Morgunblaðið - 08.06.2012, Page 52
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 160. DAGUR ÁRSINS 2012
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Sagði alþingismann vera drukkinn
2. Bein útsending frá höfninni
3. Ekki annað eins í 32 ár
4. Drápu smábörn með hnífum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Japanski tónlistarmaðurinn Gen-
zoh Takehisa flytur verk eftir Bach og
frumflytur eigið tónverk í Útskála-
kirkju á morgun kl. 17 og eru tónleik-
arnir hluti af alþjóðlegu listaveislunni
Ferskir vindar í Garði.
Genzoh Takehisa
á Ferskum vindum
Nýtt úti-
listaverk Sól-
veigar Aðalsteins-
dóttur, Streymi
tímans, verður af-
hjúpað í Litluhlíð,
nærri þeim stað
sem Vatnsberi Ás-
mundar Sveins-
sonar stóð á í
Öskjuhlíðinni, á morgun kl. 14.
Hafþór Yngvason, safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, mun afhjúpa verk-
ið og segja nokkur orð.
Streymi tímans
afhjúpað á morgun
Nýja stuttmynd í syrpu Sigur Rósar
sem unnin var út frá nýjustu breið-
skífu hennar, Valtari, má nú sjá á
vefnum sigur-ros.co.uk. Hana vann
Ingibjörg Birgisdóttir
við lagið „Varúð“.
Syrpan ber yfir-
skriftina Mystery
Film Experiment.
Ýmsir listamenn
voru fengnir til að
búa til myndir út
frá lögum plöt-
unnar.
Ný stuttmynd komin
á vef Sigur Rósar
Á laugardag og sunnudag Austlæg átt, 3-8 m/s víðast hvar.
Skýjað með köflum og stöku skúrir syðra, einkum síðdegis. Hiti 9-
15 stig vestantil en 3-9 stig austantil.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA og A 5-13 m/s, en 10-18 með SA-
ströndinni. Skýjað og yfirleitt þurrt en dálítil úrkoma sunnan- og
suðvestantil fram á kvöld. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast S- og V-lands.
VEÐUR
Sigurður Ragnar Eyjólfsson
velur fleiri framherja í
kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu en áður til að bregð-
ast við þrálátum meiðslum
Margrétar Láru Viðarsdóttur.
Þar á meðal er 17 ára nýliði,
Elín Metta Jensen. Hann seg-
ir að bestu leikmenn Íslands
hafi komið inn í landsliðið á
þessum aldri, Elín sé leik-
maður framtíðarinnar og fái
nú að sýna sig og sanna í
hópnum. »3
Velur fleiri fram-
herja en áður
Guðmundur varar sína
menn við vanmati
Ólympíufarinn Kári Steinn Karlsson,
úr Breiðabliki, vann Kaldalshlaupið á
70. vormóti ÍR í frjálsíþróttum sem
fram fór á Laugardalsvelli í gærkvöldi
þótt ekki bætti hann sinn fyrri árang-
ur í greininni. Hin efnilega hlaupa-
kona úr ÍR, Aníta Hinriksdóttir, vann í
800 m hlaupi á fínum tíma og Hafdís
Sigurðardóttir, UFA, vann tvöfalt í
spretthlaupum. »1
Kári vann á 70. vormóti
ÍR í Laugardal
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Það hringdi einhver tölfræðingur
og líkurnar á þessu eru víst
stjarnfræðilega litlar, sérstaklega í
svona litlum skóla,“ segir Jón H.
Sigurmundsson, aðstoðarskólastjóri
Grunnskólans í Þorlákshöfn. Skóla-
slit voru í fimmtugasta skiptið nú á
dögunum og vakti það sérstaka at-
hygli að við þau voru stödd fimm tví-
burapör. Það vill svo skemmtilega
til að tvö tvíburaparanna sátu sama
bekkinn í vetur og ekki nóg með það
heldur deila þau sama afmælisdegi.
Morgunblaðið ræddi einnig við
Halldór Sigurðsson skólastjóra:
„Það eru tvennir tvíburar í sama
bekknum með sama afmælisdaginn,
1. júní, og því nýorðin þrettán ára.
Það er náttúrlega alveg frábært,“
segir Halldór.
