Morgunblaðið - 08.06.2012, Síða 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
✝ Stefán Páll Stef-ánsson fæddist
28. janúar 1991.
Hann lést í umferð-
arslysi 30. maí 2012.
Hann var sonur
hjónanna Huldu
Marínar Njáls-
dóttur, f. 20.3. 1965,
og Stefáns Garðars
Níelssonar, f. 9.8.
1963. Systkini hans
eru: 1) Birkir Freyr,
f. 11.8. 1982, giftur Anný Rós
Guðmundsdóttur, f. 24.7. 1982.
Dætur þeirra eru Lilja Mist, f.
15.4. 2007, og
Emma Rós, f. 17.3.
2011. 2) Tvíbura-
systurnar Rakel
Sjöfn og Rósa Dís, f.
4.10. 2000.
Stefán Páll bjó á
Hauganesi alla tíð.
Hann átti heima í
Lyngholti 1, Hauga-
nesi, Dalvík-
urbyggð.
Útför Stefáns
Páls fer fram í Stærra-
Árskógskirkju í dag, 8. júní 2012,
klukkan 14.
Elsku besti Stefán Páll, þú
ert besti bróðir í heiminum. Við
gleymum því aldrei hvað þú
dekraðir við okkur og gafst
okkur alltaf ís þegar við báðum
um. Og það var alltaf svo
skemmtilegt þegar þú fórst með
okkur út í fótbolta á kvöldin
þótt þú hafir oftast unnið okk-
ur. Ég sakna lyktarinnar af gel-
inu þínu, þú varst algjör töffari.
Við munum aldrei gleyma þér
og við söknum þín. Elskum þig.
Þínar systur,
Rakel Sjöfn og
Rósa Dís.
Nokkur orð til bróður míns.
Elsku bróðir minn, ég skal
hafa það stutt.
Hvað getur maður eiginlega
sagt? Þú varst orðinn svo ham-
ingjusamur og lífsglaður og þá
gerist þetta. Þú varst alltaf
öðruvísi en flestir aðrir, en líka
betri. Þú varst yndislegur
frændi dætra minna. Lilja Mist
hættir ekki að tala um þig, en
hún segir okkur líka að þetta sé
allt í lagi. Þú haldir bara upp á
næsta afmælið þitt þarna uppi.
Lilja frænka muni passa þig og
þú munir passa Hebba fyrir
okkur. Hún er bara svo heppin
að hún skilur ekki almennilega
að þú sért farinn frá okkur.
Samt vona ég svo innilega að
hún skilji þetta bara betur en
ég. Hún man eftir öllum góðu
stundunum okkar, sem eru sem
betur fer mjög margar. Alltaf
áttir þú erfitt með að tjá öllum
tilfinningar þínar, nema þá
kannski helst mér, og ég veit
hvað þér þótti vænt um okkur
öll. Eitt það síðasta sem ég
gerði með þér var að kaupa
blóm handa mömmu. Oft sagðir
þú mér að pabbi væri alger
snillingur, en ég er ekki viss um
að þú hafir nokkurn tímann
sagt honum það. En þó svo þú
hafir kannski aldrei sagt það þá
vitum við öll hvað þú elskaðir
okkur. Þú heimsóttir ömmu oft-
ar en við öll hin til samans.
Ég vona að það hafi verið afi
sem bað þig um það og að þið
bestu vinirnir séuð núna sam-
an, labbandi með hendur fyrir
aftan bak.
Sakna þín ólýsanlega.
P.s. Hver á eiginlega að
þrífa bílinn minn núna? Þú
veist að ég nenni því ekki sjálf-
ur.
Þinn bróðir,
Birkir Freyr Stefánsson.
Elsku Stefán Páll. Það er
svo margt sem kemur upp í
hugann þegar ég skrifa þennan
texta en erfið eru orðin, óraun-
veruleikinn er fyrsta orðið og
efst í huga mér, óréttlætið líka,
af hverju varstu tekinn frá
okkur svona skyndilega, að ég
eigi aldrei eftir að sjá þig koma
æðandi inn heima hjá mér með
þitt glott án þess að láta vita af
komu þinni, að ég eigi aldrei
eftir að hlusta á ykkur bræður
tuða yfir því hvor ykkar sé
myndarlegri, flottari, sterkari,
báðir jafn þrjóskir og flottir og
að þú eigir aldrei eftir að leika
við dætur mínar, litlu frænkur
þínar. Þú varst svo barngóður
og varst alltaf tilbúinn að
hlusta og sjá hjá Lilju Mist.
Alltaf varstu tilbúinn að gera
allt fyrir alla, alveg sama hvað
það var, og þakklætið hjá þér
þegar þér bauðst eitthvað, eins
og til dæmis ekki fyrir löngu
þegar ég hringdi í þig og bauð
þér bók að láni, þú þakkaðir
mér fyrir þrisvar sinnum og
varst svo ánægður með mig.
Ég gleymi því símtali aldrei, ég
lagði á og hugsaði; sá var
ánægður með mágkonu sína.
