Morgunblaðið - 08.06.2012, Síða 47
Föstudagur 08.06 » 19:30
Beethoven-hringurinn IV
Miðasala » Sími: 528 5050
www.sinfonia.is » www.harpa.is
AUKATÓNLEIKAR
MENNING 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2012
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
Tökum er lokið á endurgerð íslensku
kvikmyndarinnar Á annan veg eftir
Hafstein Gunnar Sigurðsson.
Mikla undrun vakti er fréttir bár-
ust af endurgerð-
inni á erlendum
kvikmyndasíðum
í gær en mikil
leynd hefur hvílt
yfir vinnslu henn-
ar, segir kvik-
myndavefur Var-
iety. Endur-
gerðin, sem hefur
fengið heitið
Prince Aval-
anche, er í höndum leikstjórans Dav-
ids Gordons Greens og hefur nær
ekkert spurst til verkefnisins fyrr en
nú.
„Þeir fréttu einhvern veginn af
myndinni og leist mjög vel á,“ segir
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson um
tildrög endurgerðarinnar. „Hand-
ritið er að mörgu leyti mjög svipað
upprunalegu hugmyndinni og haldið
mjög fast í hana. Húmorinn er örlítið
amerískari en sagan er sú sama,“
segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,
leikstjóri, en hann fékk að berja
handritið augum áður en tökur hóf-
ust. „Ég er mjög spenntur að sjá
myndina og finnst forvitnilegt að
einhver skuli vilja gera myndina aft-
ur. Þetta eru spennandi leikarar og
það verður áhugavert að sjá hvernig
þeir fara með þetta,“ segir hann um
endurgerð myndarinnar en í aðal-
hlutverkum verða bandarísku leik-
ararnir Paul Rudd og Emile Hirsch.
Á annan veg gerð á
bandarískan máta
David Gordon Green leikstýrir hinu leynilega verkefni
Vegur Úr kvikmyndinni Á annan veg. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunn-
arsson og Hilmar Guðjónsson kasta af sér vatni við ónefndan veg.
Paul Rudd
Ljósmyndarinn Kári Óskar
Sverrisson fékk í vikunni birta
tískuljósmynd á vefsíðu ítalskrar
útgáfu hins virta tískutímarits
Vogue.
„Þetta byrjaði nú bara með því
að ég bjó til prófíl á síðunni og
byrjaði að senda inn myndir,“ seg-
ir Kári en hægt er að skrá sig á
síðuna og senda þangað ljós-
myndir í von um að fá þær birtar.
„Myndaritstjóri ítalska Vogue fer
yfir allar myndir sem berast og
velur hverjar komast á síðuna,“
útskýrir Kári svo myndbirtingin
er mikill heiður fyrir hann sem
ljósmyndara.
Að myndatök-
unni komu einn-
ig stílistinn Sara
Hlín Hilmars-
dóttir, sem hefur
haldið úti tísku-
blogginu Style
Report, Margrét
Sæmundsdóttir,
sem sá um hár
og förðun, og
fyrirsætan Stein-
unn María Agnarsdóttir.
Ljósmynd Kára Óskars má sjá á
vefsíðu ítalska Vogue, www.vogu-
e.it.
sigyn@mbl.is
Íslensk tískuljósmynd
á vefsíðu ítalska Vogue
Kári Óskar
Sverrisson
Sigyn Jónsdóttir
sigyn@mbl.is
Kammerpoppsveitin Melchior gaf
nýverið út þriðju breiðskífu sína,
Matur fyrir tvo, sem er tónlistarlegt
framhald plötunnar Melchior sem
kom út árið 2009.
Matur fyrir tvo samanstendur af
þrettán lögum, sem hvert og eitt
fjalla um ákveðið augnablik, og ein-
um sálmi. „Þetta kemur upp þegar
við erum að horfa á textana sem eru
að verða til. Þá sjáum við að þeir
hafa tilhneigingu til að fjalla um
ákveðinn stað og ákveðna stund,“
segir Karl Roth, einn af Melchior-
liðum en hljómsveitina skipa ásamt
Karli Hilmar Oddsson, Hróðmar I.
Sigurbjörnsson, Kristín Jóhanns-
dóttir, Gunnar Hrafnsson og
Kjartan Guðnason.
