Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 12
VIÐTAL
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Geoff Eley, prófessor í sagnfræði við
Michigan-háskóla, hefur í 40 ár rann-
sakað bæði fasisma og vinstri hreyf-
ingar í Evrópu auk þess sem hann
hefur skrifað um hið sögulega minni
þjóða og hvernig það mótast. Hann
telur að eftir síðari heimsstyrjöld
hafi myndast samfélög í Evrópu,
sem byggðust á andstöðunni við fas-
isma og höfðu þá sérstöðu að al-
menningur taldi sig eiga hlutdeild í
þeim. Nú hafi hins vegar orðið rof
þar sem gap hafi myndast milli hinna
hefðbundnu stjórnmála og almenn-
ings og verði ekkert að gert gæti það
orðið gróðrarstía öfgaafla og póli-
tísks ofbeldis.
„Burtséð frá kreppu evrunnar er
hin pólitíska sátt, sem myndaðist
með mjög skilvirkum hætti eftir 1945
og stóð þar til í upphafi áttunda ára-
tugarins, í upplausn,“ segir Eley.
„Eftir sjöunda áratuginn hefur hún
verið skrúfuð í sundur og í staðinn
hefur komið það sem við köllum nú
nýfrjálshyggju, sem um tíma leiddi
af sér nýja sátt, en grunnur hennar
var mun ótryggari.“
Eftirstríðssáttin rofin
Eley segir að veðjað hafi verið á
einkaneyslu, niðurrif hinna gömlu
innviða, ekki bara velferðarríkisins
og hagstjórnar í anda Keynes, held-
ur líka hins víðtæka þjóðfélagssátt-
mála, sem skipan mála eftir stríð var
reist á með stéttarfélög í miðdepli.
„Upplausn þessa fremur sterk-
byggða virkis í nafni einkavæðingar,
markaðsafla, þessara hugmynda,
sem urðu ráðandi, um það hvað fær
samfélagið til að virka, hefur skilið
eftir sig verulega óreiðu,“ segir
hann. „Það opnar leiðina fyrir annars
konar pólitíska hugsun og virkni og
gerir að verkum að hægt er aðhyllast
hugmyndir, sem við kennum við öfg-
ar. Áhrifamesta afleiðing hnattvæð-
ingarinnar, hinn haftalausi, þver-
þjóðlegi vinnumarkaður, spilar inn í
þetta. Þar hafa verkamenn ekki
lengur það öryggi, sem sáttmálinn
eftir seinna stríð veitti. Það skapar
síðan alls kyns kvíða í kringum þjóð-
ernisvitund og brostnar væntingar
um samstöðu í samfélaginu. Ég held
að vandinn í kringum þessar breyt-
ingar sé aflvaki andúðarinnar á út-
lendingum og innflytjendum, kveikja
útlendingaótta og kynþáttahyggju og
hafi valdið virkni á hinum róttæka
hægri armi, sem hlýtur uggvekjandi
almennan hljómgrunn um þessar
mundir.“
Eley segir rétt að hafa í huga
hvernig sáttin eftir seinni heims-
styrjöld var fest í sessi. „Styrkur og
stöðugleiki sáttarinnar í Vestur- og
Norður-Evrópu fólust í því að fólk
samsamaði sig ríkjunum, sem þróuð-
ust eftir 1945. Í tilfelli Bretlands
byggðist það augljóslega á samstöð-
unni í stríðinu og þeirri tilfinningu að
allir hefðu snúið bökum saman í nafni
hins góða málstaðar í stríðinu. Á
meginlandi Evrópu kristallaðist það í
andspyrnunni í stríðinu.“
Eley kveðst telja að þessi sátt hafi
að hluta náðst vegna einingar um
pólitíska andstöðu við fasisma, sem
ekki væri aðeins ógn við lýðræðið
heldur borgaraleg gildi og sóma-
kennd og hefði verið svarað fullum
hálsi og lagður að velli. En það var
ekki aðeins andstaðan við fasisma,
heldur einnig sú tilfinning að nú
mætti byggja heim mjög frábrugðinn
þeim, sem var fyrir 1939.
„Þetta ferli lýðræðisvæðingar
samfélagsins hafði þegar hafist á
Norðurlöndum,“ segir hann. „En það
var langt frá því að vera tilfellið ann-
ars staðar í Vestur- og Suður-
Evrópu. Því hafði ekki aðeins tekist
að sigra fasismann og stríðið að því
leyti gott, heldur var það einnig gott
að því leyti að tekist hafði að yfirstíga
það sem á vantaði á fjórða áratugn-
um, galla kerfisins, sem hafði brugð-
ist. Þar fór saman andstaðan við fas-
isma og félagslegar umbætur. Ég
held að það hafi skapað hina víðtæku
og lýðræðislegu hlutdeild almennings
í sáttinni eftir seinni heimsstyrjöld og
gert að verkum að hún stóð svo lengi,
alveg til loka áttunda áratugarins.
Síðan hefur þessi sátt verið tekin í
sundur.“
Barátta um þjóðarminni
Eley segir að frá tímabilinu 1989 til
1991 hafi staðið yfir barátta um þjóð-
arminnið, hvernig þjóðir muna sög-
una. „Það var mikill ótti meðal vinstri
manna og framsækinna hugsuða í
Vestur-Þýskalandi um að í kjölfar
sameiningar myndi íhaldssöm þjóð-
ernishyggja sækja í sig veðrið á ný. Á
tíunda áratugnum voru margar orr-
ustur háðar um hið sögulega minni
þjóðarinnar.“
Eley segir að deilurnar á tíunda
áratugnum hafi síður en svo leitt til
endurvakningar þjóðernishyggju,
heldur staðfest að nýju sáttina, sem
varð til eftir seinna stríð.
