Morgunblaðið - 08.06.2012, Side 16
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Hópur foreldra sem á börn í leikskól-
unum Sólbakka og Hamraborg í Hlíð-
unum er ósáttur við fyrirhugaða ald-
ursskiptingu í leikskólunum í haust,
en þeir voru sameinaðir síðasta sum-
ar undir nafninu Bjartahlíð. Foreldr-
arnir eru einnig ósáttir við vinnu-
brögð leikskólastjórans og hvernig
skólayfirvöld hafa tekið á umkvört-
unarmálum þeirra. Telja þeir rök fyr-
ir breytingunni ekki haldbær og fyr-
irvarann skamman. Gagnrýna þeir
jafnframt samráðsleysi yfirvalda og
skort á upplýsingum í tengslum við
sameininguna og ákvörðun um ald-
ursskiptingu. Ekkert hafi verið hlust-
að á þeirra gagnrýnisraddir og m.a.
komið í veg fyrir að undirskriftalistar
færu upp á veggi leikskólanna, til að
gefa foreldrum kost á að lýsa skoðun
sinni. Engin regla sé heldur uppi hjá
borginni hvaða leikskólar megi ald-
ursskipta börnum og hverjir ekki. Þá
hafa foreldrarnir leitað til hverfaráðs
Miðborgar og Hlíða en engin við-
brögð fengið þaðan eða stuðning.
Ekki á sömu torfunni
Sólbakki er við Stakkahlíð, við hlið-
ina á húsi Blindrafélagsins, og þar
eiga yngri börnin að vera. Hamra-
borg er við Grænuhlíð, skammt frá
Suðurveri, og þar verða eldri börnin
vistuð. Samanlagt eru börnin um 135
talsins. Í nokkrum tilvikum munu for-
eldrar eiga börn í báðum skólunum
og hefur þeim verið boðið að hafa
systkinin saman á Hamraborg næsta
haust. Hafa flestir foreldranna þegið
þetta boð.
Talsmaður foreldra, Jónas Vil-
helmsson, segir athyglisvert að fjöl-
skyldurnar hafi langflestar valið að
hafa bæði börnin á Hamraborg þrátt
fyrir fagleg rök leikskólastjóra um
gildi aldursskiptingar. Þetta boð yf-
irvalda sé hins vegar aðeins í gildi
næsta haust, aldursskiptingin sé að
öðru leyti komin til að vera.
Jónas segist hafa komist að því í
gönguferðum með þriggja ára syni
sínum að á milli Sólbakka og Hamra-
borgar er 10-15 mínútna gangur. Ald-
ursskiptingu hafi verið komið á í öðr-
um leikskólum í Reykjavík, sem og á
Seltjarnarnesi, en á þeim og Björtu-
hlíð sé sá reginmunur að þeir séu
nánast á sömu torfunni.
Að sögn Jónasar hafa foreldrar
reynt að koma sínum sjónarmiðum á
framfæri við leikskólastjóra Björtu-
hlíðar. Þar hafi ekki verið hlustað á
þeirra rök og í lok mars sl. var óskað
eftir fundi með yfirmönnum skóla- og
frístundasviðs borgarinnar. Sá fund-
ur komst á í lok apríl og þar var m.a.
ákveðið að koma á fundi með skóla-
stjórnendum, foreldraráði og fulltrú-
um frá sviðinu. Að sögn Jónasar ætl-
aði sviðið einnig að standa fyrir
könnun hjá foreldrum Björtuhlíðar
um afstöðuna til aldursskiptingar.
„Við vorum mjög ánægð með þessar
áætlanir og fengum loforð um að við
myndum heyra frá sviðinu aftur eftir
rúma viku. Þessi tímamörk stóðust
því miður engan veginn,“ segir Jónas
en ítrekað var þrýst á um einhver
svör frá borginni. Þau fengust ekki
fyrr en 23. maí, þess efnis að skóla- og
frístundasvið styddi ákvörðun og
vinnubrögð leikskólastjórans. Loforð
um að gera könnun meðal foreldra
var ekki efnt.