Augnablik eða heill dagur
„Það er svolítið skemmtilegt að
einbeita sér að því að eitthvað sé að
gerast í hverju einasta lagi. Það get-
ur verið stutt augnablik eða allt að
því heill dagur,“ útskýrir hann og
bendir til dæmis á lagið „Uglan“ sem
er sagt gerast í mynni Hjaltadals
þann 21. júlí árið 1970 kl. 20:13-
21:50. „Uglan er náttúruþrillerinn
okkar, spennusaga sem gerist í
náttúrunni. Óskrifuð eða skrifuð af
Guði sjálfum ef menn vilja orða það
þannig. Þá er myndin þannig að alls
staðar er eitthvað spennandi að ger-
ast í náttúrunni og lífið og dauðinn
alltaf að kljást,“ segir Karl um lagið.
„Hugmyndin kemur frá því þegar
við Hilmar vorum saman í sveit sem
litlir strákar og fundum hálfdauða
uglu úti í móa,“ segir hann og á þá
við Hilmar Oddsson sem er einnig í
hljómsveitinni. „Þetta atvik situr
greinilega í Hilmari ennþá enda var
þetta æðisgengin upplifun.“
Þríleikur Narfa
Nafnið Narfi er rauður þráður í
plötuútgáfu Melchior en á Matur
fyrir tvo má til dæmis finna lagið
„Narfi Snær“. „Narfi Snær er síð-
asti Narfinn í Narfa-þríleiknum,“ út-
skýrir Karl en lagið er sagt gerast
17. febrúar 2012 kl. 01:07 á
fæðingardeildinni.
„Á fyrstu plötunni okkar sem kom
út árið 1978 var það Narfi, ungur
maður sem var að byggja og þræla
sér út til að koma sér upp umhverfi.
Síðan á plötunni sem kom út árið
2009 var lagið „Bréf frá Narfa“ sem
var um son Bygginga-Narfa sem er í
útlöndum að senda pabba bréf.
Þriðji Narfinn er svo Narfi Snær
sem er bara lítill og nýfæddur á fæð-
ingardeildinni,“ segir Karl og bætir
við að í laginu sé svolítill afafílingur.
„Reyndar hittir þannig á að ég er
nýorðinn afi svo þetta þræl-
stemmir.“
Minningar og nostalgía
Aðspurður segir Karl textana
ekki endilega einkennast af fortíðar-
þrá. „Tímasetningin hefur kannski
ekki alltaf einhverja sérstaka merk-
ingu en hugmyndin er að hún setji
ákveðna stemningu,“ segir hann um
textasmíðina.
Með geislaplötunni fylgir texta-
hefti þar sem hvert lag fær eina
blaðsíðu með textanum við lagið,
tíma- og staðsetningu þess ásamt
málverki eftir hinn tíu ára gamla
Odd Þór Hilmarsson. „Kannski var
ákveðin nostalgía fólgin í hugmynd-
inni en við vildum að textaheftinu
svipaði til gamalla barnabóka,“ út-
skýrir Karl. Hægt er að skoða
myndirnar í fullri stærð þar sem
þær hanga til sýnis í Kongó,
Nýlendugötu 29.
Í byrjun júlí verða haldnir tvennir
tónleikar til að fagna útgáfu plöt-
unnar. „Þetta verða útgáfutónleikar
nyrðri og syðri,“ segir Karl um
fyrirkomulagið en útgáfutónleika-
rnir verða haldnir á Þjóðlagahátíð á
Siglufirði 7. júlí og í Iðnó 12. júlí.
Morgunblaðið/Eggert
Háþróuð Kammerpoppsveitin heldur áfram að þróa stíl sinn. Í þetta skiptið býður hún upp á náttúruþriller.
Tímasett kammerpopp
Nýjasta plata Melchior inniheldur lög sem fjalla um stað
og stund Tíu ára gamall listamaður myndskreytir
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30
Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30
Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Lau 16/6 kl. 19:30 Allra
síð.sýn.
Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní.
Afmælisveislan (Kassinn)
Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30
Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu.
Gamli maðurinn og hafið (Kúlan)
Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30
Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30
Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012
Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins
(Kassinn)
Fös 22/6 kl. 19:30
Aeðins þessi eina sýning!
568 8000 | borgarleikhus.is
Tengdó – HHHHH–EB Fbl
Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið)
Fös 8/6 kl. 20:00 aukas Lau 9/6 kl. 20:00 20.k Sun 10/6 kl. 20:00 lokas
Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá
Rómeó og Júlía (Stóra svið )
Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas Þri 19/6 kl. 20:00 aukas
Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Allra síðustu sýningar!
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 8/6 kl. 20:00 lokas
Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar!
Beðið eftir Godot (Litla sviðið)
Lau 9/6 kl. 20:00 lokas
Tímamótaverk í flutningi pörupilta