Jón svarar því aðspurður að til-
viljun ein þurfi ekki endilega að ráða
öllu um tildrög málsins. „Á árum áð-
ur sá maður að afmælisdagarnir
voru gjarnan tengdir vertíðunum,
svona þegar þetta var alvöru hörku-
vertíð. Þá gat maður talið frá vertíð-
arlokum. Eins tók ég eftir því að
verslunarmannahelgin hefur oft gef-
ið af sér,“ segir Jón glettinn.
Þakkar vatninu
Spurðir út í það hvort tilhugalíf í
Þorlákshöfn sé með öðru sniði en
gengur og gerist, og því sé sá fjöldi
tvíbura sem raun ber vitni, svara
þeir starfsbræður ólíkt. „Sem betur
fer þá veit ég ekkert sérstaklega
mikið um tilhugalífið hér í Þorláks-
höfn, ekki svona almennt,“ segir Jón
og hlær. Halldór virðist hins vegar
harðákveðinn í því að skýringuna
megi finna í vatni þeirra bæjarbúa
enda sé um besta vatn í heimi að
ræða.
Morgunblaðið heyrði í sérfræð-
ingi í líkindum, Þorsteini Arnalds,
og hafði hann sitthvað um málið að
segja. Hann segir það frekar snúast
um að meira sé tekið eftir því þegar
eitthvað öðruvísi eigi sér stað heldur
en að um merka tilviljun sé að ræða.
Samkvæmt upplýsingum fæðast tví-
burar í um það bil eitt skipti af
hverjum hundrað.
„Þannig að í raun og veru ættu að
vera sirka fimm börn í 230 manna
skóla sem væru tvíburar. Í þessu til-
felli eru það tíu einstaklingar, þann-
ig að það er svona tvöfalt það sem
telst venjulegt.“ Þorsteinn segir
málið samt langt frá því að vera ein-
stakt.
„Þetta er ekkert eitthvað sem
gerist á hundrað eða þúsund ára
fresti. Þetta er frekar eitthvað sem
gerist á tveggja til tíu ára fresti. Það
má samt ekki rugla því saman að þó
svo þetta sé ekki líkindafræðilega
stór atburður þá er þetta stór at-
burður fyrir fólkið í þessum skóla.
Alveg eins og það er ekki stór at-
burður að einhver vinni í lottói þó að
það sé stór atburður fyrir þann sem
vann.“
Fimm tvíburapör við skólaslit
Tvö pör deila
afmælisdegi og
eru saman í bekk
Talið frá öftustu röð frá vinstri: Helgi og Sigurður Jónssynir, Ingimar Rafn og Halldór Rafn Ágústssynir, Ester
Eik og Hafdís Þöll Berglindardætur, Birta Ósk og Bjarki Óskarsbörn og Daníel og Birgitta Björt Rúnarsbörn.
Á Vísindavef Háskóla Íslands kem-
ur fram að tvíeggja tvíburar gangi
að einhverju leyti í erfðir en það
eigi ekki við um eineggja tvíbura.
Þar segir að líkur á fæðingu
tvíeggja tvíbura varði aðeins gen
móðurinnar. Aldur konunnar hefur
talsvert að segja en kona sem er
37 ára er fjórum sinnum líklegri til
að eignast tvíeggja tvíbura en
stúlka á 18. aldursári. Tvíburafæð-
ingar eru einnig breytilegar eftir
kynþáttum en kona frá Vestur-
Afríku er tíu sinnum líklegri til að
eignast tvíeggja tvíbura en kona
frá Kína eða Japan. Konur af evr-
ópskum uppruna eru þarna mitt á
milli.
Tvíburar ganga í erfðir
TVÍBURAFÆÐINGAR AUKAST EFTIR ÞVÍ SEM MÓÐIRIN ER ELDRI
Morgunblaðið/Golli
Tvíburar Tvíeggja tvíburar ganga
að einhverju leyti í erfðir.
Ísland mætir Hollandi í Laugardals-
höllinni á sunnudagskvöldið en það
er fyrri viðureign þjóðanna um sæti í
lokakeppni heimsmeistaramótsins
2013. Guðmundur Þ. Guðmundsson
landsliðsþjálfari segir að Hollend-
ingar séu sýnd veiði en ekki gefin og
kveðst hafa varað menn við því að
falla í þá gryfju að ætla að vanmeta
þá. »2
VEÐUR » 8 www.mbl.is