Morgunblaðið - 08.06.2012, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Veilur í hönnun myntsamstarfsins
eru að opinberast. Um leið birtast
þau vandamál sem fylgja því að
koma á sameiginlegri efnahags-
stefnu í 17 mismunandi hagkerfum
með mismunandi efnahagsstefnu og
ríkisstjórnir. Á næstu árum verður
því að taka nokkrar grundvallar-
ákvarðanir til að bjarga evrusvæð-
inu, ef það er á annað borð hægt,“
segir Martin Callanan, leiðtogi þing-
manna breska Íhaldsflokksins á
Evrópuþinginu, um þá ögurstund
sem runnin sé upp á evrusvæðinu.
Callanan tók þátt í heimsókn hóps
Evrópuþingmanna til Íslands sem
komu hingað í kynnisferð í vikunni.
Þegar Callanan er beðinn að út-
skýra gallana í gangverki evrusvæð-
isins byrjar hann á að nefna að ESB
sé komið mun lengra á braut mið-
stýringar en samþykkt var þegar
hinum sameiginlega innri markaði
var komið á fyrir tæpum 20 árum.
Sambandið sé farið að ráða mörg-
um málaflokkum sem áður voru á
verksviði einstakra ríkisstjórna, á
borð við umhverfis- og félagsmál og
löggjöf um vinnumarkað.
Hafa glatað samkeppnishæfni
„Hvað varðar efnahags- og mynt-
samstarfið er reynsla síðustu tíu ára
sú að sum ríki hafa orðið
samkeppnishæfari, á borð við
Þýskaland, en samkeppnisstaða
sumra Suður-Evrópuríkja orðið 20-
30% lakari í samanburði við sam-
keppnisstöðu Þýskalands. Vanda-
málin því samfara eru nú að koma í
ljós. Þessar þjóðir líða fyrir að ekki
eru miklar tilfærslur á fjármunum
frá ríkari svæðum til fátækari.
Grikkland mun að öllum líkindum
yfirgefa evrusvæðið enda fæ ég ekki
séð hvernig landið eigi að geta verið
áfram þátttakandi í myntsamstarf-
inu miðað við núverandi stöðu efna-
hagsmála í landinu og mikla og
íþyngjandi skuldabyrði. Portúgal er
spurningamerki og að undanförnu
hefur athyglin í auknum mæli beinst
að Spáni. Ef þessi tvö ríki ganga í
gegnum fjárhagslega endur-
skipulagningu og sýna það aðhald í
ríkisfjármálum sem til er ætlast tel
ég líkur á því að þau geti haldið
áfram að vera í evrusvæðinu.
Hvort stjórnmálamenn og al-
menningur í þessum löndum séu því
fylgjandi að ganga í gegnum slíka
endurskipulagningu er annað mál.“
Pólitík, ekki hagfræði
„Það er auðvelt að vera vitur
eftir á. Hins vegar vaknar sú
spurning að úr því að gallar
evrusamstarfsins eru svo
augljósir hvers vegna var
hluti evrópsku stjórn-
málaelítunnar svo eindregið
fylgjandi evrunni?
„Ég er ekki einn þeirra sem
eru vitrir eftir á. Þvert á móti varaði
ég við því að evrusvæðið gæti ekki
gengið upp með núverandi fyrir-
komulagi. Því miður hafa þau okkar
sem héldu upp slíkum varnaðar-
orðum reynst hafa haft á réttu að
standa,“ segir hann og rifjar upp rök
sem notuð voru fyrir evrunni.
Ríkin áttu að sjá ávinninginn
„Ástæða þess að jafn breið sam-
staða skapaðist um myntsamstarfið
er sú að stjórnmálum var leyft að
ráða för á kostnað hagfræðinnar. Þá
á ég við það stjórnmálalega mark-
mið að færa Evrópusambandsríkin
saman með sameiginlegri mynt.
Sýn þeirra sem réðu för var að
aðildarríkin myndu fyrr en síðar sjá
skynsemina í því að sameina efna-
hagsstefnuna í myntbandalagi. Það
er því um margt kaldhæðnislegt að
raunin er þveröfug, enda hefur evr-
an og samstarfið um hana rekið
fleyg í einingu margra Evrópuríkja.
Þar nægir að horfa til Grikklands og
mótmælenda sem brenna myndir af
þýska fjármálaráðherranum og sýna
hann í nasistabúningi. Evran er að
sundra Evrópu og það er m.a. af
þeirri ástæðu sem ég tel að hún
verði álitin mikil söguleg mistök.
Ég sé tvo möguleika í stöðunni.