Síðan fékkst fundur með Oddnýju
Sturludóttur, formanni skóla- og frí-
stundaráðs, 1. júní sl. en Jónas segir
þessi fundahöld engu hafa skilað þar
sem áform um aldursskiptinguna
munu standa. Bent hafi verið á að for-
eldrar geti kært málið til innanrík-
isráðuneytisins en Jónas segir for-
eldrana hafa takmarkaðan áhuga eða
getu til þess, sér í lagi vegna nýlegs
úrskurðar ráðuneytisins þar sem
kæru á sameiningu leik- og grunn-
skóla í borginni var hafnað.
„Við gerðum okkur hins vegar
ákveðnar vonir um að Oddný myndi
skilja okkar sjónarmið,“ segir Jónas
og vísar þar til fyrri ummæla Odd-
nýjar í fjölmiðlum á sínum tíma um
systkinaforgang í leikskólum. Þannig
lét Oddný hafa eftir sér á visir.is: „Á
það hefur verið bent að það er harla
ósanngjarnt að foreldrar keyri með
lítil börn á tvo mismunandi staði í
borginni. Það er í senn mikið álag á
börnin og fjölskyldulífið í heild, auk
þess sem það er ekki umhverf-
isvænt.“
„Ekkert hlustað á okkur“
Jónas segist vilja koma þeirra sjón-
armiðum á framfæri opinberlega,
þannig að foreldrar leik- og grunn-
skólabarna í Reykjavík sjái hvernig
borgaryfirvöld taka á umkvörtunar-
efnum foreldra.
„Eftir á að hyggja var engin alvara
á bak við það hjá borginni að finna
lausnir í málinu eða hlusta á okkar
sjónarmið. Við höfum verið dregin á
asnaeyrunum,“ segir Jónas en tekur
fram að foreldrarnir hafi ekkert út á
starfsfólk Björtuhlíðar að setja. Al-
menn ánægja sé með störf þeirra og
börnunum líði vel. Leikskólar séu
hins vegar í grunninn þjónustustofn-
anir og foreldrar séu ekki skyldugir
til að setja börnin í leikskóla líkt og í
grunnskóla. Það sé ekki góð þjónusta
af hálfu borgarinnar ef foreldrar
þurfi að leita út fyrir hverfið til að
koma börnunum í einn og sama skól-
ann.
„Mér finnst mikilvægt að foreldrar
í Reykjavík átti sig á því hvers konar
vinnubrögð eru viðhöfð hjá borginni.
Það liggur við að það taki því ekki að
berjast fyrir einhverjum málum því
það skiptir engu máli. Skilaboðin eru
skýr; það er ekkert hlustað á okkur.
Þetta er íbúalýðræðið sem Jón Gnarr
talar svo mikið um. Við gætum alveg
eins sagt við hann: Leyfðu okkur að
kjósa um hundagerði á Klambra-
túninu en eyðileggðu leikskólana okk-
ar.“
Ekki hlustað á foreldrana
Foreldrar ósáttir við aldursskiptingu í leikskólunum Sólbakka og Hamraborg
Ekkert tillit tekið til þeirra sjónarmiða „Höfum verið dregin á asnaeyrunum“
Morgunblaðið/Ómar
Sólbakki Annar sameinaðs leikskóla undir nafni Björtuhlíðar er Sólbakki við Stakkahlíð. Þar verða yngri börn en eldri börnin í Hamraborg við Grænuhlíð.
Sameining Sólbakka og Hamraborgar
í Björtuhlíð
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Sólbakki
yngri börn
Hamraborg
eldri börn
Menntaskólinn við
Hamrahlíð
Hlíðaskóli Hamrahlíð
Kr
in
gl
um
ýr
ar
br
au
t
Miklabr.
B
og
ah
líð
H
áa
hl
íð
St
ig
ah
líð
St
ak
ka
hl
.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Um 27% reykvískra foreldra sem
þiggja fjárhagsaðstoð eiga barn með
sértæka námsörðugleika, hegðunar-
röskun, langvarandi sjúkdóm eða
fötlun. Meðal foreldra á atvinnu-
leysisbótum er þetta hlutfall 20% en
15% meðal foreldra í launaðri vinnu.