„Málinu er þó ekki lokið, það er
ekki hægt að segja: Við unnum. Þvert
á móti og deilurnar hafa haldið áfram.
Því er enn opið hvernig hið sögulega
minni verður umritað hvað varðar hin
brýnu, pólitísku mál samtímans. Og
reyndar held ég að óvissan sé aftur að
aukast.“
Ein ástæðan fyrir því er sennilega
einnig sú að fjarlægðin við stríðið
eykst. Í Þýskalandi krafðist 68-
kynslóðin uppgjörs við arfleifð for-
eldra sinna frá stríðinu. Nú eru
komnar kynslóðir, sem eru mun laus-
tengdari þessari sögu.
„Þetta er eitt af því, sem ég fjalla
um í fyrirlestrinum,“ segir Eley. „Ég
fæddist 1949 og er því af 68-
kynslóðinni, en jafnvel þótt hún sé að
hluta fædd eftir að stríðinu lauk, er
hún hluti af því. Stríðið var allt í kring-
um mig. Umræðan milli minnar kyn-
slóðar og kynslóðar foreldra minna,
sem oft var full af deilum og ágrein-
ingi, jafnvel þótt eldri kynslóðin væri
and-fasísk, var mikilvæg í því að hún
gat af sér ný form lýðræðislegra
stjórnmála á áttunda áratugunum og
út þann níunda.“
Eley segir að orðið hafi uppbrot í
flokkspólitíkinni, en umtalsverð
gróska sé utan hennar í borgaralegum
aðgerðahreyfingum, sem hafa áhrif í
borgum, hverfum eða ákveðnum
málaflokkum. „Fyrir mér er magnað-
asta dæmið um þetta fjöldamótmælin
gegn stríðinu 2003. Aldrei höfðu jafn
margir fylkt liði á götum úti, en það
skipti nákvæmlega engu máli. Það
hefur orðið rof. Við höfum hina stofn-
anavæddu miðju ríkisins þar sem
gömlu flokkarnir eru ennþá til án
nokkurra tengsla við fjöldann eða fjöl-
mennar flokksraðir eins og áður voru.
Þeir eru ekki lengur flokkar sem
byggjast á fjölda félaga. Hins vegar
eru félagslegar hreyfingar og pólitísk-
ir aðgerðahópar og það er mjög óljóst
hvernig leiða á þetta tvennt saman.“
Uggvekjandi vísbendingar
Eley segir að þessi vandi lýðræð-
isins sé einnig kveikjan að áhuga sín-
um á fasisma. „Mér virðist að þegar
stjórnskipunin bilar eins og gerst hef-
ur til dæmis í Bandaríkjunum og í
minna mæli í Evrópu og hvorki er
lengur hægt að koma á nægilegri sátt
milli hinna ráðandi stétta né skapa
nógu mikla almenna trú á kerfið skap-
ist sérlega hættulegar aðstæður. Þá
byrjar fólk að hugsa utan ramma
ásættanlegra stjórnmála. Þá skapast
kringumstæður fyrir ofbeldi og ég
held að það séu uggvekjandi vísbend-
ingar um að við séum að nálgast þær
aðstæður í Bandaríkjunum. Það sama
held ég að eigi við í Evrópu, til dæmis
Grikklandi. Ég held að það geti orðið
ákveðin gliðnun í þjóðfélaginu, sem
geti leitt til sundrungar þar sem hin
gömlu pólitísku form hætti að virka og
fólk gæti farið að snúast til pólitísks
ofbeldis.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Geoff Eley „Ég held að það geti orðið ákveðin gliðnun í þjóðfélaginu, sem geti leitt til sundrungar … og fólk gæti farið að snúast til pólitísks ofbeldis.“
Pólitískt tómarúm opnar
öfgaöflum og ofbeldi leið
Geoff Eley hefur í 40 ár rannsakað fasisma, vinstri öfl og mótun þjóðarminnis
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Geoff Eley, prófessor
við Michigan-háskóla í
Bandaríkjunum, flytur
í dag kl. 13.15 fyr-
irlestur á Íslenska
söguþinginu undir
heitinu Tortíming for-
tíðarinnar: sagan,
minnið og samtíminn. Eley hristi
upp í viðteknum hugmyndum með
gagnrýni sinni á hugmyndina um
sérleiðarkenninguna um forsendur
fasisma í Þýskalandi á sínum tíma.
Söguþingið hófst í
gær og stendur fram á
sunnudag. Þar koma
fram margir þekktir
fyrirlesarar, þar á
meðal Linda Colley,
sem fjallar um frelsi
og heimsveldi, og Dav-
id Cannadine, sem skrifað hefur
um stéttskiptingu á Bretlandi og
flytur minningarfyrirlestur Jóns
Sigurðssonar. Greiða þarf þátt-
tökugjald til að sitja þingið.
Tortíming fortíðarinnar
FJÖLBREYTT EFNI Á SÖGUÞINGI
Opið virka daga kl. 9 -18
Hnakkkollur
Armstuðnningur
Fjölbreytt úrval
Hringkollur
Vandaðir og fallegir
vinnustólar frá Score
Bakstuðningur
Eirberg ehf. • Stórhöfða 25
Sími 569 3100 • eirberg.is
MMeira á mbl.is