Annars vegar að nokkur ríki yfirgefi
evrusvæðið svo eftir standi sterkara
bandalag nokkurra ríkja í norðan-
verðri álfunni. Hins vegar að sam-
bandið þróist í fullmótað efnahags-
bandalag með sameiginlegum
fjármálaráðherra og efnahagsstefnu
þar sem ríkisútgjöld eru ákveðin af
miðstýrðu bandalagi. Slíkt hefði auð-
vitað miklar afleiðingar fyrir lýð-
ræðið. Til hvers að efna til þingkosn-
inga í aðildarríkjum sambandsins ef
allar meiriháttar ákvarðanir í efna-
hagsmálum eru teknar í Brussel?“
spyr Callanan sem telur engan vafa
leika á því að Bretar muni fella hug-
myndir um frekari miðstýringu í
ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu og
kjósa að standa utan þess miðstýrða
bandalags sem þá yrði eftir.
Úrslitastund á evrusvæðinu
Annað hvort þarf að auka miðstýringu í ríkisfjármálum á evrusvæðinu eða fækka evruríkjum að
mati bresks þingmanns á Evrópuþinginu Stofnun evrusvæðisins hafi reynst söguleg mistök
Morgunblaðið/Ómar
Leiðtogi Þingmaður Íhaldsflokksins Martin Callanan hefur setið á Evrópuþinginu síðan 1999.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Tuttugu ár verða liðin á morgun frá
því að Vestmannaeyjaferjan Herj-
ólfur hóf að sigla á milli lands og
Eyja. Guðlaugur Ólafsson, skipstjóri
Herjólfs, segir að engin formleg há-
tíðarhöld verði í tilefni dagsins en þó
verði boðið upp á ís og blöðrur fyrir
börnin um borð.
Guðlaugur er sjálfur Eyjamaður
og man vel eftir því þegar skipið kom
þangað fyrst fyrir tuttugu árum. Þá
var hann sautján ára gamall.
„Ég var að spila þarna með lúðra-
sveitinni á bryggjunni. Þá hugsaði
maður með sér: „Vá, hvað þetta er
stórt! Hvað ætla menn sér eiginlega
að gera við þetta allt saman?““ segir
Guðlaugur
Það hvarflaði ekki að honum þá að
hann ætti eftir að vinna á skipinu síð-
ar. Hann byrjaði sem háseti á
Herjólfi fyrir sjö árum og hefur tekið
tröppuganginn upp í stöðu skipstjóra
síðan.
Hann segir mikið hafa breyst með
tilkomu Landeyjahafnar, sér-
staklega fyrir þá sem hættir við
sjóveiki.
„Með opnun Landeyjahafnar eru
allir svo glaðir að sigla. Það er hæpið
að fólk nái að verða sjóveikt í þessari
siglingu. Það er léttara yfir öllu og
dagurinn líður fljótt. Þegar vel geng-
ur er þetta æðislegt,“ segir Guð-
laugur. Þá hafi nýja höfnin valdið
gjörbyltingu í ferðamannastraumi.
Mikið sé um að fólk skreppi í hálfs-
dagsferðir til Eyja til að fara í sund
eða spila á golfvellinum.
Skipstjórinn segir skipið sjálft enn
eiga nóg eftir. Það hafi verið í slippi í
haust og sé í toppstandi. „Auðvitað
eru til önnur skip sem henta þessari
höfn betur en þetta gerir en það hef-
ur reynst afspyrnuvel í öll þessi ár og
ekkert stórvægilegt komið upp á.
Það er visst gæðamerki að svo sé,“
segir Guðlaugur.
Tuttugu ár frá
komu Herjólfs
Morgunblaðið/Ómar
Í höfn Herjólfur, sem nú kemst á
þrítugsaldur, siglir í Landeyjahöfn.
Á enn nóg eftir,
segir skipstjórinn
Callanan bendir á að ein afleiðing
þess að evrusvæðið þróist í átt til
frekari miðstýringar kunni að
verða sú að gefin verði út sameig-
inleg skuldabréf sem öflugustu
ríkin, einkum Þýskaland, ábyrgist.
Með því yrði Þýskaland gert að
eins konar „kreditkorti“ fyrir Suð-
ur-Evrópuríkin og lántökur þeirra.
Þá bendir hann á að reyna muni
á afstöðu evrópskra kjósenda til
aukinnar miðstýringar, til dæmis í
kosningum í Grikklandi 17. júní nk.
og í kosningum í Hollandi í haust.
Spurður út í viðhorf þingmanna
á Evrópuþinginu gagnvart evru-
kreppunni segir Callanan marga
þingmenn þar líta svo á að stórt
skref yrði stigið í átt til lausnar
vandans með því að Þjóðverjar
fallist á útgáfu sameiginlegra
skuldabréfa fyrir evruríkin.
„Það leysir ekki þann grund-
vallarvanda að mörg evruríkin hafa
orðið lakari samkeppnisstöðu [en
þau gerðu fyrir upptöku evr-
unnar]. Til að þessi ríki geti
haldið í evruna þurfa þau
að ganga í gegnum
kerfislægar breytingar,
láta frá sér stjórn
efnahagsmála og
breyta vinnulöggjöf-
inni.“
Sameiginleg skuldabréf?
VERÐUR ÞÝSKALAND „KREDITKORT“ S-EVRÓPU?
Verslunarrými
Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík
Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is
Verslunarhillur
Verðmerkilistar
Gínur
Útiskilti
Fataslár