Þetta kemur fram í rannsókn fjög-
urra kvenna fyrir velferðarsvið
Reykjavíkurborgar en markmiðið
var að kanna aðstæður reykvískra
barnafjölskyldna.
Þátttakendur í könnuninni voru
694, þar af 539 konur, og tóku 55%
þeirra sem leitað var til þátt.
Konurnar sem unnu rannsóknina
heita Ásdís Aðalbjörg Arnalds,
Elísabet Karlsdóttir, Heiður Hrund
Jónsdóttir og Vala Jónsdóttir og er
ein niðurstaðan sú að foreldrar sem
þiggja fjárhagsaðstoð í borginni eru
í meirihluta ungar, einhleypar konur
og algengt er að þær hafi ekki
menntað sig að loknum grunnskóla.
Fá minni aðstoð
Foreldrar sem njóta fjárhags-
aðstoðar og foreldrar á atvinnu-
leysisbótum hitta vini og ættingja
oftar en foreldrar í launaðri vinnu en
geta þó síður reitt sig á að fólk sem
ekki býr á heimilinu aðstoði við
umönnun barna, heimilisstörf eða
viðhald húsnæðis, en foreldrar í
launaðri vinnu.
Fram kemur í rannsókninni að
þegar einstaklingar sem þáðu fjár-
hagsaðstoð árið 2011 voru spurðir
hvaða örðugleika, sjúkdóm eða fötl-
un barnið þeirra væri greint með, að
í 47% tilvika var um ofvirkni og/eða
athyglisbrest (ADHD) eða aðra
hegðunarröskun að ræða.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úti við Mörg börn búa við skort.
Líklegri
til að eiga
veik börn
Ný rannsókn á
fátækt foreldra
Vefsíðan www.rekinn.is var form-
lega opnuð í gær. Þar fer fram
undirskriftasöfnun í þeim tilgangi
að koma núverandi borgarstjórnar-
meirihluta í Reykjavík frá völdum.
Aðstandendur síðunnar eru for-
eldrar og íbúar í Reykjavík, sem
fengið hafa nóg af forgangsröðun
fjármála í borginni og illa ígrund-
uðum ákvörðunum varðandi grunn-
og leikskóla, segir í fréttatilkynn-
ingu.
„Samkvæmt samstarfsyfirlýsingu
Samfylkingar og Besta flokksins er
kjósendum lofað íbúalýðræði og
samráði í skipulags-, umhverfis- og
skólamálum. Þrátt fyrir að íbúar í
borginni hafi látið skoðun sína í
ljós með afgerandi hætti hefur
borgarstjórnarmeirihlutinn virt
vilja þeirra algjörlega að vettugi.
Skorið hefur verið niður í grunn-
þjónustu á meðan miklum fjár-
munum er eytt í ólögbundin hugð-
arefni meirihlutans í borginni,“
segir í tilkynningunni.
Nú þegar hafa nokkur hundruð
manns skráð sig á síðuna. Slóðin er
www.rekinn.is.
Vilja meiri-
hlutann í
borginni frá
Nóg járn á meðgöngu
Hvernig er best að viðhalda járnþörf
líkamans eðlilegri?
Ef þú þjáist af járnskorti á meðgöngu þá þarftu að
borða mikið af járnríkum mat til að leiðrétta það.
Mörgum ófrískum konum finnst erfitt að borða það
magn sem þarf til að hækka og viðhalda járnbirgð-
um líkamans. Þá þurfa þær önnur ráð, Floradix
hágæða járnbætandi blanda getur hjálpað til
að ná upp járnbirgðum líkamans hratt.
Floradix inniheldur járn sem frásogast
auðveldlega í líkamanum ásamt C-vítamíni,
ávaxta- og jurtaþykkni til að bæta enná upptökuna. Þessar sérstöku blöndur innihalda mýkjandi jurtir sem
hjálpa til að halda meltingunni góðri og koma í veg fyrir harðlífi sem járntöflur geta valdið.
Mikilvægt er að nýbakaðar mæður haldi áfram að
taka Floradix eftir fæðingu til að viðhalda góðum
járnbúskap og byggja upp orku og kraft. Því litla
barnið þarfnast þess að eiga mömmu sem er full af
orku og áhuga.
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum.