líf-
færi er numið á brott til ígræðslu í
aðra manneskju. Tillagan gerir ráð
fyrir að farin verði sama leið og í
t.d. Noregi, Svíþjóð og Finnlandi,
þar sem gert er ráð fyrir „ætluðu
samþykki“.
Umsagnaraðilar, sem flestir eru
jákvæðir í garð tillögunnar, hafa þó
bent á að ýmislegt þurfi að hafa í
huga við smíði frumvarpsins, s.s.
persónuverndarsjónarmið, rekstur
gagnagrunns yfir þá sem vilja ekki
gefa líffæri, öfluga upplýsingagjöf
til almennings og að staðinn verði
vörður um mannréttindi þeirra sem
vegna t.d. fötlunar, aldurs eða sjúk-
dóms geta ekki haft uppi andmæli
gegn ætluðu samþykki.
Morgunblaðið/Júlíus
Áminning Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn afhentu forseta Alþingis undirskriftalistann í gær.
Vilja minna á tillögu
um „ætlað samþykki“
Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn styðja líffæragjöf
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Söluaukning á nýjum fólksbílum
fyrstu fimm mánuði þessa árs var
76,6% miðað við söluna í sömu mán-
uðum í fyrra. Özur Lárusson, fram-
kvæmdastjóri Bílgreinasambands-
ins, segir að bílasala sé greinilega
að taka við sér þótt hún haldi engan
veginn í við þörfina á endurnýjun
bílaflotans. Því er spáð að heildar-
salan geti orðið um 6.500 fólksbílar
á þessu ári.
Um helmingur af nýju fólksbíl-
unum sem seldust frá janúar og til
loka maí, 1.772 bílar af 3.338 bílum,
fór til bílaleigna. Bílaleigurnar
þurfa að endurnýja flota sína ört og
bæta við vegna aukins straums
ferðamanna. Bílaleigubílarnir
koma svo margir á markað í haust
og hleypa lífi í sölu notaðra bíla.
Bílamarkaðurinn hefur færst æ
meira yfir í notaða bíla undanfarin
ár, að sögn Özurar. Hann segir að
frá árslokum 2008 hafi nær engin
sala verið í nýjum bílum þar til í
fyrra. Þá fór markaðurinn að taka
við sér. Þessu hefur fylgt að fólk
hefur frekar skipt í aðeins yngri
notaðan bíl frekar en að kaupa sér
nýjan bíl.
„Við sjáum breytingu núna. Fólk
er aðeins farið að kaupa sér nýja
bíla,“ segir Özur. „Þetta er þó ekk-
ert orðið eins og væri í eðlilegu
ári.“ Hann segir að eðlileg endur-
nýjunarþörf bílaflotans sé talin
vera 12-14 þúsund bílar á ári. Miðað
við það hefði þurft að flytja inn 5-6
þúsund nýja bíla fyrstu fimm
mánuði ársins.
76,6% meiri sala í
nýjum fólksbílum
í janúar til maí
Enn vantar talsvert upp á að sala
nýrra bíla mæti endurnýjunarþörfinni
Nýskráningar
Nýir fólksbílar á tímabilinu jan.–maí
2010 2011 2012
790
1.890
3.338
Heimild: Bílgreinasambandið
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Hugmyndir um stækkun Keflavík-
urflugvallar voru kynntar á opnum
fundi í Leifsstöð í gær. Fundurinn
var hluti af kynningarátaki vinnu-
hóps á vegum Isavia sem hefur
unnið að þarfagreiningu fyrir flug-
völlinn, en formleg drög að að-
alskipulagi verða ekki lögð fram
fyrr en í fyrsta lagi í október á
þessu ári. Almenningi og sérhags-
munaaðilum gefst því kostur á að
kynna sér áherslur vinnuhóps um
aðalskipulag Keflavíkurflugvallar
og vekja umræðu um tillögurnar
áður en þær verða sendar áfram
til stjórnar Isavia.
Sigurður H. Ólafsson, skipulags-
fulltrúi Isavia, leggur áherslu á að
núna sé bara verið að kynna þær
hugmyndir sem verið sé að vinna
með og að engar ákvarðanir um
skipulag flugvallarins hafi verið
teknar. Endanleg tillaga að aðal-
skipulagi verður ekki lögð fram
fyrr en á næsta ári og þá muni aft-
ur gefast tækifæri til þess að koma
á framfæri athugasemdum við þær
tillögur sem þar verða lagðar
fram.
Vinnuhópurinn leggur m.a. til að
nýrri flugbraut frá norðri til suð-
urs verði bætt við vestan megin
við núverandi flugbrautir, og að
braut frá norðvestur til suðaust-
urs, sem nú er þegar gert ráð fyrir
í aðalskipulagi, verði hliðruð til.
Með því væri hægt að tvöfalda af-
kastagetu flugvallarins, en árið
2011 fóru 63% allra flughreyfinga
á Leifsstöð, þ.e. lendingar og flug-
tök, um núverandi norður-suður
braut.
Fjöldi farþega um Leifsstöð er
nú um 2,3 milljónir farþega á ári,
en verður líklega á bilinu 3 til 6
milljónir á ári árið 2030. Vinnuhóp-
urinn leggur til að þeim vexti verði
mætt með því að stækka flugstöð-
ina til austurs, en Sigurður bendir
á að það séu takmarkaðir stækk-
unarmöguleikar í þá átt vegna nú-
verandi legu flugbrautarinnar og
því sé einnig gert ráð fyrir að flug-
stöðin geti stækkað í vesturátt.
Hópurinn leggur einnig til að
hringtenging verði við flugvöllinn.
Sigurður segir það ekki ásættan-
legt að einungis sé ein leið að flug-
stöðinni, þar sem ekki þurfi mikið
að bjáta á til að loka aðgengi að
henni alveg.
Hægt er að kynna sér tillögur
vinnuhópsins á heimasíðu Isavia,
og er hægt að koma athugasemd-
um við tillögur nefndarinnar til
skila fram til 5. júlí nk.
Hugmyndir um nýja flugbraut
Einkum ætlað að auka afkastagetu flugvallarins Flugstöðin hugsanlega stækkuð til að koma til
móts við fjölgun farþega Aðgengi að flugvellinum sjálfum tryggt betur með hringtengingu
Morgunblaðið/ÞÖK
Flugstöðin Vinnuhópur á vegum Isavia kynnti hugmyndir um hugsanlega
stækkun Keflavíkurflugvallar á opnum fundi í Leifsstöð í gær.
80
líffæraígræðslur fóru fram á ís-
lenskum sjúklingum á árunum
2006-2010. Fengu 5 einstaklingar
hjarta, 17 lifur, 4 lunga og 54 nýra.
272
líffæraígræðslur höfðu verið fram-
kvæmdar á íslenskum sjúklingum
árið 2010 frá því þær hófust
1970.
18
sjúklingar voru á biðlista eftir líf-
færum í lok árs 2010, þar af einn
sem beið eftir hjarta, einn sem
beið eftir lungum, þrír sem biðu
eftir lifur og tólf sem biðu eftir
nýra. Einn beið eftir hjarta og
nýra.
‹ LÍFFÆRAGJÖF ›
»