Morgunblaðið - 08.06.2012, Page 24
24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Þrátt fyrir gríðarlegan halla á ríkis-
fjármálum og óvissu um stöðu
bankakerfisins þá virðast fjárfestar
enn reiðubúnir til að kaupa skuldir
spænska ríkisins. Lántökukostnaður
þess hefur hins vegar hækkað um-
talsvert á skömmum tíma. Í gær-
morgun tókst Spán að selja ríkis-
skuldabréf fyrir meira en tvo
milljarða evra, en ávöxtunarkrafan
hafði hækkað nokkuð frá síðasta
skuldabréfaútboði sem fór fram í
apríl. Fram kemur í frétt Financial
Times að Spánn hafi meðal annars
gefið út 611 milljarða evra ríkis-
skuldabréf til tíu ára á 6,04% vöxt-
um, en það eru sömu vaxtakjör og ís-
lenska ríkið fjármagnaði sig á fyrir
skemmstu. Litið var á útboðið sem
prófstein á hvort spænska ríkið gæti
við núverandi aðstæður fjármagnað
sig á erlendum mörkuðum.
Flestir greinendur telja aðeins
tímaspursmál hvenær spænsk
stjórnvöld munu fylgja í fótspor
Grikklands, Portúgals og Írlands og
óska eftir fjárhagsaðstoð frá Evr-
ópusambandinu og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðnum. Evrópskir hlutabréfa-
markaðir hækkuðu í verði í gær
vegna væntinga um það færi brátt að
draga til tíðinda í þeim efnum.
Luis de Guindos, fjármálaráð-
herra Spánar, sagði í síðasta mánuði
að orrustan um evruna yrði háð á
Spáni. Hann hefur líkast til rétt fyrir
sér. Hins vegar hafa greinendur
ennfremur bent á að spænskir ráða-
menn hafi ekki hjálpað til í þeirri
orrustu heldur gert slæmt ástand
enn verra með því að seinka því óum-
flýjanlega – að sækjast eftir fjár-
hagsstoð frá ESB til að endurfjár-
magna spænska bankakerfið.
Andstaða spænskra stjórnvalda við
að stíga slíkt skref hefur fram til
þessa markast af ótta við að þurfa
gangast undir harkaleg skilyrði af
hálfu ESB um frekari niðurskurð og
umbætur í efnahagsmálum. Sam-
kvæmt heimildum Financial Times
er þó ekki talið líklegt að sú verði
reyndin – heldur verði aðeins um að
ræða „mjög væg skilyrði“.
Spánverja bíður engu að síður allt
annað en auðvelt verkefni. Ráða-
menn hafa þegar heitið því að
minnka fjárlagahallann um 5,5 pró-
sentustig á árunum 2011-2013 – úr
8,5% í 3%. Ekkert annað ríki á evru-
svæðinu mun ganga í gegnum jafn
harkalegan niðurskurð og Spánn.
40 eða 100 milljarðar evra?
Að sögn spænska stjórnvalda
þurfa bankarnir á 40 milljörðum
evra að halda. Sumir greinendur
hafa aftur á móti dregið í efa hversu
raunhæf sú upphæð sé – ekki síst í
ljósi þess að ráðamenn í Madrid hafa
ítrekað vanmetið umfang vandans
sem við er að etja þar í landi. Á
undanförnum árum hafa spænskir
bankar verið fastir í vítahring fall-
andi húsnæðisverðs og ótryggra lána
á bókum sínum. Það er talið að fast-
eignalán spænska bankakerfisins
nemi hátt í 1 billjónum
Bandaríkjadala.
Slæm staða ríkisfjármála á Spáni
og ört vaxandi skuldir ríkisins gerir
það að verkum að spænsk stjórnvöld
hafa lítið svigrúm til að koma bönk-
unum til aðstoðar. Hættan er sú að
samfara dýpra samdráttarskeiði í
spænska hagkerfinu muni húsnæð-
isverð halda áfram að falla í verði.
Fari allt á versta veg telja sumir
hagfræðingar ekki ósennilegt að
spænsk fjármálafyrirtæki þurfi að
lokum að afskrifa meira en 100 millj-
arða til viðbótar á bókum sínum.
