Morgunblaðið - 08.06.2012, Page 31

Morgunblaðið - 08.06.2012, Page 31
UMRÆÐAN 31 Bréf til blaðsins MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012 Sérsmíðaðar baðlausnir Speglar • Gler • Hert gler Öryggisgler • Litað gler • Bílspeglar Sandblástur • Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtu-skilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Vatnagarðar 12 | Sími 588 5151 | Fax 588 5152 | glerslipun.isSTOFNAÐ 1922 Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Verð 94.000 kr Stærð 90x90cm Sérsmíðum eldhúsborð eftir ósk hvers og eins val um stærð, lögun og efni. Vonandi verður ekki haldið áfram lengi enn að agnúast út í fyrirætlanir vinar okkar Nubos varðandi glæsi- hótel og afþreyingaraðstöðu, auk flugvallar o.fl. á Grímsstöðum á Fjöll- um, fyrir auðuga Kínverja og eflaust annarra þjóða þegna líka, sterkefn- aða. Nóttin á hótelinu mun ugglaust kosta milljónir króna að núvirði, með öllu inniföldu. En ætli auðkýfingana muni mikið um það? Þeir hljóta að meta mikils tækifærið til að anda loksins að sér tæru fjallaloftinu, bú- andi margir hverjir í mengunarkófi milljónaborganna. Veturnir verða svo sjálfsagt sérlega vinsælir, því þá er von norðurljósa og orð Einars Bene- diktssonar, skáldsins og athafna- mannsins mikla (líkt og Nubo), öðlast aukið gildi. Mér skildist að meirihluti fyrir- hugaðra fjárfestinga Nubos yrði í Reykjavík – sem víst verður að kall- ast hrein og falleg borg, a.m.k. er hún það í augum allflestra útlendinga sem ég hef umgengist í leigubílunum sl. aldarfjórðung. Unglingavinnan (les: Vinnuskólinn) er frábært framtak, þótt rusl sjáist samt enn of víða eftir sóðana. Allajafna er þó indælt að vera útivið í sjávargolunni við sundin. Það verður að segjast eins og er að óheppilegt var að málið allt sem slíkt reyndist tengt Samfylkingunni sér- staklega. Ég hefði heldur kosið að sjá sjálfstæðismenn og framsókn- armenn, auk hægri grænna e.t.v., starfa með Nubo að þessari stórkost- legu uppbyggingu, treystandi þeim betur en núverandi stjórnarflokkum, sístum allra í sögu lýðveldisins að mínu mati. Kannski verð ég kallaður „Kína- dindill“ í kjölfar þessa bréfs en það mun ég þá láta mér vel líka. Þessi ævaforna merkisþjóð (þjóðir) er nú þegar komin á stall stórvelda með stuðningi Bandaríkjamanna, svo varla nennir fólk þá miklu lengur að kalla framsækna „keisaraveldið virð- ingarverða“ (PPD) kommúnista. PÁLL PÁLMAR DANÍELSSON, leigubílstjóri. Veri Kínverjarnir (og allir aðrir) velkomnir Frá Páli Pálmari Daníelssyni Allt frá því að fyrstu skráðu tilfelli einhverfu komu fram, eða frá tímum stofnunar Ein- hverfu rannsókn- arstofnunarinnar (Aut- ism Research Institude) hans dr. Bernards Rimland, föður einhverfs barns, hafa yfirvöld sagt að engin lækning sé til staðar fyrir einhverf börn. Rimland leitaði að lækningu og fann það út, að með því að fjarlægja kvikasilfur úr líkama einhverfra barna með sérstakri aðferð klóbindi- efna (special chelating agent) væri hægt að lagfæra ástand þeirra í u.þ.b. 70% tilfella. Þessar niðurstöður gaf Rimland svo út í bók sinni, Infantile Autism, The Syndrome and Its Imp- lications. Þrátt fyrir að foreldrar séu alltaf að spyrja, hvernig stendur á því að börnin eru í lagi í fleiri mánuði og svo eftir fyrsta eða annað árið þá kemur fram þessi einhverfa hjá þeim? Eitthvað hefur verið skrifað um það að einhverfa sé erfðasjúkdómur, en í grein vísindakonunnar dr. Helen Ratajczak segir hún að það hafi enginn sannað eða afsannað að eitt- hvert DNA geti valdið einhverfu, en til er fjöld- inn allur af greinum er segja að bóluefni geta valdið einhverfu. Um- hverfisstofnun Banda- ríkjanna (EPA) varar barnshafandi konur við yfir 18 míkrógrömmum af kvikasilfri í skelfiski, en ekki yfir 25 míkróg- römmum af kvikasilfri í bóluefnum, vegna þess að málið varðar þá bóluefnafyr- irtækin sem leynt og ljóst má ekki gagnrýna þar. Með svínaflensubólu- efninu (Pandemrix) hér fengu barns- hafandi konur nákvæmlega engar að- varanir varðandi 25 míkrógrömm af kvikasilfri í því, annað en að bóluefnið væri öruggt. Vilja ekki sjá samanburð milli óbólusettra og bólusettra Með auknum bólusetningum hjá börnum í Bandaríkjunum hefur ein- hverfan aukist. Milli áranna 2000 til 2002 var hún u.