Þegar ég sit hérna og er að
skrifa þetta verður mér hugsað
til þess þegar þú skutlaðir mér
í heimsókn og ætlaðir að ná í
mig aftur seinna um kvöldið
þegar ég sagði við þig: „Ég
verð þá að fá símanúmerið
þitt.“ Þá heyrðist í þér: „Já, þú
meinar það, ég veit ekki núm-
erið mitt!“ Það endaði með því
að við hringdum í símann minn
úr þínum til að sjá númerið.
Þér leið nú alltaf bara best á
Hauganesi í rólegheitum og
varst ekkert mikið fyrir að
vera með síma á þér. Við grín-
uðumst oft með það að þú vær-
ir flottari en bróðir þinn og ég
tók þátt í gríninu með þér á
meðan ég vissi að þú varst með
stjörnur í augunum gagnvart
bróður þínum, vildir vera eins
og hann og ég vissi að þú gerð-
ir þetta í miklu gríni og auðvit-
að gæti ég ekki verið betur gift
en honum bróður þínum. Mér
þótti vænt um það hversu oft
þú talaðir um það hversu dug-
leg ég væri að vera ein heima
með stelpurnar og sinna heim-
ilinu, þér fannst það mikið af-
rek, á meðan bróðir þinn er á
sjó. Þú sagðir: „Ég veit að
Birkir er duglegur á sjónum en
hvað með þig, Anný? Þú ert
hérna heima að sinna öllu og
færð aldrei frí og það er sko
bara engin smávinna að vera
ein að sjá um allt!“ Ég hélt
fyrst að þú værir að grínast en
þetta var sko ekki grín hjá þér.
Allar minningarnar vakna
núna hjá mér; brosið þitt,
þakklætið hjá þér, húmorinn
þinn, góðmennskan og hlýjan
sem þú sýndir mér og dætrum
mínum og ég mun þakka fyrir
alla ævi. Ég lofa þér því að ég
mun segja litlu frænkum þín-
um frá þér, hversu fallegan
frænda þær áttu, ég veit að
Lilja Mist mun ekki gleyma
stóra frænda sínum sem var
svo góður við hana og ég vildi
óska þess að Emma hefði feng-
ið að kynnast þér líka eins og
Lilja Mist. Ég vil að þú vitir að
ég mun gera allt sem ég get til
að hugsa vel um bróður þinn
og fjölskyldu einn dag í einu.
Ég veit og trúi því að Lilja
systir hafi tekið á móti þér og
þið séuð á góðum stað að fylgj-
ast með okkur. Gefðu henni
knús og kossa frá mér. Ég
kveð þig með miklum söknuði.
Þín uppáhaldsmágkona,
Anný.
Síminn hringdi snemma á
fimmtudagsmorguninn 31. maí
sl. Það voru hörmulegar fréttir
sem ég fékk, Stefán Páll
frændi minn hafði látist í bíl-
slysi kvöldið áður.
Það er erfitt að trúa því
elsku Stefán Páll að þú sért
farinn frá okkur svona ungur.
Ég man svo vel þegar mamma
þín gekk með þig og þegar þú
fæddist. Ég var svo spennt að
fá að sjá þig svo mamma þín
sendi mér myndir af þér. Svo
hef ég fengið að fylgjast með
þér alla tíð síðan.
Ég man svo vel þegar þú
ætlaðir að vera í pössun hjá
mér, þá u.þ.b. þriggja ára gam-
all, og mættir galvaskur, búinn
að kaupa fína blómaskreytingu
sem þú færðir mér. Þú varst
mjög ákveðinn ungur drengur
og ákvaðst að þú ætlaðir sko
ekki að stoppa lengi og gafst
ekki upp fyrr en mamma þín
sótti þig. Ég hitti þig stundum
ekki í langan tíma þar sem ég
bý í öðrum landshluta, en alltaf
fékk ég fréttir af þér þegar ég
heyrði í mömmu þinni. Ef þú
svaraðir í símann þegar ég
hringdi varstu alltaf tilbúinn að
spjalla.
Lífið var ekki alltaf dans á
rósum hjá þér, eins og oft er
hjá ungu fólki, en ég var nýbú-
in að fá þær góðu fréttir að allt
gengi svo vel, að þú værir svo
ánægður með þig og lífið virtist
blasa við þér. Mikið finnst
manni lífið ósanngjarnt á svona
stundum.
Elsku Stefán Páll, ég trúi
því að nú sértu kominn á nýjan
stað þar sem Níels afi, sem þú
saknaðir svo mikið, Sjöfn
amma, Njáll afi og aðrir ástvin-
ir hafi tekið vel á móti þér.
Elsku Hulda, Garðar, Birkir
og fjölskylda, Rósa og Rakel
og aðrir ættingjar og vinir,
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur til ykkar. Megi Guð
vera með ykkur á þessum erf-
iðu tímum.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Svandís Dagbjartsdóttir
og fjölskylda.