Ljóst þykir að slíkar afskriftir
myndu að öðru óbreyttu ríða
bankakerfinu að fullu.
Fjörutíu milljarða evra
neyðaraðstoð í vændum
Spænska ríkið sækir lánsfé á markað á hærri kjörum
AFP
Fjárhagsaðstoð Bankia var nýlega tekinn yfir af spænska ríkinu. Stjórn-
völd telja sig þurfa 40 milljarða evra til að endurfjármagna bankakerfið.
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+0-.1/
+,2.30
,+.30
,+.+3
+1.04+
+/2.,2
+.3+31
+02.5
+3+.,3
+,-.1
+00.,+
+,5.4-
,+.15/
,+.,,,
+1.05/
+/2.3,
+.3,+2
+05.4-
+3+.1+
,,/.44+0
+,0.4+
+00.30
+,5.2/
,+.-+3
,+.,-2
+-.445
+/5
+.3,3+
+05.33
+3,.+3
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Kýpverski bankinn Bank of Cyprus
mun ganga í innstæðutryggingakerfi
Bretlands til að verja 50 þúsund
breska innstæðueigendur fyrir fjár-
málakreppunni í Grikklandi. Í frétt
Financial Times segir að breskir
sparifjáreigendur séu hræddir við að
geyma fé í erlendum bönkum eftir að
Landsbankinn gaf upp öndina árið
2008.
Bank of Cyprus er með um einn
milljarð punda í innstæðum í Bret-
landi. Óttinn um að Kýpur muni þurfa
á fjárhagsaðstoð að halda frá Evr-
ópusambandinu fer vaxandi, því hef-
ur bankinn farið þessa leið til að
benda breskum innstæðueigendum á
að peningar þeirra séu öruggir hjá
bankanum. helgivifill@mbl.is
Icesave veldur enn ótta
● Bandaríska kauphöllin Nasdaq hefur
boðið hluthöfum samfélagsmiðilsins
Facebook 40 milljónir dollara (5,2
milljarða króna) í skaðabætur vegna
bilunar í tölvukerfi kauphallarinnar dag-
inn sem bréfin voru skráð á markað.
Bilunin olli því að sumir fjárfestar gátu
ekki keypt bréf um morguninn eða selt
þau seinna um daginn. Fjárhæðin á að
bæta þessum fjárfestum fjárhagstjónið.
Þetta kemur fram í frétt BBC.
helgivifill@mbl.is
Býður hluthöfum
Facebook skaðabætur
● Hrein eign lífeyrissjóðanna hækkaði
um 20,4 ma.kr í apríl sl., eða um 1%.
Fyrstu þrjá mánuði ársins jókst eign
sjóðanna að jafnaði um 40 ma.kr í
mánuði hverjum. Hrein eign sjóðanna
hefur aukist um 12,8% undanfarna 12
mánuði. Að teknu tilliti til verðbólgu var
raunaukning eigna sjóðanna minni, eða
sem nemur um 6%. Raunávöxtun eigna
þeirra hefur þó verið öllu lakari enda
nema iðgjaldagreiðslur sjóðfélaga mun
hærri fjárhæð en greiðslur til lífeyris-
þega og úttektir séreignarsparnaðar.
Þetta kom fram í Morgunkorni
Greiningar Íslandsbanka í gær.
Eignir jukust um 1%
Rangt nafn forstjóra
Rangt var farið með nafn forstjóra
tryggingafélagsins Varðar í frétt í
blaðinu í gær. Hann heitir Guð-
mundur Jóhann Jónsson. Beðist er
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
LÉTTIR ÞÉR VINNUNA
Hver hlutur á
sínum stað
Innréttingar, hillu- og
skúffukerfi fyrir allar gerðir bíla
Öryggisprófað
Tryggðu þig fyrir tjóni
•
•
Nethyl 2 110 Reykjavík Sími 568 1245
Sérfræðingar í
líkamstjónarétti
Veitum fría ráðgjöf
fyrir tjónþola
Pantaðu tíma: fyrirspurnir@skadi.is
www.skadi.is
Þ. Skorri
Steingrímsson,
Héraðsdóms-
lögmaður
Steingrímur
Þormóðsson,
Hæstaréttar-
lögmaður