þ.b. 1 barn af hverjum 150 börnum, fjórum árum síðar u.þ.b. 1 barn af 110 börnum, og skv. síðustu niðurstöðum frá Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) er u.þ.b. 1 barn af hverjum 88 börnum með ein- hverfu. Yfirvöld og aðdáendur bólu- efna vilja ekki heldur að gerðar séu rannsóknir á þessum mun á milli óbólusettra og bólusettra ein- staklinga, þar sem vitað er að ein- hverfa hjá óbólusetta Amish-fólkinu í Bandaríkjunum er 1 barn af hverjum 10.000 börnum (childhealthsa- fety.wordpress.com/2009/04/04/ autism-in-amish-children-1- in-10000/). Ofan á allt er vitað til þess að þrír einstaklingar með einhverfu í þessum niðurstöðum komu inn í Am- ish-hópinn frá iðnaðarbæjum. En að- alatriðið hjá aðdáendum bóluefna er ekki að fást mikið við vísindanið- urstöður og upplýsingar heldur reyna menn að finna leiðir til að koma inn áróðri fyrir frekari bólusetningum. Allt fyrir bólusetningar - fela, falsa og ýkja Eftir að niðurstöðurnar „Thimero- sal VSD Study, Phase I-Update 2/29/ 00“ frá árinu 2000 komu fram, er sýndu niðurstöður 2,5 sinnu meiri lík- ur á einhverfu hjá bólusettum, urðu menn verulega hræddir og ákveðið var að fela og þegja yfir niðurstöð- unum. Í Danmörku reyndu menn hins vegar að falsa niðurstöður með því að ýkja upp einhverfutilfelli eftir að hætt var nota kvikasilfur í bóluefn- um 1992, til að reyna segja að kvika- silfur framkallaði ekki einhverfu, þar sem mikil hætta á hóplögsóknum hafði skapast. Sá samanburður sem gerður var á börnum í Danmörku ár- ið 1992 og svo aftur 2002 sýndi allt í einu fram á 2,3 sinnum minni aukn- ingu á einhverfu árið 2002. Dr. Poul Thorsen, einn af þeim sem tók þátt í að ýkja fyrri niðurstöður, var látinn hætta og sérstaklega óskað eftir engu samstarfi við hann í fram- tíðinni. Í fjölmiðlum er síðan alltaf reynt að minnast á dóm yfir Andrew Wakefield eins og eitthvert endanlegt svar gegn öllu varðandi tengsl bólu- efnis og einhverfu. Í því sambandi passa menn sig sérstaklega á því að minnst ekki á, að hann og félagar voru dæmdir fyrir rannsókn- araðferðir en ekki niðurstöðurnar. Meira magn og fleiri dómsmál Það má segja að ál (Aluminium phosphate/ hydroxide) eða aukið magn af því hafi tekið við af notkun kvikasilfurs í bóluefnum. Reyndar er ál einnig þekkt fyrir heilaskemmdir og tengt við einhverfu, rétt eins og kvikasilfrið sem notað er ennþá í inflúensubóluefnum. Menn finna allt- af einhverjar leiðir til að koma þess- um taugaeiturefnum (neurotoxin) í bóluefnin sem auglýst eru svo örugg, og reynt er að koma inn á fólk án þess að minnast á innihaldsefnin. Nið- urstöður þeirra Tomljenovic L,Shaw CA hafa sýnt, að börn frá löndum með mikla einhverfu á einhverfurófinu höfðu öll orðið fyrir miklu áli eftir bólusetningar 3-4 mánaða gömul (J Inorg Biochem. 2011 Nov;105 (11) :1489-99. Epub 2011 Aug 23). Nú í niðurstöðum með kvikasilfurs Hepa- titis B bóluefninu í Annals of Epidem- iology 19 no. 9 (Sep 2009).651-80, þá þrefölduðust líkurnar á einhverfu eft- ir bólusetningu. Eftir að fyrsta skaða- bótamál einhverfs einstaklings vannst fyrir dómstólum, og Hannah Poling fékk greitt yfir 1,5 milljónir dollara, hafa lögsóknir 4.900 fjölskyldna með einhverf börn farið af stað. Það er því mjög líklegt að margir einstaklingar með einhverfu eigi hér á landi og víð- ast hvar um heim eftir að fara í mál af sömu ástæðum yfir þessum taugaeit- urefnum í bóluefnum. Einhverfufaraldurinn Eftir Þorsteinn Sch. Thorsteinsson Þorsteinn Sch. Thorsteinsson »Umhverfisstofnun Bandaríkjanna varar barnshafandi konur við yfir 18 míkrógrömmum af kvikasilfri í skelfiski, en ekki yfir 25 míkróg- römmum af kvikasilfri í bóluefnum… Höfundur er formaður Samstarfsnefndar trúfélaga fyrir heimsfriði og meðlimur í félagi áhugamanna um bólusetningar. - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.