Elsku Stefán Páll. Ég hugsa
til þín með miklum söknuði og
finnst lífið ósanngjarnt. Ég
man eftir þér litlum á fleygi-
ferð á sparkbílnum þínum og
hvernig þú gekkst um göturnar
á Hauganesi með hendur aftur
fyrir bak flautandi eins og
Níels afi þinn heitinn. Okkar
samskipti voru alltaf notaleg
hvort sem við hlógum saman,
spjölluðum um lífið og til-
veruna eða vorum á alvarlegum
nótum. Þrátt fyrir skin og
skúrir eins og við verðum öll
fyrir á lífsleiðinni varstu
ákveðinn í að njóta lífsins og
ákveðinn í að lífið hefði upp á
margt að bjóða, enda var alltaf
stutt í brosið og hláturinn. Ég
vil þakka þér fyrir yndisleg
samskipti, ég mun alltaf sakna
þín.
Sárt er vinar að sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
(Höf. ók.)
Guð geymi þig elsku Stefán
Páll.
Sveinbjörg Rósalind
Ólafsdóttir.
Elsku frændi. Enn og aftur
er stórt skarð komið í systk-
inabarnahópinn okkar og skil
ég ekki tilganginn með því þeg-
ar svona ungt fólk í blóma lífs-
ins er tekið burt frá okkur. Ég
hugga mig við það og trúi að
þeir sem okkur elska og eru
farnir taki á móti okkur. Ég er
fullviss um að amma, afi og
Lilja og svo auðvitað Níels afi
þinn og fleiri taka vel á móti
þér elsku Stefán Páll. Ég kveð
þig með trega elsku litli frændi
og við fjölskyldan munum
reyna að gera allt sem við get-
um til að hjálpa mömmu þinni,
pabba og systkinum á þessum
erfiða tíma.
Elsku Hulda, Garðar, Birkir,
Anný, Lilja, Emma, Rósa og
Rakel, missir ykkar er mikill
og megi guð vera með ykkur
og leiða nú sem endranær.
Hvíldu í friði elsku frændi.
Kveðja,
Íris Rún.
Stefán Páll
Stefánsson
HINSTA KVEÐJA
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér
nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Við elskum þig,
mamma og pabbi.
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
✝
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMUNDUR STEFÁNSSON,
Skipholti,
Hrunamannahreppi,
sem lést á Kumbaravogi sunnudaginn
27. maí, verður jarðsunginn frá Hrunakirkju
laugardaginn 9. júní kl. 14.00.
Sigrún Guðmundsdóttir, Jónas Guðgeir Hauksson,
Úlfar Guðmundsson, Brigitte Brugger,
Sigþrúður Guðmundsdóttir, Gunnar M. Sandholt,
Karl Guðmundsson, Valný Guðmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskulegur sonur minn, faðir okkar og
bróðir,
STURLA RÖGNVALDSSON,
bifvélavirkjameistari,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi fimmtudaginn 31. maí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju
miðvikudaginn 13. júní kl. 13. 00.
Rögnvaldur Þorkelsson,
Hjörtur Sturluson,
Viðar Sturluson,
Rögnvaldur Sturluson,
Agnar Sturluson,
Jón Þorkell Rögnvaldsson.
✝
Ástkær móðir okkar, amma og langamma,
AUÐUR HELGA INGVARSDÓTTIR
frá Laxárnesi,
Kjós,
lést á Landspítalanum 24. maí síðastliðinn.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Ingibjörg Ú. Sigurðardóttir, Walter Marteinsson,
Bjarni Ómar Sigurðsson,
Edda Auðardóttir, Guðmundur M. Sigurðsson,
Eggert S. Sigurðsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERLA INGIBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR,
áður til heimilis að Ártúni 9,
Selfossi,
andaðist á Dvalarheimilinu Kirkjuhvoli
fimmtudaginn 31. maí.
Útför hennar fer fram frá Selfosskirkju
mánudaginn 11. júní kl. 13.30.
María Gröndal,
Guðlaug Helga Ingadóttir, Þór Sveinsson,
Sigurður Ingi Einarsson,
Kort Þórsson,
Magdalena Eldey Þórsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
MAGNÚS JÓNSSON,
fyrrverandi skólastjóri,
lést miðvikudaginn 6. júní.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn
12. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningasjóð Grundar,
s. 530 6100.
Sigrún Jónsdóttir,
Gyða Magnúsdóttir, Ársæll Jónsson,
Jón Magnússon,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMANN TOBÍASSON,
Hólavegi 9,
Sauðárkróki,
lést á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks
mánudaginn 4. júní.
Útförin verður gerð frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 16. júní
kl. 14.00.
Marsibil Þórðardóttir,
Kristín Guðmannsdóttir, Eiríkur Ingi Björnsson,
Guðbjörg Guðmannsdóttir, Böðvar Hreinn Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Sonur minn og bróðir,
INGI GUNNAR BENEDIKTSSON,
lést að heimili sínu miðvikudaginn 16. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Sigríður Sigurðardóttir,
Sigrún Björk Benediktsdóttir
og fjölskylda.